Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Jæja, hvernig eru svo lúxussalirnir? (1 álit)
í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Einhver sem hefur prófað þá? Er hlé? (Vona ekki) Er sæmileg mynd og hljóð? Getur maður keypt bjór? Er munur á sölunum? Hvernig væri að koma með umfjöllun?
Ljósmyndun? (3 álit)
í Hugi fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hvernig væri að setja upp ljósmyndun sem áhugamál. Mikið af fólki sem tekur myndir (digital/filma). Fólk gæti rætt um myndavélar svo græjufíklarnir gætu fengið útrás og póstað myndum og spurt um ráð…
Smurstöð? (1 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég þarf að láta tékka á allri olíu í bílnum hjá mér. (Vél, drif, gírkassi) Hvar er hagstæðasta þjónustan? Ég hef heyrt að Hekla sé rándýr, en ætti ég að skreppa þangað til að vera safe? (Þetta er 2 ára gamall Golf) Einnig vildi ég láta ástandsskoða bílinn, svona ef ég skyldi selja hann á næstunni, og bara til að halda verðinu uppi. (svona eðlilegt viðhald) Mælið þið með einu verkstæði frekar en öðru? J.
Alþingi er sett í dag! (01.10.01) (0 álit)
í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Vildi bara minna ykkur, nú er ráðið að fylgjast með störfum þessara starfsmanna okkar, nýr vefur Alþingis ætti að auðvelda okkur málið. Látum ekki fleiri klúður eins og STEF skattinn fara í gegn.
Wikipedia - alfræðiorðabok skrifuð af notendum (0 álit)
í Netið fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hvað flokkast undir jaðarsport? (4 álit)
í Hjól fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég bara spyr. Ég myndi nú t.d. varla flokka snjóbretti, sýnist fjöldinn sem stundar það slaga upp í hefðbundin skíði. Ég geri ráð fyrir að fallhlífarstökk sé þarna inni, og einnig ársull (river rafting). Mér dettur í hug fjallahjól og þá bæði hefðbundið og brun. Eftir hverju er farið? Fjölda þeirra sem stundar íþróttina eða hversu hip, cool og trendy hún er? J.
Flugslys 3 maí 1943 (15 álit)
í Flug fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Datt í hug að senda þetta hingað inn í von um upplýsingar; Jon, I have been researching the crash of U.S. Army Air Force B-24 aircraft in 1942, which went into an Icelandic Hill at 63 degrees, 54 minutes West and 22 degrees, 19 minutes and 30 seconds North. Do you know the crash site, and is it marked with any sort of plaque or memorial? A relative of mine lost his father (a Major Totman, aide General Andrews) in this crash. If you wish to read the details and see a photo taken at that time,...
Útivist takk. (4 álit)
í Hugi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hér vantar tilfinnanlega áhugamál fyrir útivistarfríkin, ég var að spá í að skella fjallahjólum, gönguferðum, græjum og öðru tengdu saman í eitt til að byrja með. Hvað segiði um það? Spurning hvort þetta ætti að vera undir íþróttir eða tilverunni… J.
Vísindaskáldsaga fyrir fólk sem les ekki svoleiðis (5 álit)
í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég mæli með nýju bókinni hans Greg Bears (Þekktur meðal okkar sci-fi nördanna fyrir Eon og fleiri sögur). Hún heitir Darwins Radio. Þarna er á ferðinni hard-core sci-fi án þess þó að verða yfirdrifin. Það er jafnvel hægt að lesa þessa bók sem venjulegan thriller. Í stuttu máli: Hvaða samband er á milli Neanderthalsmanna sem finnst í Ölpunum, fjöldagrafa í Gregoríu og skyndilegrar fjölgunnar fósturláta hjá konum? Eins og áður er hugmyndin útpæld og vel útfærð. (Ég mæli með að fólk rifji upp...
Oracli 9i fáanlegur á Linux (0 álit)
í Linux fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Oracle hefur nú loksins portað nýjasta grunninn sinn, 9i, á Linux. Í fréttatilkynningu segja þeir að yfir 7000 Linux notendur hafi sótt 9i á 7 dögum, sem verður að teljast nokkuð gott miðað við stærð.
Útivist á Heilsu? (1 álit)
í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvernig væri að fá flokk fyrir útivistarfríkin? Ég er t.d. þó nokkur útitýpa, þótt ég hafi ekki gert nógu mikið í því að hjóla/ganga á fjöll. Hérna gætu fjallahjóla, fjallagöngu, hlauparar ofl. haldið sig. Eða er Heilsa nóg fyrir þetta allt? J.
Hvað er hægt að komast af ódýrt? (17 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sma tilraun: Í staðinn fyrir að rembast við að tala um bíla sem fá okkur koma nokkurn tíma til með að eignast og verðum að láta okkur dreyma um langar mig að prófa svolítið. Hvað er hægt að fara lágt í bílakaupum án þess að enda á druslu með teipað púströr. Ég er að tala um eldri, notaðan bíl sem virkar. Bíl sem þið mynduð treysta ykkur á að fara hringinn án þess að vera með sér sjóð fyrir verkstæðiskostnaði. Ég átti t.d. 11-12 ára Nissan Sunny, það fyrst núna sem hann er að gefast upp...
Hvaðan kaupið þið DVD? (3 álit)
í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Varla af skifan.is (hrollur). Ég reyni að forðast það fyrirtæki eins og pestina. Er hvar er þetta ódýrast? Besta þjónustan? osfr. J.
