Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Spurt er um leik (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 13 árum, 1 mánuði
Ég spilaði þennan leik heima hjá vini mínum þegar ég var yngri (fyrir um það bil 15 árum). Ég held að þessi leikur hafi verið í Sega eða Nintendo. Ég man ekki mjög mikið eftir þessum leik, en ég man að maður var einhver riddari og þegar riddarinn var laminn þá duttu fötin af honum og hann endaði á nærbuxunum. Getur einhver sagt mér hvað leikurinn heitir?

Formata Windows 7 (6 álit)

í Windows fyrir 13 árum, 3 mánuðum
Sælir hugarar. Ég lenti í því óláni að fá vírus í tölvuna mína. Ætla ég því að formata hana. En þar sem ég hef ekki gert þetta áður og hef litla reynslu af tölvum, væri ég til í að fá svör við nokkrum spurningum. Til að formata Windows 7 þarf ég einhvern Windows disk (diskurinn sem fylgir alltaf með tölvunni). En mér skilst að þessi diskur fylgi ekki lengur með og þarf maður þess í stað að brenna þessar upplýsingar á disk þegar tölvan er ný. Alla vegna ég á nýja Windows 7 tövlu ( < 1.árs) og...

Óska eftir ódýrum vinnusíma (1 álit)

í Farsímar fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Mig vantar ódýran og ófínan síma sem ég get notað í vinnu og annað. Síminn þarf að vera í lagi, en hann þarf ekki að vera nýr né flókinn (3g, eða myndavél). Er einhver möguleiki að einhver eigi gamlan síma sem ég gæti fengið fyrir lítið?

Audiobooks (5 álit)

í Apple fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Hvernig fer maður að því að setja hljóðbækur (audiobooks) í iPodinn þannig að það fari undir Audiobooks (Music -> Audiobooks)? Ég get sett hljóðbækur í iPodinn eins og venjuleg lög (Music -> Artists), en ég vill hafa það undir Audiobooks því þar er hægt að stilla hraðan á spilun og fleiri auka möguleikar.

Brotinn kassagítar (1 álit)

í Hljóðfæri fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Ég er með brotinn kassagítar sem vill láta laga. Hvar er hægt að láta laga hann??

Óska eftir Mac fartölvu (3 álit)

í Apple fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Mér vantar sem sagt góða fartölvu (notaða/nýja) í góðu ástandi. MacBook eða Powerbook. Ég er með pening og ég get staðgreitt.

Hár (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Ég var að velta fyrir mér hvar hægt er að fá alvöru klippara græjur? Svona sérstök skæri sem þynna hárið og dæmið til að eyða rótum. Hvernig fer ég að því að þynna á mér hárið? einhver sérstök skæri eða?

Hár (4 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum
Ég var að velta fyrir mér einu, það vaxa nokkur hár (2 til 3) á sama staðnum undir höndunum á mér. Í staðinn fyrir að koma eitt og eitt hár, þá koma nokkur hár á sama staðnum (nokkur hár úr einni rót), ef þið skiljið hvað ég er að meina. Er þetta eðlilegt eða hvað? og kannast einhver við þetta?

Trommari í leita að hljómsveit (4 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Ég er 18 ára gamall og er að leita mér að góðri og þéttri Rock hljómsveit, svoldið heavy en samt ekki of. Ég er búinn að spila á trommur í kringum 5 ár, ég á sett og allt sem þarf. Áhugasamir endilega sendið mér póst.

CD-ROM (3 álit)

í Vélbúnaður fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Geisladrifið mitt er eitthvað skrítið. Ég get spilað tónlist og instalað foritum, en ég get hvorki horft á DVD myndir né spilað tölvunleiki. T.d. var ég að instala einu leiki. Ég gat instalað honum ekki spilað hann og þegar ég sett diskinn í þá kemur alltaf “Please insert the correct CD-ROM, select OK and restart application” Þetta er Dell 8400, með Windows XP Hvernig get ég lagað þetta?

Vandamál við upsetningu á tölvu (3 álit)

í Windows fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Sælir, ég er að reyna að formata 4 ára gamla Dell 8400 Dimension tölvu. Ég er með Windows XP, og ég er búinn að setja einhverja setup diska sem fylgdu tölvuni, en alltaf kemur þessi sama villa þegar ég reyni að formata tölvuna: Setup did not find any hard disk drives installed in your computer. Make sure any hard disk drives are powered on and properly connected to your computer, and that any disk-related hardware configuration is correct. This may involve running a manufacturer-supplied...

Vantar hjalp vid cymbala kaup. (9 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum
Hey, eg er ad husga um ad kaupa mer crash and china cymbala, og mer lyst best a Zildjian. Zildjian A custom crash 16” og 18”, og Zildjian A custom China 18”. Eg mun nota 16” fyrir venjulegan crash og eg mun nota 18” sem crash/rider. Eg vil bara venjulegan china disk. Hvad finnst ykkur trommarar um tetta? eru tetta godir rock cymbalar og er god ending i tessu? Maeli tid med einhverjum odrum Zildjian cymbulum a svipudu Verdi? Sorry, med islenskuna eg by i USA og er ekki med isl. Stafi.

