RTFM er ágætt, en athugið það að Linux er samansetningur margra margra búta af hugbúnaði, hver með sinn eigin “friendly” manual. Oft er nóg að svara spurningum byrjenda með því hvaða part af HVAÐA manual þeir eiga að lesa. Það er ekki svo ljóst endilega hvaða forrit gerir hvað, sjáið þið til. Auk þess legg ég til að þeir sem finnst heimskulega spurt, á spjallvefjum eða ircinu eða hvar sem er, að þeir SLEPPI því þá að svara, því hrokablástur getur litið út fyrir að vera svar við spurningu, og...