Það hlaut að koma að því. Terrell Brandon er opinberlega hættur. Spilaði í 11 ár frá 1991, en vegna meiðslna á hné hefur hann ekki spilað síðan 2001. Hefur farið í mjög margar aðgerðir og það var í raun löngu ljóst að ferillinn hans væri búinn. Spilaði lengst með Cleveland, Minnesota og var líka hjá Milwaukee. Var síðast hjá Atlanta en náði aldrei að spila með þeim. Þetta var góður leikmaður sem komst tvisvar í All star. Spurning hvort eitthvað svipað gerist nú með Grant Hill.
En ótrúlega svekkjandi að Brandon skoraði 9994 stig á ferlinum.