Friends (7 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég var að velta því fyrir mér hvort aðal leikaranir í Friends (þó kannski fyrir utan Jennifer Anston) hafi leikið í einhverjum öðrum þáttum eða bíómyndum. Ef þið vitið um einhverjar nennið þið kannski að nefna mér nokkrar?

Rooney (1 álit)

í Stórmót fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Veit einhver hvar maður getur séð videoið þegar Rooney steig á eistað/un á einhverjum portúgalanum?

Símavessen (5 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Það er smá vandamál með símann minn (Sony Ericsson T610). Það stendur “Insert SIM” á skjánum og ég veit ekki hvað það þýðir. Ég get ekki ýtt á neinn takka nema 1,9 og 0 því þetta eru allt fyrstu stafirnir í einhverjum neyðarnúmerum og ég get bara hringt í þessi neyðarnúmer og það stendur “SOS call” þegar ég reyni að hringja í þau. Ég er búinn að reyna að slökka á símanum og það virkar ekki. Ef þið vitið hvað er að eða hvað ég að á gera væri sú hjálp vel þegin.

Snorra Edda Sturlusonar (6 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Á einhver eða veit einhver um úrdrátt á netinu úr Snorra Eddu Sturlusonar, Gylfaginingu og Skáldskaparmála? Ég þarf að fá nokkuð nákvæman úrdrátt úr sögunni með helstu aðalatriðunum. Ég er að fara í próf úr þessu væri það mjög gott ef einhver gæti reddað mér þessu. Ég er búinn að lesa alla bókina en það er svo lítið síðan og ég nenni ekki og hef ekki tíma til að lesa alla bókina. Vinsamlegast sleppið öllum óþarf athugarsemdum og almenum leiðindum.

Apple tölva? (4 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Heyrðu ég var að fá mér nýja apple tölvu, iMac. Það er innbyggð myndavél í tölvunni. Þegar ég er á msn langar mig að geta notað myndavélina. Hvernig geri ég það? Þarf eitthvað sérstakt msn, hvað þá?

Netvesen (2 álit)

í Apple fyrir 18 árum
Hæhæ! Þannig er mál með vexti að ég var að fá mér apple tölvu, iMac og það fylgdi þráðlaust net með. Ég komst fyrst á netið í smá tíma en svo allt í einu virkaði það ekki. Núna vil ég fá skýringu af hverju ég kemst ekki á netið og hvernig ég get sett það aftur í gang Endilega svarið mér sem fyrst því ég þarf á netinu að halda!. (ég er að skrifa þetta á netinu í skólanum.)

Downlod (9 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Ég heyriði einhvers staðar að það ætti að vera eitthvað áttak í gangi gangvart ólöglegu niðurhali (download) á kvikmyndum og tónlist, og langið mér að þá svör við nokkrum spurningum. 1. Vitið þið eitthvað um þetta? 2. Er eitthvað í gangi eða er þetta bara til að hræða man? 3. Hvernig veit löggan eða hver sá sem er að leita af þeim sem eru að download að þeir séu að downloada? 4. Skiptir það einhverju máli hvort það sé verið að downloada á erlendum eða innlendum síðum?

Hárgreiðslustofa (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég er að leita mér að ódýri og góðri Hárgreiðslustofu kannski kringum 1000 - 2000 kr. Ég er unglings drengur og vill bara fá nokkuð stutta klippingu. Ef að þið gætuð hjálpað mér þá væri það alveg frábært.

MP10 (2 álit)

í Græjur fyrir 18 árum, 1 mánuði
Einhvers staðar heyrði ég verið að tala um MP10 spilara. Ég hef nú bara heyrt um MP3 og MP4 spilara en er eitthvað til sem heitir MP10 spilari? Ef það er til hvað er það?

Skjár 1 (6 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvernig getur maður séð skjá 1 á netinu?

Músíktilraunir (4 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Það var hægt að horfa á beina útsendingu frá úrslitakvöldi músíktilrauna á siminn.is, en er nokkuð hægt að horfa á það núna?

Homepage og Bookmarks fyrir Mozilla Firefox (3 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvernig gerir maður eiginlega Homepage og Bookmarks fyrir Mozilla Firefox? Þið sem kunnið það nennið þið að sýna mér nokkuð nákvæmlega hvernig maður gerir það.

MSN og Netvandmál (1 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég er orðin alveg brjálaður á msninu mínu eða netinu, því þegar ég er á msn þá dett ég mjög oft útaf og kem svo aftur inná, þetta er verulega böggandi sérstaklega þegar ég er að tala við eitthvað fólk á msn. Ég veit ekki hvort þetta er msnið eða netið. En ég er alvega með ADSL tenginu frá Símanum og með snúru sem ég tengi í ráterinn. Ég finn alvega ekkert fyrir þessu þegar ég er að skoða eitthvað á netinu. En ef það er einhver sem getur hjálpað mér þá endilega svarið mér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok