Ég er alltaf í gallabuxum… finnst þær bara fara mér best og líka bara þægilegar. Ég er vanalega ósköp venjuleg, í galló og sætum bol, stutterma eða langerma. Einu skiptin sem ég eyði tíma í að velja mér föt er þegar ég fer á djammið eða í vinnuna (vinn á skemmtistað og það er ákveðið dresscode þar, maður má ekki vera í hverju sem er) Það skiptir reyndar engu máli í hverju maður er, bara að það passi manni og eigi við karakter manneskjunnar. =)