Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ísland mætir Finnum (5 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þann 29. apríl n.k. sem mun vera árið 2003 munu fremstu knattspyrnumenn íslensku og finnsku þjóðanna (sem gefa kost á sér, eða sem þjálfarinn velur) mætast í vináttulandsleik í Finnlandi. Liðin mættust síðast í byrjun árs 2000 á Norðurlandamótinu á La Manga, en báru Íslendingar þá sigur úr bítum 1-0. Spennandi verður að sjá hvernig Íslendingum gengur með Finnana, en Finnar hafa styrkst heilmikið á þessum 2 árum. Búast má þó við að LiverpoolTröllið Sami Hyypiä muni vera aðalmaðurinn í leik...

Allt búið (4 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Frakkar urðu Heimsmeistarar árið 1998, öllum að óvörum á heimavelli sínum í Frakklandi, eftir að hafa unnið sitjandi Heimsmeistara frá Brasilíu í úrslitaleik.. Tveimur árum síðar unnu þeir síðan annan úrslitaleik, er þeir unnu Ítalíu í Evrópumótinu í knattspyrnu. Í millitíðinni höfðu þeir síðan orðið Álfumeistarar. Þegar menn fóru að spá í þetta heimsmeistaramót, HM 2002 í Asíu, bar vanalega ávallt upp á góma að Frakkar kæmust mjög langt, ef þeir ynnu ekki bara aftur Heimsmeistaratitilinn....

Seljum treyjur (5 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Síðast liðið sumar, keyptu Arsenal 21 árs gamlann miðjumann fra Japan. Þá var aðeins ár í HM 2002 í Kóreu og Japan, og gerðu Arsenal hálfgerða tilraun með þessu til þess að græða smá pening. Þeir fengu leikmanninn fyrir lítið, og ætluðu að nota hann til þess að selja mikið af Arsenal treyjum með nafni hans aftan á til Japan. Þess vegna er hann oft kallaður T-bolurinn. Þessi leikmaður, fékk ekki að spila einn einasta leik með Englandsmeisturunum í ensku Úrvalsdeildinni síðast liðið ár, en...

2 marka sigur, eða Búið (2 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Eftir markalausa jafneteflið hjá Frökkum og Úrúgvæjum í morgun, þá var það orðið ljóst, að Heimsmeistar Frakka, og reyndar Evrópumeistarar OG Álfumeistararnir eru í nokkuð erfiðri aðstöðu fyrir loka umferðina. Þetta þýðir það, að hvernig sem leikur Senegala og Úrúgvæja fer, þá VERÐA Frakkar að vinna Dani með að minnsta kosti tveggja marka mun. Miðað við alla leiki í riðlinum, þá tel ég barasta líklegast að Senegalar fari beint áfram og leikur Dana og Frakka verði harður úrslitaleikur um hitt...

Portúgalir sofandi eins og Frakkar ? (11 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Eins og við ÖLL vitum töpuðu, að mínu mati, sigurstranglegir Portúgalir 3-2 fyrir Bandaríkjamönnum, sem hafa ávallt verið með frekar slakt landslið. Portúgalir voru frekar óöruggir í vörninni, og má þá helst nefna markvörð þeirra, Vitor Baia, leikmann FC Porto í Portúgal, og fyrrverandi leikmann Barcelona, en hann átti afleitann dag. Mín skoðun á þessu, miðað við leik beggja liða í dag er sú, að Bandaríkjamenn hafa sennilega Aldrei verið með jafn sterkt landslið í knattspyrnu karla....

Feta Þjóðverjar í fótspor Ungverja ? (4 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Árið 1982 vannst stærsi sigur í sögu Heimsmeistarakeppnanna í knattspyrnu karla. Unnu lið Ungverja þá lið El Salvador, 10 - 1. Þrátt fyrir þennan ótrúlega sigur Ungverja, þá sátu þeir eftir í riðlakeppninni og fóru, því ekki áfram. Núna á HM 2002 unnu Þjóðverjar Sádi Araba, 8 - 0, eins og væntanlega allir vita. Í öðrum leik Þjóðverja, gerðu þeir hins vegar 1-1 jafntefli við Íra. EF Írar vinna Sáda í lokaleik þeirra í riðlinum, eru Írar áfram, sem má telja góðar líkur. Þá þurfu ÞJóðverjar að...

