Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kristinnm
kristinnm Notandi frá fornöld 38 ára karlmaður
150 stig
Áhugamál: Bílar, Jeppar

Re: þyngd á scout II

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Síðan ef þú tekur toppinn og hurðarnar af þá léttist hann um 130 kíló!

Re: þyngd á scout II

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hehe, Wranglerinn er 1600 kg með fullan tank (80 lítrar)

Re: Skemmtilegasti bíll sem þú hefur prufað?

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Skemmtilegustu: 1. Grand Cherokee sem pabbi á, '99 módelið 4.7L V8, 235 alvöru hestöfl! 2. Wranglerinn minn, sprækt kvikindi sem hægt er að þjösnast á Leiðinlegasti: Toyota Hilux 2.4D sem vinnan á, það bara gjörsamlega gerist ekki neitt og maður fær krampa í hægri fótinn af áreynslu! Þessi bíll á að vera 83 hestöfl en er MIKLU máttlausari en 86 hestafla dísel Vitara (munar að vísu 200 kílóum, en samt!) Allir aðrir bílar falla svona mitt á milli.

Re: Hreinsa álfelgur

í Bílar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Fáðu þér felguhreinsiefni. Það virkar miiiiklu betur en tjöruleysir þar sem t.d. bremsuryk og svoleiðis er líka á felgunum.

Re: Spá í jeppa :P

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Undir 15 lítrum = alltaf aftastur = ekki gaman ;-) Varahlutir eru ekkert mál, nóg til af þessu hérna heima og kaupir restina frá Ameríku.

Re: Spá í jeppa :P

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Cherokee með 4.0L ætti að vera einhvers staðar undir 20L í eyðslu og nægur er krafturinn!

Re: Spá í jeppa :P

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Bila bila bila skiptir það einhverju máli, mér finnst þetta allt saman bila alveg jafn mikið sama hvað það heitir. En Hilux með 2,4 dísel er sá máttlausasti og ókeyrandasti haugur sem ég hef nokkurn tímann ekið! Meira að segja Lada Sport er skemmtilegri!

Re: 4,2/amc258

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég veit það ekki, ég gæti trúað að hún væri svona um 140-50.

Re: 4,2/amc258

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég er með svona vél í mínum Wrangler. Það besta við hana er hvað hún vinnur laaaangt niður á lágsnúning. Það er alveg hægt að keyra hana niður í 500 snúninga án þess að drepa á henni! Mín er að vísu komin með innspýtingu þannig að hún er fleiri hestöfl en þau eru frekar sjaldséð með original blöndungnum. Það er síðan alveg hægt að ná þessum vélum vel upp fyrir 200 hestöflin (um 110-120 original!) með innspýtingu, heddi af 4.0L, öðrum knastás, kveikju og svo framvegis. Ég er ekki alveg viss...

Re: Spá í jeppa :P

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Auðvitað er það þéttara en tuskan, en CJ7 kom með plasthúsi.

Re: Spá í jeppa :P

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Auðvitað finnst mér Willy's vera bestur, fallegastur og svo framvegis. En ég skal lofa þér því að það er ekkert sem hægt er að kalla hagstætt í þessum málum…

Re: Spá í jeppa :P

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
AMC/Jeep línu sexurnar eru alveg ágætis vélar. Þær toga alveg gríðarlega á lágsnúning.

Re: Spá í jeppa :P

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Minni trekkur í plasthúsi af Wrangler???

Re: 35 dekk - ráðleggingar

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það mætti kannski bæta við að það er Vitara á heimilinu með BF Goodrich All Terrain dekk sem er búið að keyra tæpa 40000 km og það er nóg eftir.

Re: 35 dekk - ráðleggingar

í Jeppar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hvaða tegund ertu með? Mér finnst BF Goodrich vera besti kosturinn, þau eru þokkalega ódýr og endast nokkuð vel og ég hef ekki heyrt mikið talað um vandræði með þau en auðvitað getur allt rifnað. Það er líka spurning hvort All Terrain dekkið frá þeim sé ekki að koma betur út í snjó heldur en Mud Terrain sem er grófara. Ef þú berð saman einkunnirnar sem TireRack gefur þeim (All Terrain hér, Mud Terrain hér) þá fær All Terrain hærri einkunn en Mud Terrain. Ég er með 35" All Terrain undir mínum...

Re: MSN client fyrir makkann?

í Hugi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Adium er þrælfínt.

Re: hvað er málið

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Margt smátt gerir eitt stórt…

Re: scout traveller

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Scoutinn kom veit ég með V8 big block vél, 304 cid minnir mig, sem gerir lítið annað en að brenna bensíni. Ég spjallaði um daginn við kall sem var á alveg óbreyttum Scout með þessari vél og hann sagði að bíllinn eyddi 25+. Hún er heldur ekki þekkt fyrir að vera spræk frekar en 3,3 diesel sem er líka þekkt sem 3,3 máttlaus. Hún var útfærsla International af Nissan díselvélinni, ég held að ég fari rétt með það að það sé meðal annars annað olíuverk og hún er miklu kraftminni en Nissan vélin. Ég...

Re: Vantar eitt stk. 38" mudder

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þetta heitir nú reyndar Wrangler, en það er nú bara það sama og Willy's. Willy's hefur reyndar ekki verið til síðan 1941 nema hjá Íslendingum þannig að Wrangler er alveg jafn mikill Willy's og CJ-5 og CJ-7! Og já, til að svara spurningunni þá er ég búinn að eiga hann í hálft ár núna.

Re: Vantar eitt stk. 38" mudder

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Daddara… þessi rifa var búin að vera þarna alveg heillengi og síðan fór ég kvöld eitt að þjösnast í Úlfarsfellinu. Þegar ég kem heim síðan heyri ég smá hviss í dekkinu, allt í lagi með það. Næsta dag heyri ég aðeins meira og síðan morguninn eftir er dekkið vindlaust. Bömmer. Þannig að ég reyni að tappa það og það tókst nokkuð vel, nema hvað að dekkið rifnaði meira og meira og núna eru komnir yfir 10 tappar og dekkið heldur áfram að leka! Það rifnar bara meira við það að troða enn einum tappa...

Re: Óskast

í Bílar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Rafstilling, VM-Rótor, Vaka og Toyota partasalan í Mosfellsbæ.

Re: fornbílar

í Bílar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Er það samt ekki 25 ára til að bifreiðagjöld falli niður?

Re: kistinnm

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Tja þú veist ekki hverju þú ert að missa af geiri minn ;-) þetta er svaðalegur bíll ef þú hefur tíma til að dunda þér smá (s.s. ekki láta hann ryðga útí móa eins og pabbi…) En það er alveg rétt að þetta fór alveg fram úr björtustu vonum, það var ekki einu sinni búið að auglýsa hann neitt. Ég bauð hann bara til sölu í spjallþræði á f4x4.is og þá fékk ég svona fimm emaila og einn af þeim gaurum keypti síðan bílinn! Svo er þetta líka svolítið teygjanlegt þar sem þetta voru skipti og Cherokeeinn...

Re: Vantar eitt stk. 38" mudder

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já…..gelymdi einu. Síminn hjá mér er 869 7544.

Re: kistinnm

í Jeppar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
…og það má kannski fylgja með að hann fór á 900 þúsund.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok