Vinur minn sendi mér þessa grein á frummálinu (ensku), þetta var tekið af síðu strangtrúaða hægrimanna (Religious Right) og segir hvernig maður veit hvort að barnið sitt sé goti (goth). Ég þýddi þetta lauslega og vona að þið hafið gaman að.


Foreldrar, börn ykkar gætu verið að sökkva sér í gota menningu. Hvernig veit maður að barnið sitt sé goti? Ef þið sjáið eitthvað af þessum merkjum þá gæti barnið ykkar verið að sökkva sér í gota menningu

Ganga í svörtum fötum
(Æjæj, ég á svartar buxur)

Hafa gatanir eða tattú
(Sjitt… sextugur frændi minn er með tattú!)

Ganga með pentagram eða ankh (Egypskt merki notað í satanískar athafnir).
(Pentagramið er tákn fegurðar og ankh er verndartákn.)

Ganga í rokktónlistarbolum
(Hmm… ég á 3… er ég goth?)

Hlusta á gotahljómsveitir líkt og Marilyn Manson og aðrar andfélagslegar sveitir.
(Andfélagslegar? Haha)

“Hanga” með nýjum vinum.
(Hanga einmitt með nýjum vinum)

Heimta óeðlilega mikið næði.
(Ólíkt öðrum eðlilegum umglingum)

Hafa lítinn áhuga á hollri athafnasemi á borð við að vera í kirkju, biðja og íþróttum
(Svakalega hef ég verið goth lengi…)

Nota eiturlyf.
(Bítlarnir voru goth s.s.)

Drepa fólk til skemmtunar.
(Hahah… ég geri það)

Vaka frameftir og/eða drekka blóð.
(Hahahahaha!)

Horfa á kapalsjónvarp.
(No comment…)

Kvarta vegna hausverks, leiðinda, ógleði, stungusára eða þorsta.
(Hvað tengist það goth?)

Eiga leyndarmál.
(Enginn eðlilegur unglingur hefur leyndarmál!)

Eyða miklum tíma ein.
(Ég er einn þegar þessi orð eru skrifuð?)

Eyða miklum tíma með fólki sem foreldrar þekkja ekki.
(Hah)

Láta illa í skólanum.
(Ég var rekinn úr tíma fyrir 2 mánuðum, ég er greinilega goth)

“Gleyma” að sjá um heimilsverkin, örugglega vegna eiturlyfja eða áfengismisnotkun.
(Öhömm…)

Heyra tónlist úr hávaða, örugglega útaf eiturlyfjum.
(…?)

Nota tölvur eða internetið.
(Núna skuluð þið loka þessu, slökkva á tölvunni og fara að gera eitthvað hollt, eins og að byðja)

Spila tölvu eða hlutverkjaleiki.
(Ekki spila gta san andreas lengur!)

Lesa vísindaskáldskaps eða fantasíubækur.
(Ég hef lesið allar Harry Potter bækurnar, sumar oftar en einu sinni, ég er goth)

Skrifa reiðar færslur í leynilega dagbók (þið getið auðveldlega fundið dagbókina ef þið leitið í herbergi barns þíns).
(Hahaha)

Hafa tortryggnar hugsanir (Margir gotar ásaka foreldra sína um að njósna um þá).
(Hver myndi ekki gera það ef þeir væru alltaf að leita að földum dagbókum sem einhver heimasíða segir um?)

Trúa á hættuleg trúarbrögð á borð við Wicca, Satanisma, Hindúisma og Búddisma.
(Já, sérðu ekki fyrir þig svartklæddan, málaðann mann með gaddaólar og Marilyn Manson í botni að biðja til Búddha?)

Heimta að eyða tíma með vinum sem að foreldrar samþykkja ekki.
(Mjög goth)

Nota blóð kristinna barna til að áletra pentagram eða önnur merki.
(HAHAHA!)

Sofa of mikið eða of lítið.
(S.s. allir eru goth?)

Borða of lítið eða of mikið.
(Já, það gerist bara við gota)

Skoða klám eða hafa áhuga á kynlífi.
(Ég veit um sífelt um fleiri og fleiri goth)

Eru samkynhneigð, tvíkynhneigð eða klæðskiptingar.
(Sjitt, Páll Óskar er goth)

Reykja sígarettur.
(Svo mamma mín er goth?)

Skilja spratur eða önnur eiturlyfja áhöld eftir um allt hús.
(Öh.. nei?)

Borða gota-mat á borð við Count Chocula.
(Hvernig getur morgunmatur sagt hvort maður sé goth eða ekki?)

Hæðast að fólki með vald, líkt og kennara, leiðsögumenn eða Jesús.
(margir kennarar sem ég hef hæðst að í gegnum tíðina, er ég s.s. goth?)

Segja “Ég er goti.”
(Öh..)

Ganga með nælu sem stendur á “Ég er goti.”
(Mig langar í þannig)

Tala um gotaklúbbi eða að fara í partí.
(…)

Spyrja um lokka úr hári frá frjálslegum kynnum.
(Err…)

Eiga fleiri en einn steypjárnspott.
(ó, ég á bara einn)

Dansa við tónlist.
(Ég lenti einu sinni í moshpitt á tónleikum :/)

Haga sér óeðlilega eða skelfilega.
(Hahaha)



Vonandi höfðuð þið gaman að þessum lestri.
verwex