Hvað verða skoruð mörg mörk ? Núna þegar 11 leikir eru búnir af HM hafa verið skoruð 31 mörk í keppninni. Þar af hafa Þjóðverjar skorað 8, en hinn Pólskættaði Þjóðverji, Miroslav Klose gerði 3 mörk af þeim 8.

En hvað ætli það verði mörg mörk skoruð þegar í heildina verður litið, þann 30. júní 2002 ?

Ég ætla að tippa á 123 mörk. Gefið þessari grein endilega ykkar álit, um hvað þið haldið að það verði skoruð mörg mörk á HM 2002, þó það sé vissulega erfitt að spá um það.