Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Í myndugleika hugans (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hugfléttur hins forna fallnar bak við útsprungin orð Fágunin þrýtur undan veraldleika spotti. Dynjandi taktur þess óvelkomna hækkandi raddir þess forboðna hvæsandi vilji, sem vill ekki sigra. (Vill fá að tjá sig án takmarka þinna) Nei, skáld er ég eigi þó orð set á blað ei mun ég biðja um að vera kallaður það. En föl finnst mér oðin þó fátækleg séu ekki mun ég framar fara í felur.

hugsanadalur (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Á hverjum degi hendast hugsanir mínar fram og til baka einbeitingslausar svo fjaðurkenndar og stjórnlausar. Vettvangur minn hefur glatað tilverustigi sínu í kringum þúsundir örgjafa líkamans berast boðin of hægt, skilningi ekki náð. Ég kveiki kerti til að ylja sálarniðnum bíð eftir færi, að henda mér upp í rúm þar sem hugurinn hvílist frá veruleikanum. Tómið sem myndaðist við burthvarf þitt hefur enn á ný náð að drekkja mér svíðandi tilhugsun - að vera án þín.

skaparar lífsins (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
…..margur maður semur sig út úr báli lífisins setur spruningar við svör sem ávallt hafa verið við líði það er efinn sem stígur dansinn við þig það er forvitnin sem fær að vita svarið. ….margir halda í þá veiku trú, að örlögin séu fyrirfram kveðin raunin er sú að rithöfundur lífsins, er þegar við líði. Það ert þú sem ræður, velur þína leið Það ert þú sem hefur öll svörin . ….mörgum hefur liðið annsi illa, efasemdin nagað hvert einasta bein höfuðlausnin ei lengur fengin frá foreldrum í neyð....

netmál... (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
líkt og í smásögu ég stíg mín skref á skjánum í átt til þín. óræð orð mín vita ei hvaða svör þau fá til baka en tilfinningin er skýr. Fáum er það gefið að geta ritað sitt hjarta á blað örlagana. En þú og ég vitum þó vel að orðum fylgja athafnir. Spennan magnast í loftinu er óráðin gáta.

barnið okkar..tónninn! (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Við vorum ung, svo ósnortar fiðlur að feta hamingjunarveg Hljómur okkar sameinaðist í hjörtunum, ástin var okkar mein. Við vorum tvö, húsið, fjaran og við tvö Lífið spratt í kring, loforðin voru svo mörg, svo full af von. Mánuðir liðu án vitneskju um þær breytingar er á eftir stigu Hann kom inn í líf okkar, tónninn sem sameinaði okkur að eilífu.

hefur þú kjark? (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Megnar þú að fræða umhverfi þitt um ást? Hefur þú kjark til að staldra við þegar straumþunginn brýtur allt niður… Megnar þú að elska - án efa hvert augnablik sem til þín kemur… hverja sál - sem eftir þér bíður. Mig sem elskar þig???

minn kæri (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Minn kæri Til þín er ritað þetta bréf frá fyrstu sýn minna augna ég dáðist af þér. Tilveran hefur leikið þig grátt sál þín grátið sárt þó er líf í þínum augum. Orð, hvað eru þau? eintómir stafir ritaðir á blað aðeins augu mín geta tjáð þér hve títt mér er hugsað til þín. biðin syttist þó endir í upphafi ég mun bíða þín…

vernd (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Hönd í hönd snerting sem hrífur styður… Móðir og barn eilíf eining vernd í neyð… Með orðunum þínum þú lyftir mér yfir hugsanir mínar… Móðir er aðeins sú sem maður velur…

satt eða logið??? (4 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 8 mánuðum
… Það tekur fólk misjafnlega langan tíma að trúa því að eitthvað gott sé að gerast fyrir það. Ástin á sér kannski ekki alveg jafn greiðfæra leið að öllum, þó svo að þráin eftir henni sé eins sterk og mögulega verður ákosið. Að treysta getur reynst sumum eins og að gefa frá sér hluta af sál sinni, hluta af fortíð og framtíð, hluta af von um einhverskonar endalausa sameiningu. Ég held að það sé traustið sem oft endar sambönd, þegar fólk hættir að treysta hinum aðilanum til að elska sig jafn...