Hvað verða skoruð mörg mörk ? (3 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Pólverjar töpuðu í dag sínum fyrsta leik á HM 2002 fyrir heimamönnum í Suður-Kóreu. Pólverjar sem hafa Liverpool markvörðinn Jerzy Dudek í markinu, fengu á sig 2 mörk, en Dudek er nú ekki vanur að fá svona mörg mörk ásig í leikjum með Liverpool, enda fengu Liverpool fæst mörk á sig í Ensku Úrvalsdeildinni á nýafstöðnu leiktímabili. Pólverjar sem ég hélt að væru stórir og stæðilegir og margir töldu að myndu fylgja sigurstranglegum Portúgölum upp úr riðlinum, vantar kannski Liverpool...

Hvað verða skoruð mörg mörk ? (20 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Núna þegar 11 leikir eru búnir af HM hafa verið skoruð 31 mörk í keppninni. Þar af hafa Þjóðverjar skorað 8, en hinn Pólskættaði Þjóðverji, Miroslav Klose gerði 3 mörk af þeim 8. En hvað ætli það verði mörg mörk skoruð þegar í heildina verður litið, þann 30. júní 2002 ? Ég ætla að tippa á 123 mörk. Gefið þessari grein endilega ykkar álit, um hvað þið haldið að það verði skoruð mörg mörk á HM 2002, þó það sé vissulega erfitt að spá um það.

Falla met ??? (3 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Paolo Maldini fyrirliði Ítalíu hafði fyrir HM 2002 leikið 19 leiki á Heimsmeistarmótum. Í dag lék hann því leik númer 20. Ef Ítalir komast alla leið í úrslitin eða leika um 3. sætið, og Maldini leikur alla leikina, þá verður hann búinn að spila 26 HM landsleiki og er því orðinn leikjahæstur frá upphafi. Sá sem er leikjahæstur núna er Þjóðverjinn Lothar Matthaus, en hann á að baki 25 leiki á 5 Heimsmeistaramótum. Mark Gabriels Omars Batistuta fyrir Argentínu gegn Nígeríu á Sunnudaginn var...

Markahæstur 2002 (12 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Markakóngur HM í Frakklandi 1998 var Davor Suker, en hann verður með á þessu móti með Króötum. En verður Suker aftur markakóngur…ég hef ENGA trú á því! Hver verður markahæstur á mótinu í sumar ? Ég hef ekki heyrt miklar umræður um það, en ég hef pikkað út 10 sem mér finnst geta komið sterklega til greina. En hverjum datt í hug að Suker yrði markahæstur '98 ? Ekki mér allavega. Þannig að það gæti komið verulega á óvart hver yrði markahæstur. Ég ætla að leyfa mér að birta listann hér á eftir,...

Spútniklið (5 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Mikið hefur verið rætt um hvaða lið á eftir að verða svokallað Spútniklið á Heimsmeistarakeppninni í sumar. Ég hef heyrt ýmsar hugmyndir um það. Meðal annars: Senegal, Pólland, Suður Kórea, Bandaríkin,Rússland, Tyrkland…og þannig mætti lengi telja. Mín skoðun á þessu er sú að það er náttúrulega aldrei hægt að bóka neitt á svona mótum, þannig að litlu liðin geta náttúrulega bæði komið á óvart og verið bara mjög slök. Hvaða lið haldið þið að verði Spútnik-liðið á HM 2002 ? Ég hef hins vegar...

Argentína (11 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Nú þar sem allir hafa verið að spá Argentínu rosalega góðu gengi á komandi heimsmeistaramóti, þá hef ég ákveðið að reyna að koma að stað umræðu hér, og sjá hvað þið segjið. Eru Argentína kandídatar til þess að verða Heimsmeistarar aftur eftir margra ára hlé, eða valda þeir bara ekki vonbrigðum á þessum stærsta íþróttaviðburði ársins. Ég ætla að tippa á það að Argentína eigi EKKi eftir að standa undir væntingum og valda mestum vonbrigðum á HM 2002, þó ég óski þeim alls hins besta á mótinu, og...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok