Reykkafari sálarniðsins sigrar
Brátt hefst lífið
Tók því að gráta og syrgja
Tók því að gleðjast og syngja

Barátta kyrrðarinnar
Við hljóðið
Þögn andans og sjálfið
Þögn holdsins og blóðsins.

Trú að batnandi mönnum
Ber ætíð að lifa
Betur en öðrum
Betur en öllum öðrum.

Niðurstaðan aðeins ein
Brosið sem í andlit er smíðað
Verður að lifa
Verður að notast í neyð.