Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Terrell Brandon hættur (4 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það hlaut að koma að því. Terrell Brandon er opinberlega hættur. Spilaði í 11 ár frá 1991, en vegna meiðslna á hné hefur hann ekki spilað síðan 2001. Hefur farið í mjög margar aðgerðir og það var í raun löngu ljóst að ferillinn hans væri búinn. Spilaði lengst með Cleveland, Minnesota og var líka hjá Milwaukee. Var síðast hjá Atlanta en náði aldrei að spila með þeim. Þetta var góður leikmaður sem komst tvisvar í All star. Spurning hvort eitthvað svipað gerist nú með Grant Hill. En ótrúlega...

Nash meiddur - Jón verður kannski í hópnum í nótt (4 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Nash meiddist í nótt gegn Washington. Ef Nash verður ekki með í nótt þá verður að teljast líklegt að annar hvor Jón eða Tariq Abdul-Wahad verði í hópnum í nótt gegn Toronto, enda verða annars bara 11 manns í stað 12. En Nash vill örugglega spila gegn Toronto, enda er hann frá Kanada og töluvert vinsæll í Kanada, þrátt fyrir að Kanada búar vilja varla sjá körfuboltann fyrir áhuga á íshokkí. Mjög ólíklegt samt að Jón verði í hópnum, miklu freka að Wahad verði þar í staðinn

Baron Davis og Rashard Lewis leikmenn vikunnar (3 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Baron Davis, New Orleans Hornets, var í gær valinn leikmaður vikunnar í Austurdeildinni. NO Hornets hafa byrjað vel og unnið 3 og tapað 1. Davis skoraði meðal annars 37 stig, 7 stoð og 5 stolnir í sigri á Boston um daginn. Rashard Lewis, Seattle, var valinn leikmaður vikunnar í gær í Vesturdeildinni. Seattle hefur unnið 2 fyrstu leikina. Lewis skoraði 25 stig í fyrsta leiknum og setti persónulegt met með 50 stigum í öðrum leiknum. Aðrir sem komu til greina: Vin Baker, Tyson Chandler, Ben...

Borgar sig að kaupa PS2 tölvu núna? (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það sem ég á við er hvað verður PS2 lengi í viðbót? Ég þarf helst að kaupa mér eina bráðlega. 18900 í BT og Skífunni og ég er með memory card og aukafjarstýringu þannig að það yrði bara 18900 kr. En borgar það sig, hvað er langt þangað til að PS2 verður úrelt?

Jón verður ekki með gegn Lakers í kvöld (2 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Jón verður á Injured list ásamt Tariq Abdul-Wahad í kvöld þegar Dallas mætir Lakers. Kemur alls ekkert á óvart. Jón verður því sennilega eftir í Dallas, en leikurinn fer fram í LA.

PES3: Góðar fréttir!! (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Góðar fréttir frá skífunni varðandi PES3. Leikurinn er á leiðinni og “ætti” að koma fyrir lokun í kvöld á laugaveginu (lokar kl. 22). Bónusklúbbverð verður 4800kr, netverð verður 5400 kr en fullt verð sennilega 6000 kall. http://www.skifan.is/skifan/product.asp?parent%5Fid=56&SKU=PES3PS2

Nú myndast líklega einn pláss hvorum meginn í playoffs (6 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Í fyrra komst Utah í playoffs, en núna verður það að teljast mjög ólíklegt að það endurtaki sig. Þá myndast eitt pláss í Vesturdeildinni og ég spái því að Houston, Seattle og kannski Memphis eða Denver (samt frekar ólíklegt) munu berjast um sæti Utah í playoffs. Houston og Seattle verða samt líklega að berjast þarna um 8. sætið. Önnur lið verða fyrir neðan. Milwaukee náði 8. sætinu í playoffs í fyrra en núna eru þeir með lið sem telst heppið að vinna yfir 30 leiki. Ég giska á að Chicago...

Mér finnst vanta einn admin til viðbótar (5 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það eru alltaf fleiri en einn admin og oftast eru mikið fleiri en einn admin á öðrum áhugamálum. Ég held að það þurfi fleiri admin á þessu áhugamáli. Hvað segið þið um það?

Hvaða stöðu mun LeBron James spila hjá Cleveland?? (1 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
LeBron og Darius Miles hafa nefnilega verið að spila á undirbúningstímabilinu sem PG, en Paul Silas, þjálfari Cleveland, hefur sagt áður að LeBron mun ekki vera PG. Cleveland hefur nokkur marga leikmenn sem þannig séð gætu spilað PG, t.d. Darius Miles, LeBron, Dajuan Wagner, Kevin Ollie, JR Bremer og jafnvel Ricky Davis (þótt það væri fáranlegt að hafa Davis sem PG). Ollie og Bremer eru eiginlegir PG. Persónulega mundi ég ekki hafa Davis, LeBron, Miles og Wagner alla inn á í einu, enda eru...

