Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ljúfa..... (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Svo skær að himin er feiminn, svo heit að sólin er köld, þú lítur á allan heimin, sem leir í þinni hönd. Kannt ekki að gráta, né syrgja, leiðann þú þekkir ei ert svo ómannleg vera, svo glöð af ást til alls…. Í þínum heimi fæstir vilja vera halda þú kveljist svo sárt, hatir þinn veraldalega heim Þora ekki að nálgast þig af ótta, þeir smitist þora ekki að hleypa þér inn…. En þú bara brosir við öllum, hlærð inn í þér svo laus af áhyggjunar kvölum, svo laus af öllum þeim. Þér fær enginn...

lítil hönd... (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hún gleymist þér seint í minni sú ljúfa hrukkótta hönd sem eitt sinn þú hélst í þinni sem eitt sinn var hér við völd… Hve djúpt geta tárin runnið og andan hrekið á brott hve sár geta sárin spunnið þitt ískalda móðurbrjóst…. Við vöggustofn þú situr “ hvar ertu mín litla hönd?” nú situr þú eftir svo bitur svo tóm, af kærleiksins ón… Skyldi nokkur önnur hönd, megna að fylla þetta tóm???

Ómur hjartans... (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ómur hjartans er slær, kallar. Trumbur sála er mætast, staðna. Vökul augu líkamans sáryndi sem aldrei þagna. Hún veit, finnur, það er erfitt að anda. Hver sekonda svo full af ótta. hver mínóta full af kvöð… hún veit það er sárt að elska. Í þögninni, allt hljótt. skilaboð í myrkri, Hún bíður sem fyrr, og myrkrið skellur yfir, loks komin nótt… loks komin góða nótt…..

yrroS..... (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ljúf rödd, blakandi vindur hvíslandi leyndardómi viskunnar til mín held það sé að koma hríð, held það sé liðið að því. Það eina í valdi mínu er að bifast ei neitt, hræðast ei neitt bíða þess sem koma skal, án þess að óttast. Ljúf rödd, hvíslandi að mér Vertu sterk, sterkari en ég, vertu hörð, harðari en skel…. Og víst kom stormur, víst grét ég örlög sem réðust af þér. Röddin laug ekki, né hæddist að mér, ljúf hún sagði mér satt. Brátt mun þó byrta þó erfitt það sé, að missa. Skref mín þung,...

byrjun.. (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ný byrjun, nýtt skref tifandi flotti, enginn veit hvernig fer enginn veit hvernig allt er. Fólk að flýta sér. kannski það sé satt að haustið breytir öllu, laufin sem falla, hverfa laufið sem fellur deyr. Ný byrjun hjá þér. Þú skiptir um stað, leggur á flótta, reyna nýtt líf byrja upp á nýtt, haustið það bjargar haustið það fargar. Og þú svo aleinn á ný. Erfitt að sleppa taki það liðna enn fast við þig þú hrasar, en mundu að batinn er við hliðina á þér er þegar hjá þér. Þú munt sigra, hvernig...

sjáðu...... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
sjálfsagt, er orð sem ég fæ ekki skilið því hvað er svo sjálfsagt sem vera ber það að lifa er einstakt, og eitthvað svo gaman, ég skil það þegar ég sé þig… Þú skynjar heiminn, svo tæran og skýran finnst allt vera svo yfirnáttúrulegt, þú syndir í myndum sem svífa í hugann og brosir svo innilega hlýr… Litlu hendurnar snerta, þér finnst allt svo mikið fjör og augun full af spurningum sem þyrstir í svör… Þú sérð allt sem nýtt, því það er nýtt fyrir þér og ég skynja hversu merkilegt allt er…því...

isúf...... (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú ert bros, þú ert ljós þú er gull hvers hjarta þú ert blóm, þú ert rós þú ert sem skærasta stjarna… Þú ert bros, þú ert byrta þú ert draumur hverst huga þú ert von, þú ert þrá, þú ert sá sem ég vil………