hamingjan í óhamingjunni.....(falskar vonir) (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Og hvernig veit ég, þegar skuggar mínir þekja Þann veruleika sem ég bý til Að ástin hefur eflaust bankað uppá hjá mér Bið í vonlausum tíma, talið sem að eyrum mér berst Orð svo eintóm án nokkurs Innihald þess tóm í fjarska. Orð segja oft það sem þau vilja heyra Endurspegl þess sem þau merkja Jafnvel þó reikningurinn sé ekki neinn… Þessi undurfallegu kynni Fuku þá burt líkt og ofvaxin spilaborg Sem byggð var upp með þrá. Logar þínir skutu mig á viðkvæman stað Stað sem fáir hafa mætt, og...

til að elska... (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mánablik þú skæra ljós Lifgar himin björtum ljóma Fimur gljái af skærri sól Skýn á þig til baka. Tilraun sálarniðs sjálfsins Svo undarleg tilfinning Hef glatað ást margra manna Hef glatað góðum gest. Tilraun að baki skrifað blað Kemst hún sál mín til þín Skilaboð ljóss Sem aldrei var skilað til baka. Tunga mín ber, sem skjóldur án sverðs Og áfram tifar heimsins klukka Lífið er þeim allra verst Sem lifa til að elska.

tilraun... (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Mér mistókst að fanga þig að gefa þér séns á að kynnast mér mér mistókst að verð þín… Að gefa þér mig er ekki það sem ég þrái, heldur að þú verðir minn…. óaðskildur misskilningur tveggja sála þess sem aldrei mun verða… Kveðjumst án þess að heilsa kynjakvöl er mál manna á þessari jörð… Vertu sæll, ég kveð um stund vertu sæll, vertu glaður og líf mitt verður fullkomnað…

hvað er að frétta.. (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hvað er að frétta ég spyr mig æ að því hvert stefnir þú hver leiðir þig nú?? Spurning án svars er leitað á ókunnugum stað ég sakna þess að sjá þig ég sakna þess sem var… Að vera, án þess að vera kvelur mína stoltu sál að vera án þín mér batnar… Hvert stefnir þú?? án leiðarvísis þú ratar í átt til þess sem er þess sem mun aldrei verða… Að sakna bros sem aldrei var ætlað að verða mitt!!!!

Enskins er saknað (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég vakna oft svo stúrin og leið finnst sem lífið sé staðnar og allt sem ég áður kveið á sér engan stað í mínu hjarta. Sólin hefur lýst mér veg til þess sem koma skal enginn til staðar, enginn hér kveðja sem enginn saknar. Komandi dagar byrja á núll greiðfær gatan, auðn tækifæri sem erfitt er að hafna bærast allt í kring. ljóslifandi ég vakna það er víst litlu að tapa ást, sorg eru félagar sem fylgja mér alla leið… burt frá þér burt frá sjálfri mér í ferð sem enginn hefur planað…

lífið byrjar sitt stríð (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Reykkafari sálarniðsins sigrar Brátt hefst lífið Tók því að gráta og syrgja Tók því að gleðjast og syngja Barátta kyrrðarinnar Við hljóðið Þögn andans og sjálfið Þögn holdsins og blóðsins. Trú að batnandi mönnum Ber ætíð að lifa Betur en öðrum Betur en öllum öðrum. Niðurstaðan aðeins ein Brosið sem í andlit er smíðað Verður að lifa Verður að notast í neyð.