Oh please.... (1 álit)
í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Give me a break. Það eru aldrei neinir Vondir gegn Góðum í stríði. IMHO er það alltaf pointless… En hvað um það, ef þú villt virkilega sjá mynd um Pearl Harbour árásina, þá skaltu rölta á leiguna þína og taka Tora! Tora! Tora! Hún er snilld, ekki þessi hollywood froða sem tröllríður öllu hérna þökk sé Skífunni (oj). Mæli með henni…
Eve & Elite? (13 álit)
í Eve og Dust fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvar fær maður gefins hvolpa? (9 álit)
í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef gaman að öllum dýrum, enda uppalinn í sveit. Nú er ég að leita mér að barngóðum hund fyrir heimili. Ekki veiði eða hreinræktaðan sporthund, bara geðgóðan og vinalegan. Líklegt að börn verði eitthvað að fikta í honum. Blendingar eru í góðu lagi. Hvert á maður að snúa sér? Einhversstaðar verða hvolpar til! :) J.
Rammstein í London (3 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Vildi bara benda ykkur sem eruð að pæla að kaupa miða á 20.000 eða meira. Rammstein heldur tónleika í London 10. Júni. Flug með Go út 9. og til baka þann 11. kostar 16.000 sléttar og miðarnir kosta 11 UKP. Reiknið sjálf.
vangæði á huga... (1 álit)
í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þessa skoðanakönnun sá ég á Kvikmyndir-DVD í dag: Átti Gladiator skilið að fá óskarinn? O JÁ Þokkalega O JAAAAAAAAA O Skítt sama O Nei, einhver önnur O NEI hún er ömurleg O Pointiator átti skilið að fá gullkallinn Er ekki í lagi hjá a) þeim sem sendi inn þessa könnun, b) Hjá ritstjórunum sem samþykkir svona bull? Eða voru viðkomandi kannski á trippi um helgina?
Red Violin (8 álit)
í Kvikmyndir fyrir 23 árum
Sá þessa mynd á Stöð 2 í kvöld, og verð að segja að ég var orðlaus. Þessi mynd er þvílíkt snilldarverk í alla staði, handrit, tónlist, kvikmyndatak, leikstjórn og leikarar, allt spilar þetta saman og útkoman nálgast það að verða fullkomnum. Ég er þvílíkt svekktur að hafa ekki séð þessa mynd í bíó á sínum tíma. Don McKellar (handrit) og François Girard (handrit og leikstjórn) eru hvorugir þekktir, en ég vona að þetta sé ekki það síðasta sem við fáum að sjá frá Girard. Tónlistin er notuð á...
Sjómannaverkfall (1 álit)
í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Smá samsæriskenning: Hversu margir halda að Kristján í LÍÚ hafi hringt í Davíð til að fresta verkfallinu svo þeir gætu grætt smá á loðnunni? Sjávarútvegs- og Forsætisráðherra sögðu báðir ekki síðar en á föstudag að ríkisstjórnin ætlaði EKKI að skipta sér af verkfallinu. Það er greinilegt að einhverjir feitir kallar hafa fundað um helgina og togað í spotta. Eða hvað? J.
Netið og farsímar...(Röfl) (6 álit)
í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvers vegna í ósköpunum kostar 10 krónur að senda eitt sms úr símanum sínum? Eða jafn mikið og heillar mínútu símtal í ódýrasta taxta. Nú veit ég ekki hvernig sms virkar tæknilega, en mig grunar að það sé lítill munur hvernig símkerfið komi sms skilaboðum á milli síma eins og hljóði. Það tekur um 5 sekúndur að senda sms (óvísindalegar mælingar) sem þýðir að ég get sent 12 á mínútu, sem kostar um 120 krónur sem er meira en mínútu símtal til dýrustu landa. (Ekkert land er yfir 100kr/mín, skv....
Brennivínið í búðirnar! (21 álit)
í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Rekstraraðili matvöruverslunar þarf...
Lotus Omega og svenska politiet (4 álit)
í Bílar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fékk þetta í pósti: Lotus Omega kicks ass! Löggan í Svíþjóð að reyna að ná ökufanti á Lotus Omega, fylgist með hraðanum á löggunni, 200Km/klst og Omegan hverfur…
Loksins Dual AMD (18 álit)
í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Margir hafa spurt mig um myndina sem ég sendi hér en þetta er eitt af fyrstu Dual AMD Duron móðurborðunum. Ég hef verið að bíða eftir þessu lengi, og nú er loksins komið chipset (kallast 760MP) fyrir fleiri en einn K7 CPU. Sérstaklega er þetta athyglisvert þar sem þau eru að nota Socket-A, sem er sniðinn fyrir ‘litla bróður’ eða Duron. Þannig að maður ætti að geta sett saman öfluga græju fyrir minna fé en ef notaðir væru sambærilegir Intel CPU. <a...
Íslensk bíó eru ömurleg... (11 álit)
í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvernig stendur á þvi að ég borga sama verð fyrir að sjá mynd í A-sal með stóru tjaldi og öllum græjum og að sjá sömu mynd undir lok sýningartímabils í salnum-undir-stiganum-gengið-inn-í-gegn-um-klósettið sal? Finnst íslenskum bíógestum svona gott að láta fara svona með sig? Um leið og mynd er færð í minni (ekki alltaf verri, að vísu) ætti að lækka verðið, þú ert jú að borga fyrir að sjá myndina á stóru tjaldi með alvöru hljóðkerfi og öllu sem því fylgir. Reyndar er ég næstum alveg hættur að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok