Portúgalir sofandi eins og Frakkar ? Eins og við ÖLL vitum töpuðu, að mínu mati, sigurstranglegir Portúgalir 3-2 fyrir Bandaríkjamönnum, sem hafa ávallt verið með frekar slakt landslið. Portúgalir voru frekar óöruggir í vörninni, og má þá helst nefna markvörð þeirra, Vitor Baia, leikmann FC Porto í Portúgal, og fyrrverandi leikmann Barcelona, en hann átti afleitann dag.

Mín skoðun á þessu, miðað við leik beggja liða í dag er sú, að Bandaríkjamenn hafa sennilega Aldrei verið með jafn sterkt landslið í knattspyrnu karla. Portúgalir, hafa annað hvort verið bara OF hræddir allan leikinn við Bandaríkjamenn, eða þeir hafa farið í leikinn með það í huga að þeir myndu vinna, hversu illa sem þeir mundu spila. Enda sáust Luis Filipe Madeira Cairo Figo og Manuel Cesar Rui Costa lítið í leiknum, miðað við hvað þeir eru stór númer í félagsliðum sínum, Real Madrid og AC Milan.

Þessi óvæntu úrslit í riðlinum, gera riðilinn enn meira spennandi fyrir vikið, og alls ekki gott að segja, hverjir fara upp úr riðlinum.