Það sem silverboy segir er fínt. Varðandi ræktina er málið að gera bara nógu fjölbreyttar æfingar. Ekki festa þig í rútínu. Hlauptu, lyftu, notaðu hjólið, labbaðu upp halla á bretti, farðu í yoga, sippaðu, farðu í sund, stattu jafnvel á höndum og jóðlaðu. Lykillinn er að venja ekki líkamann á einhverja hreyfingu til að geta brennt sem best. Og á meðan þú ert að þessu keyrðu þá upp púlsinn annars lagið.