LeBron og Darius Miles hafa nefnilega verið að spila á undirbúningstímabilinu sem PG, en Paul Silas, þjálfari Cleveland, hefur sagt áður að LeBron mun ekki vera PG.

Cleveland hefur nokkur marga leikmenn sem þannig séð gætu spilað PG, t.d. Darius Miles, LeBron, Dajuan Wagner, Kevin Ollie, JR Bremer og jafnvel Ricky Davis (þótt það væri fáranlegt að hafa Davis sem PG). Ollie og Bremer eru eiginlegir PG. Persónulega mundi ég ekki hafa Davis, LeBron, Miles og Wagner alla inn á í einu, enda eru þeir ungir, reynslulitlir og frekar eigingjarnir. Þess vegna væri sniðugt að hafa Ollie eða Bremer sem PG, allaveganna til að byrja með, því þeir eru óeigingjarnr (sérstaklega Ollie) og reyndir. En þeir eru komnir með eiginlega of marga leikmenn sem geta spilað SG-SF.

Hvað sem Silas gerir þá er alveg ljóst að einhverjir af þessum fjórum, Wagner, LeBron, Miles eða Davis verða ekki byrjunarleikmenn. Líklegast finnst mér að Ollie verður notaður sem PG, allaveganna svona fyrst um sinn.