úr skorðum (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Kyndug lá hugsunin vonlaus og blíð Hvikandi sjávarföllin herja á ný Ótroðnar slóðir, hefst nú þín leit Í augsýn skýn hrottugt takmark… Tókstu á skarið líðandi þjáð Hugsana dalur hann fyllist í bráð Bólstaður örlaga, fer nú á flot Tindrandi ljóslogar blinda. Gufuð upp í vonleysis óð Hvatning sem aldrei var komið í orð Tungan hún brást, sem forðum Ástin hún fór víst út skorðum.

draumurinn (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Sit í draumi Veruleikann flý Hugur býr til sýnir Af okkur. Hefði ég aðeins Hefði ég þá? Stundum eiga óskir Sér ekkert mál. Dagurinn vaknar Af ljúfum svefni Augun opnast Án sýnar. Í burtu skolaðist Draumur minn Sá draum er mig dreymdi Um okkur.

Andartak... (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
og andartaki síðar opnast þér dyr. Þú fetar hægt lítur ei við. byrtan á þig kíkir feimin þú hikar stigur út á grasið lítur ei við. Tekur stökk og hoppar kætin iðar í kring náttúran unað þig vefur elsku grásnoppan mín.

eldspýtustelpan (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
það er byrjað að snjóa þú kveikir þér yljandi loga sárt kallar líkaminn kvelur þig svengd… vængir þínir lúnir þreytt þú leggst í snjónn bak við húsvegginn bak við dauðann þinn… myndir á veggnum lýsa þig upp draumkennd fegurð fullkomleikans þú reynir, getur ekki staðið upp í fang ert þú reirð, tekin burt… Að lokum þú fékkst að borða fullnægð af öryggiskennd í fangi sem þig elskar í fangi ömmu í kvöld. Var að lesa söguna um eldspýtustelpuna fyrir son minn..og vá hvað hún er sorgleg, táraðist...

kveðja... (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þetta er ekki ljóð, veit ekki alveg hvað á að kalla það en læt það flakka…… Stoppa, ganga að þér og bara, taka utan um þig svo fast, svo þétt að efi þinn fengi ekki að anda og hugur þinn ekki fá tækifæri til þess að hafna. Sleppa þér með hljóðri kveðju og ganga í burt líkt og ekkert hefði gerst … og sagt bless…..

sál mín.... (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Endurspeigl vatnsins mynd í gárum dansar léttleitar strokur strjúkast um vangann. Þögnin ráfar um loftið snerting vatnsins svo mjúk leyndarmál, varlega er farið sál mín svo ástfangin og sjúk. Blik í bárum glettið bros í senn þú huggar mig mun ekki bugast, gefast upp ég mun eignast þig…… ;)

tuðra...bara bull... ;) (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Tilverubrestur, kominn er gestur bjóddu honum inn. Fáðu þér sopa, hættu að ropa girtu þig Finnur minn… Sólroðinn sætur, held hann sé ætur ræðst hingað inn. Tómlegur bakkinn, farinn er skrattinn niður í kistilinn sinn…. Vorhalur líður, dagurinn bíður skýnandi friðurinn. Á dyrnar er bankað, hann hefur þá rankað helvískurinn….

brothættir vængir (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
dagurinn kólnar við fætur þér mær undrið í augum ei lengur nú hlær. sál þín í dvala þú syrgir þig æ á leið ertu burt mitt lífsleiða hræ. kvelur þig þorsti kvelur þig svengd þráir að lifa þráir að deyja þráir þitt líf að leggja í sæng. Laufa,,þetta er til þín en þó með von um að lífið sigri ;)

leyt að engu (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Á ystu brún jarðar hef ég leytað þín að ystu brún hjartans Sægræn augu horft milli himintunglanna um miðja nótt mynd þín umvafið mig án nálægðar og þú enn spurning án svars…….

er það hægt? (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Stingandi sviði vekur mig augun opnast til hálfs. Skuggar hreyfast allt í kring dinkir sem ekki stoppa. Þögnin svo full af hávaða hljóðið sker mig á háls. Myndir byrtast, hverfa á ný í rökkrinu byrtist þú. Útsprungin rós við koddan í falleg augu er horft. Þú komst þá aftur Þú komst þá ást…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok