Núna er hálfleikur í leik Orlando og Chicago. McGrady hefur skorað 33 stig af 63 stigum Orlando í leiknum. Nýju leikmennirnar Drew Gooden og Gordon Giricek byrjuðu báðir inn á og hafa þeir báðir verið mjög góðir, sérstaklega Drew Gooden, sem hefur staðið sig frábærlega með 12 stig, 8 fráköst og 6-9 skotum.

Ég held að það sé að stefna í 50+ hjá McGrady í nótt.

Þótt Chicago sé ekki sterkasta liðið þá virðist Orlando liðið plumma sig vel með nýju leikmennina. Pat Garrity byrjaði á bekknum og í stað hans byrjuðu nýju leikmennirnar sem framherjar.

Gamli Jordan er með 20 stig í hálfleik gegn New Jersey.