Okey… ég er 19 ára gömul(veit að það stendur 18 á info en það er ekki rétt er fædd ´84 og á ammæli í mars setti vitlausa kennitölu or some ;)) ég hef verið módel frá því ég var 14 ára…reyndar í svíþjóð en núna hérna á íslandi.

Ég er engin horrengla…persónulega finnst mér þessar stelpur sem eru svo óhugnalega mjóar ekki vera flottar…Þær eru grindhoraðar og ekki með neinar línur… Ég er allsekki svona þvílík horrengla ég er með línur (þá meina ég brjóst mjaðmir og rass)
þegar ég byrjaði að módelast á Íslandi var ég hjá eskimo ég var ekki að meika það að vera þar! gellunar þar voru mjög margar bara allgjörar horrenglur og mér fannst beinlínis stundum þær segja að ég væri feit…því ég er með stór og flott brjóst og er með línur! Ég er ekki að segja að þessar horrenglur svokölluðu séu einhverjar verri manneskjur en mér finnst allsekki flott að vera bara eldspíta með ekki neinar línur..

Ég er allsekki feit ég er 165 cm og 56 kg…og er með línur…reyndar með langar lappir það feikar ;) en svona flestar módel gellur eru 170 cm og 50 kg eða minna..það finnst mér allsekki flott…!

Um helgina spurði ég vini mína hvort þeim fyndist Geri Halliwel (held að það sé skrifað svona) flottari núna eða þegar hún var að byrja í Spice Girls muniði þá var hún svo flott með flott brjóst mjaðmir og línur! Þeir sögðu allir að hún hafi verið flottari þegar hún var í Spice Girls sem mér finnst alveg hreina satt!

Það er flottara að vera með línur! Stákum finnst það 100 sinnum flottara… og mér finnst þessi ýmind sem er núna í gangi alveg hræðileg… þetta Fm-Hnakka kjaftæði…fm hnakkar eru folk okey ef ég lýsi frekar stelpunum…fm hnakka stelpur eru allar í tískunni, kaupa sér bara svona föt því þau eru í tísku ekki endilega að því þeim finnst þau flott bara afþví þau eru í tísku, þær eru allar geðveikt mjóar allar brúnar, allar með sömu klippinguna sem er í tísku og hlusta allar á sömu tónlistina sem er þá í mörgum tilfellum fm95,7 og að verða að vera þvílikt grannar með engar línur…!

Persónulega þá er ég allsekkik fm hnakki… mér finnst tískan í dag frekar asnaleg allt alveg þvílíkt skært… Ég er þessi gallabuxna típa…alltaf í þröngum gallabuxum og einhevrri þægilegri peysu og þægilegum skóm…þessir skór sem eru í tísku nuna alveg geggjað oddmjótt shit váá hvað það er ekki að gera sig inní hausnum á mér! Þegar maður er labbandi um í bænum þá sér maður þúst 12-13 ára smástelpur gangandi í svona fm hnakka fötum!! kommon mér finnst þetta einum of..!

Ég er ekki að segja að mér finnist fm hnakkar leiðinlegir…jú samt sumir eru pein in thí ass!! En ég þekki nokkra sem eru fínir…en þegar maður t.d. lbbar inní eithvað party sem er með fullt af fm hnökkum í þá þekki ég þá bókstaflega ekki í sundurég meina þeir eru allir eins maður verður alveg þvílíkt ruglaður….

En þetta er mitt alit þá hafiði það …takk fyrir


Kv Lyra

p.s. þetta átti að verða svar til boom æjj man ekki hvað nickið var en allavena átti að veraða svar en það varð svo langt að eg gerði þetta að grein…