Má ég..... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
Má ég einn daginn elska þig kyssa þig bræða þig. Má ég einn daginn eiga þig narta í þig éta þig. Má ég einn daginn verða þú falleg frú falleg þú…….???? Erfið orð, svo erfið skref geng að þér og brosi veit svo vel, veit það vel þú ert ekkert hrifinn af mér…. Langar samt, þrái að segja þér svo margt, hjartað hefur valið sitt valið að elska þig…… Ég veit ekki, hvað það er sem dró mig í þinn heim brosið þitt, og augun blíð bræddu mitt særða skinn…. Ég bíð hér enn, ein eftir þér bíð, þó svo...

og...... (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
og…. Skjálfandi situr hún og hugsar til þín og þú svo langt í burtu…. Skjálfandi sefur hún dreymir um þig og þú svo farin í annan heim…. Hún skilur ei Guð eða hvað það er, var sem ákvað það. Að taka þig burtu frá sér hver, og hvað það er? Og enn líða árin og kvölin hún deyr, með ástinni fögru, sem hjarta hennar sveið. og enn koma dagar, og enn kemur nótt enn skelfur stúlka við legsteinsins gróf…

of heitt... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
að elska of heitt, getur verið sárt…… Ég elska þig svo heitt þú litla viðkvæma sál, þrái að gera þér vel þrái að þú verðir sátt…. Ég elska þig OF HEITT þú viðkvæma lilja vill þér allt hið besta vill að þú finnir þig…… Það er svo sárt að elska en horfa svo á þig hverfa svo sár, svekkt og reið svo ótrúlega leið……. Vildi ég gæti sagt þér hug minn og hjartansslag, vildi þú vildir hlusta vildi að þú vildir það…… Þú yndislega lilja þó svo veðurbarin og föl Þú getur alltaf komið aftur þú getur...

dans... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Í dansi svo ódauðleg vera hvar vil ég vera kannski á fjarlægri ströndu með hvassri haföldu strokin af ylvolgri gust… Með augun hálf lokuð í dinjandi tónarúst ég flíg og hef mig á loft engin sem spyr né svarar aðeins dansinn og ég í nótt… og það er svo gott…..

hver er hvað? (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Efi hvar stend ég? líkt og stórgerð mjöll falla orð á herðar mér þyngja mér um gang og má út slóðir sem áður virtust færar… Ég lítil í fannhvítri örk án tengsla við það sem á undan er gengið grunlaus um allt er á eftir kemur… hver er hvað???

Draumar (5 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Að vera bergdreyminn,,, er að dreyma fyrir einhverju sem á eftir að gerast, eða það sem maður á eftir að upplifa af ákveðnum atburðum…. En þegar spurningu er svarað í draumi…en samt svarað þannig að það er talað undir rós…hverju á maður þá að taka mark á? og á maður að taka mark á því sem er sagt við mann í draumi? Þegar rödd segir manni hvað verða vill… Mig dreymdi um daginn að ég var að spyrja hvenær ég myndi hitta sálufélaga minn….. svarið var mjög skýrt en pínu óhugnarlegt,,þar sem mér...

sumar.... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mín ást er engum blómum lík og varla talin slík Ég finn þó ávallt ilm þeirrar þrá.. og engum það segi ég frá… Mín ást er engum fuglum lík og varla talin slík Ég finn þó að hún flýgur hátt eins og örn um miðja nátt…. Mín ást er engum öðrum lík og varla talin slík Ég elska þann sem ekki má og engum það ég segi frá… Mín ást er eins þoka sem þekur hugann minn Ég elska þig og augun þín manns sem brosti til mín…. hummmmmm?