Mutombo til NY Knicks (4 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Dikembe Mutombo er farinn til NY Knicks. NY Knicks eru þá komnir með fína breidd en ekki nógu gott byrjunarlið.

LeBron með sinn annan leik fyrir Cleveland (1 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
LeBron lék sinn annan leik fyrir Cleveland gegn Atlanta í nótt. Rólegur leikur hjá stráknum sem lék í 31 mín, 3-7 í skotum, 3 fráköst, 3 villur, 3 stoðsendingar, 2 stolnir, 3 tapaðir og 6 stig. Þótt skorunin hefur ekki verið neitt rosaleg hefur leikskilningur LeBron þótt mjög mikill, að ég tala ekki um miðað við 18 ára gutta sem aldrei hefur spilað í háskóla né NBA. Annars voru það Ilgauskas, 19 stig og 8 fráköst og Darius Miles, 13 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst, sem voru bestir í liði...

Fyrsti leikur Jóns fyrir Dallas í nótt. (1 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þótt þetta hafi verið æfingaleikur þá skiptir það ekki öllum máli. Jon Steffansson (eins og hann heitir víst núna) kom inn á gegn Orlando Magic í nótt. Spilaði í heilar 18 mínútur. Tók 7 skot, 1 þeirra ofan í, 2 stig, 2 fráköst og 3 villur. Þótt þetta sé enginn úrvalsleikur, þá sýnir þetta hvað hann er óhræddur. Tekur bara 7 skot í sínum fyrsta leik þrátt fyrir að hitta ekki neitt. Spurning hvern hann hafi verið að dekka og hver hafi verið að dekka hann. Held hann hafi nefnilega spilað sem...

Svar Portland við T-Mac (1 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Quintel Woods, leikmaður Portland, hefur staðið sig frábærlega í sumarleikjunum. Þetta er ungur strákur, fæddur '81, 6-8 og spilar sem SF. Er að hefja sitt annað tímabil. Tímabilið hans í fyrra var slakt, aðeins 2.8 stig í leik. Honum hefur verið líkt við T-Mac, semsagt frábær íþróttamaður og fjölhæfur en slakur varnarmaður. Var langstigahæstur í Rocky montain deildinni í sumar með 28 stig í leik

Fyrsti æfingaleikur Dallas fyrir tímabilið var í gær (2 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Dallas mætti Utah í gær í æfingaleik. 19 leikmenn Utah komu við sögu sem er hreint ótrúleg tala. Nýji leikmaður Dallas, Antawn Jamison var bestur í liði Dallas og hitti úr 8 af 13 skotum sínum og var með 16 stig. Jón Arnór kom ekkert inn á en athyglisvert að Jiri Welsch (einn af keppinautum Jóns í Dallas) byrjaði inn á en stóð sig frekar illa. Travis Best var 3. bakvörðurinn og Marquis Daniels (annar keppinautur Jóns) kom heldur ekki inn á. Finley var meiddur.

Hvernig vinnsluminni? (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er búinn að ákveða að fjárfesta í meira vinnsluminni í mína P3 IBM thinkpad 900 mhz fartölvu. Fartölvan er með núna, segir hún sjálf, 184(?) mb of RAM. Ég ætla bara að fá eins gott minni og mögulegt er, undir 15000 kr. Bendið mér á eitthvað þrusugott vinnsluminni fyrir mig á því verði??!?!?!?! Síðan langar mig líka í Windows XP. Hvernig fæ ég þannig, það er eins og að fólk fái ekki lengur diskanna með Windows þegar keyptar eru tölvur með t.d. Win XP.

Takmarka minni Windows (0 álit)

í Windows fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þegar ég þarf að hafa Windows 98 í safe mode þá finnst mér oft eins og að tölvan vinni hraðar og alveg án vandamála, eðlilega enda með enginn forrit í gangi. Ég fór þá msconfig og prófaði að takmarka minnisnotkun Windows. Ég gerði það reyndar of mikið, niður í 16 mb, og var normal mode alveg eins og Safe mode, en þar sem mín tölva er ekki með of mikið í minni þá datt mér í hug að reyna að takmarka notkun Windows í ca. 50-100 mb. Er það ekki bara hið besta mál að takmarka mb. notkun Windows,...

