Hvernig föt? Hvernig föt klæðistu? Hvort ganga flottu fötin fyrir eða þau þægilegu? Ef þú ert að drífa þig eitthvert út á morgnanna ferðu þá bara í einhver föt? Stendurðu tímunum saman fyrir framan fataskápinn hjá þér að velja föt fyrir bíóferð?

Ert þú þannig týpa sem ferð með mömmu þinni útí búð að kaupa föt? Ertu týpan sem fylgist alltaf með tískunni og passar að fylgja henni? Eða ertu kannski týpan semferð þínar eigin leiðir í tískunni? Endilega svarið bæði strákar og stelpur því ég vil vita skoðun ykkar.

Ég var svona að velta þessu fyrir mér og vill endilega fá að vita ykkar skoðun.

Ég sjálf… Þægilegustu fötin sem ég á eru gallabuxur og annaðhvort bara venjuleg hettupeysa við eða hlýrabolur og langerma netabolur. Það fer eiginlega eftir því hvert ég er að fara….
Computer says no