Sendi óvart ljóð eftir aðra en mig á ljóð,,en er nú búin að uppgötva korkinn,,,þannig að ég ætla að senda hérna inn ljóð sem er alger snilld að mínu mati. Ljóðið er eftir Jakobínu Johnson. Vögguljóð. Ég held um smáa hendi, því gatan hér er grýtt, þá get ég líka fundið, hvort þér er nógu hlýtt. Ég veit mér skylt að ráða og rata fyrir þig. - en raunar ert það þú, sem leiðir mig. Æ, snertir þú við þyrni? - Hann fól hin fríða rós, og fögur tárin myrkva þinna þitt skæra hvarmaljós. Mér rennur það...