að sjá þig..... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
sláttur hjarta míns… ´Mín sál er ætluð þér víst fullsnemmt það er að segja hvenær þú tekur eftir mér hvenær ég get hætt að dreyma… Að hafa þig enn í huga sem syngjandi fugl í tré sem sól sem yljar að innan sem ást sem ekki er séð… Ég muna þig, mun þig ávallt og finna fyrir þér því þú ert sálin, sem ég þekkti og þekki víst ennþá enn..

byrta.. (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Byrta…. þokuslæða yfir öllu eins og niðdimm nótt. augun vot af tára vatni engum verður rótt. Dvelur stúlka á skýjarhnúk, sem grætur vonir,draumar, óskir sem hafa engar rætur… Lífið hlær að sorgum okkar allra, þroski er það sem menn, það vilja kalla…. eða hvað???

bara sárt... (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Eitt af því sem auðveldar manni svo oft til að tjá sig með ljóði, er þegar eitthvað tilfinningalegt hendir mann…. hvort sem maður er að uppgötva nýjar tilfinningar, upplifanir eða bara sorg og gleði… sorgin hljómar þó ætíð svo fallega sé henni hleypt út í hjóðri bæn um betri tíð…eða það held ég. Fallegustu ljóð sem ég les eru ljóð á minningagreinum,,þakklætið til ´lífsins og gleði yfir gömlum kynnum verður svo sterkt tákn um þá ást sem við bárum til þess látna… en önnur sorg eins og að missa...

hvað er satt.... (15 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég hef alveg brennandi áhuga á öllu sem er kallað dulræn fyrirbrigði, hvors sem um er að ræða heilun, miðlun, spár,drauma, og allt sem kemur nálægt því sem við getur ekki sannað eða haft áhrif á… Ég hef lesið mér mikið um þetta allt saman, og er jafnframt ´pínu næm´ og hef dreymt fyrir hlutum í lífi mínu.. En hvernig veit ég fyrir víst að þetta séu ekki bara tilviljanir? Þó svo ég fái hnút í magann rétt áður en einhver hringir eða kemur, eða dreymi um ákveðinn hlut sem síðan rætist stuttu...

Mannstu...? (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mannstu mig??? Mynd á vegg sem mæðist út og verður aðeins línur og krass á mynd hugans í fjarlægð þinni þú verður sem fegursta skart… Þó minning þín eldist og horfin sú stund verður hjartað sem grisjað sár, því bros þitt var ljósið sem sagði mér allt sem sálin þráði að fá… Svör sem fengust án orða, án hljóðs ég man þig um eilífð alla, því hjartað það valdi þó valið var sárt, þú hvarfst, sem tifandi alda…

það smáa.... (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það smáa.. Ég tifa á mjúkum hnoðra í rökkri þess stingandi skugga og leiðin svo þokukennd og aum leið mín svo tilgangslaust raul. Ég tifa því tíminn hann glymur að verða sem mest að gera sem mest Í margmenni svo smá, svo einföld tifandi,leitandi, að því sem ekki sést. Og þú sem stendur mér fjarri geltir sem óður hundur Hver ertu hvaðan ertu hvert ertu að fara hvert ertu að fara Ég flýti mér, því tíminn hann glymur og brátt verður þokan öll lífið sem mann svíður horfið í skuggana þögn…. ArNa Br.

platón (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
…platón… hvar ert þú sól mín sem skein svo björt eitt sinn hvar ert þú sól mín sem yljaðir sálarnið hvar ert þú sól mín um vetrarkaldan dag hvar er sú sól sem ekki sést í dag Í yl minningar þinnar ég bíð að brosir þú til mín á ný sólarlaus í von að komir þú aftur mitt vor og yljir mér með kossi, og yljir mér með þér….. ArNa.B.

útrunnin von.... (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ást…. Ég henti skel í ósk minna drauma leytandi að þér… ósk mín með öldu rann til sjávar “óljós er stefnan þín” Sólin hvaddi settist niður hljóð hún svaraði minni bón ljúfur draumur… engin veit hvernig fer engin veit hvernig fer… ArNa BrEiÐfJöRð……
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok