Dallas mætti Utah í gær í æfingaleik. 19 leikmenn Utah komu við sögu sem er hreint ótrúleg tala. Nýji leikmaður Dallas, Antawn Jamison var bestur í liði Dallas og hitti úr 8 af 13 skotum sínum og var með 16 stig.

Jón Arnór kom ekkert inn á en athyglisvert að Jiri Welsch (einn af keppinautum Jóns í Dallas) byrjaði inn á en stóð sig frekar illa. Travis Best var 3. bakvörðurinn og Marquis Daniels (annar keppinautur Jóns) kom heldur ekki inn á. Finley var meiddur.