Hvernig finnst ykkur annars CM4? (2 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hvernig finnst ykkur CM4? Margir segja að hann sé nefnilega ekki nógu góður. Mig langar samt til að benda mönnum sem eru ósáttir við leikinn á að þegar að CM3 kom fyrst þá voru margir sem fannst hann slakur miðað við CM2. Ég spái því að þetta sé eitthvað svipað. Fyrr en síðar verða vonandi allir CM kallar brjálaðir í CM4 og vilja helst ekkert annað. Það tekur sennilega smá tíma að venjast honum. Allavega ætla ég að vona það. Ég vill ekki vera með of miklar væntingar þegar ég fæ mér hann.

CM4 of auðveldur? (0 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er reyndar eftir að fá mér leikinn, en einhverjir segja að hann sé of auðveldur og nokkuð sé um óraunveruleg úrslit. Finnst ykkur þetta rétt? Ef þetta er rétt, var þá ekkert gert í EP 1,2 eða 3 til þess að laga þetta?

Vantar hjálp! (9 álit)

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er ekki sáttur við fartölvuna mína sem er 1 árs gömul IBM Thinkpad. Intel 900 mhz með 184 mb RAM, held ég amk, ekki sá fróðasti um þessi mál. Windows 98 stýrir þessu öllu, eða allavega reynir það með slökum árangri finnst mér, en læt það nóg næga. En allaveganna, þá er tölvan nánast búinn að gefast upp. Orðinn ferlega hæg og leiðinleg. Sífellt að koma error, general failure og ég veit ekki hvað. Það nýjasta er að tölvan finnur núna ekki módemið. Ætti ég að reyna að uppfæra hana að miklu...

Varðandi MVP könnun (2 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum
Þetta er svo sem ágætis könnun, nema það að það vantar líklegasta MVP, Tim Duncan og síðan vantar Dirk Nowitski líka. Ég kaus annan.

Fantasy Game Playoffs (0 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum
Mjög skemmtilegur leikur, hefst þegar playoffs byrjar 19. apríl. Skráið ykkur fyrir þann tíma. Farið á þessa síðu og skráið ykkur. Deildin er ísland og lykilorð er ísland. Kostar ekki neitt og er mjög gaman. Maður velur 6 leikmenn sem fá stig fyrir hvern stig, fráköst, stoðsendingar og svo framvegis, síðan getur maður skipt leikmönnum. Því fleiri sem skrá sig því skemmtilegra verður þetta. http://fantasygames.sportingnews.com/crs/logout.html

Tim Hardaway kominn til Indiana Pacers! (5 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 1 mánuði
Tim Hardaway gerði í gær samning við Indiana Pacers út tímabilið. Hann spilaði í fyrra með Dallas og Denver, og skoraði tæplega 10 stig að meðaltali í leik og gaf tæpar 4 stoðsendingar, en skotnýting hans var glötuð, rúmlega 35%. Tímabilið endaði samt illa fyrir Hardaway, sem hefur glímt við meiðsli í hnjám, og þurfti Hardaway að ljúka síðasta tímabili nokkrum vikum of snemma vegna meiðslna. Hardaway, 37 ára á þessu ári, hefur auk þess spilað 52 leiki í úrslitakeppninni, byrjað inn á í þeim...

Porsche 911 Carrera til sölu (6 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=33&BILAR_ID=120051&FRAMLEIDANDI=PORSCHE&GERD=911%20CARRERA&ARGERD_FRA=1976&ARGERD_TIL=1978&VERD_FRA=290&VERD_TIL=890&EXCLUDE_BILAR_ID=120051 Þessi kom í dag á bílasölu. Bara að maður væri mjög ævintýragjarn, klár í bílum og ætti peninga til ráðstöfunar. Annars er örugglega hægt að flytja inn svona bíla sem eru í fínu lagi. Þetta er líka alltof mikill peningur fyrir það sem maður fær.

McGrady með 33 stig í hálfleik gegn Chicago (3 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Núna er hálfleikur í leik Orlando og Chicago. McGrady hefur skorað 33 stig af 63 stigum Orlando í leiknum. Nýju leikmennirnar Drew Gooden og Gordon Giricek byrjuðu báðir inn á og hafa þeir báðir verið mjög góðir, sérstaklega Drew Gooden, sem hefur staðið sig frábærlega með 12 stig, 8 fráköst og 6-9 skotum. Ég held að það sé að stefna í 50+ hjá McGrady í nótt. Þótt Chicago sé ekki sterkasta liðið þá virðist Orlando liðið plumma sig vel með nýju leikmennina. Pat Garrity byrjaði á bekknum og í...

Webber verður ekki með í Stjörnuleiknum! (7 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Webber er meiddur og verður ekki með í Stjörnuleiknum. Í hans stað kemur félagi hans hjá Sacramento, Peja Stojakovic.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok