Eins og allir vita á þessum korki þá er Sirius Black dáinn, það sem fór mest í taugarnar á mér við það er að það var ekkert “móment” sem allir syrgðu hann, ég veit ekki hvort að þetta eigi að vera svona í galdraheiminum, þó að ég stórlega efist um það…
Jújú Lupin tárast og Dumbledore kemur með þessa löngu ræðu við Harry (sem meikar alveg sens), en hvað svo, hvarf líkið bara?
Hvar var hann jarðaður (ef það er þó gert :P). Mér fannst þetta aðeins vanta því að bókin er eiginlega strax buinn eftir slagsmálin Voldemort…
Það gæti náttúrulega verið að ég hafi miskilið þetta eitthvað, endilega segið mér hvað ykkur fannst og leiðréttið mig, það er orðið nokkuð langt síðan ég las bókina…

Takk bra|bra||