Hehe.. sérstaklega fyndið þetta með Kreacher dangerous, Die Sirius!! En já, við ættum kannski að fara að skoða betur alla spádómana hennar Trelawney… En svo er eitt lika. Rowling gerði það sem flestir höfundar gera rétt áður en þeir drepa eitthverja persónu, hún segir okkur ALLT um hana. Við fáum núna að vita heilmikið um bakgrunn Siriusar, fjölskylduna hans, húsið hans, fortíð hans… áður vissum við bara að hann var besti vinur James og var saklaus af morðunum. Víst svo að við söknum þeirra...