jamm, margt í gangi þarna fyrir ofan sé ég ;) Alls ekki ósammála því að þekking sé KANNSKI ómöguleg, en það er bara of þægileg niðurstaða(?), endar í þessari gömlu klisju;“ekkert verður vitað með vissu” amen, hættum að hugsa. Svo ég ætla bara að teikna hring í kring um þá hugmynd, geyma hana uppí hugskoti, hafa hana til hliðsjónar, en fara svo og prófa aðra möguleika. :) þegar ég sé litinn grænan, tel ég mig hafa þá þekkingu, að það sem ég skynja sé það sem ég kalla grænt. auðvitað er séns á...