Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég verð að segja að Kommúnismi er því miður ekki nokkuð sem að hefur náttúrulega aldrei verið reynt. Því að þau ríki sem að hafa tileinkað sér þetta enda gjarnan sem einræðisríki. en svona ótengt langar mig að benda á þennann link. Þar sem að stjórnmál eru útkýrð á einni blaðsíðu. http://www.geocities.com/Petsburgh/Farm/9416 /politics.html

Re: arne arhus

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrir um 10 árum tók ég Strætó í Danmörku og þar var gefið til baka og ekkert mál. Ég man að ég var bara svo hissa þegar ég gat fengið til baka. Hvað varða kortavélar er það bara spurning um útfærslu þú þarft ekki endilega að vera með posa. Það eru margir möguleikar í boði verst að það sé ekki neinn hjá Strætó sem að myndi vilja gera tilraun til þess.

Re: arne arhus

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Er ekki bara málið að gera þetta bara nógu erfitt í notkun. Þannig að fólk hætti að nota það og þá þykir mönnum það kannski óhætt að leggja það niður. Nætur strætóer ekki síður hluti af samgöngukerfinu en annað. En það að menn þurfi að borga sérstaklega í þetta er náttúrulega ekki mikið vit. Síðan veit ég ekki til þess að strætó hér geti gefið til baka eða taki kort. Þetta er náttúrulega bara orðið á eftir samtímanum.

Re: Strætó

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
en jú 4500 það er samt næstum heill bensíntankur. En ég bara til gamans fór á síðunna hjá strætó og kannaði það hvernig mér myndi ganga að taka strætó í vinnunna og eg komst að því að ég yrði í besta falli 30 mínútur að komast(miðað við að áætlunin vagnsins standist) en ég er rétt rúmar 5 mínútur að keyra þetta óháð umferð.

Re: Strætó

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er einmitt alveg fáránlegt að ætla sér að gera þetta á einhverjum árum. Ef að fólk missir trú á þessu hættir það að nota kerfið og fer ekki að gera það aftur. Helsta vísibendinginn um það hvað þörfin á úrbótum í þessum málum er mikil er gífurlegur bílastæða vandi við menntaskóla. Meðan ég var í menntaskóla þá hafði ég margt annað við peninginn að gera en að reka bíl en gerir margt menntaskólafólk einmitt það.

Re: Strætó

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
En þetta hljómar kannski fáránlega, en af hverju þarf hlutur eins og Strætó sem er greinilega þjóðhagslega hagkvæmur að skila hagnaði. Það eð hækka gjaldið einfaldlega gerir það að verkum að færri nota þjónustuna. Sem gerir það að verkum að nýuting verður verri og þetta gerir minna gagn. Indriði

Re: [WHFB] Galdrar í návígi

í Borðaspil fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Má ég benda þér á orðið skapalón. Ef þig vantar orð yfir template.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ja er það samt ekki amk skref í rétta átt.

Re: Strætó

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
1. Það er verið að flytja inn mikið af bílum á hverju ári ef það minnkar minnkar viðskiptahalli við útlönd sem er gott(meiri verðmæti verða eftir í landinu). 2. Ég er ekki að tala um að fórna bílnum. Ég myndi seint hætta að vera á bíl en ég myndi alveg skoða að fara á strætó í vinnunna ef ég gæti verið fljótur að því og ég sæi fram á að það væri ódýrara en það bensín sem ég þarf að nota til að fara í vinnunna. 3. Þó Strætó Bs. tapi pening er það fyrirtæki samt rekið af sveitarfélögum. Sem...

Re: Tolkien og Lucas

í Tolkien fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég verð að segja að ég er ekki alveg að meðtaka þetta. En varðandi atriði 2 hefði ekki verið nær að nefna að Luke og Leia eru systkin en að fara að blanda Vader í þetta.

Re: Femínistar?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Held reyndar að það sé talað um þann hóp/kyn sem er í minnihluta. En ég get ekki alveg farið með það.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég veit það nú ekki en þá bara hegðarðu þér eins og asni í nokkra daga og ert rekinn. Það er kannski ástæðan fyrir því að það er enginn til í að ráða í gegnum atvinnuleysisskrifstofuna lengur. Ekki það að ég viti neitt um það en ef ég væri búinn að fá nokkra svoleiðis myndi ég ekki taka það í mál að taka við fóki frá þeim aftur ef ég kæmist hjá því.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Já mikið rétt. Ef þú ferð ekki í atvinnuviðtal. Þá færðu varla mikið af atvinnutilboðum.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er nú ekki neitt mál að komast hjá því ef þú vilt. Lætur bara eins og hálfviti í atvinnuviðtalinu. Stendur þig bara nógu illa og lætur reka þig. Þannig að þetta er held ég ekki neitt sem að þeir sem að vilja ekki vinnu setja neitt fyrir sig.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Eins og ég sagði sjálfur. Ég myndi vinna hvað sem er. Atvinnuleysisbætur væri það síðasta sem ég myndi gera. En hvað hver og einn gerir þegar hann missir vinnunna er undir honum komið. það er svo einfalt. Ekki ætla ég að segja neinum að fara að skúra gólf eða vinna á leikskóla en þetta eru nú samt störf sem að þarf að vinna. En ég ætla mér ekki að fara að ákveða það fyrir einhvern að hann skuli sinna því. BTW. Ég væri alveg til í að prófa að vinna í leikskóla en ég efast um að ég enntist daginn.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er heldur ekki það sem að ég sagði. Ég sagði ekki neitt um það að menn ættu að fá að velja þá stöðu sem þeir vildu. En ef þú ert að segja einhverjum að fara að vinna við þetta af því að þú ert karlmaður. Ertu þá ekki að segja honum að hans starf sé þetta af því að hann er karlmaður. Nú er engin ástæða til að fara að sverta leikskólakennara enda mikilvægt starf en ég efa að það henti öllum.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jú mikið rétt, þakka þér fyrir. Starfið þarf að vera á lausu. En eiga menn að fara að vinna störf sem að þeim finnast leiðinleg. Síðan er þetta líka ekki sanngjarnt gagnvart vinnuveitandanum sem að telur sig vera kominn með starfskraft með þeim kostnaði sem fylgir því að setja hann í starfið, nema hann hleypur í burt um leið og starf honum við hæfi birtist.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ha! Var ég að segja eitthvað um það að maður ætti bara að fá að velja sér stöðu, pant vera forsætisráðherrra! Menn verða auðvitað að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til starfsins. Það sem ég er að segja er það að á sínum tíma var verið að segja konum við hvað þær ættu að vinna. Nú er verið að segja við Gunna að hann eigi bara að fara að vinna við leikskóla. Þrátt fyrir að hann hafi ekki áhuga á því. Ég er heldur ekki að segja að menn eigi að hafna vinnu sem býðst, ég sjálfur myndi vinna...

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvað ætli þetta hafi oft verið sagt við konur á þeim tíma sem að þær nutu ekki sama réttar og þær gera í dag. Bara að benda á kaldhæðnina.

Re: RÁÐNINGARSKRIFSTOFUR - fyrir hverja ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er samsagt alveg vita gagnslaust fyrirbæri. Sorglegt þar sem að þetta væri einmitt eitthvað sem að væri gott fyrir þá sem að missa vinnunna til að komast aftur á fætur. En gegnur náttúrulega ekki ef þeir eru að fara að gera fólki upp kröfur til að réttlæta það að senda það ekki í viðtal eða taka það einu sinni til greina.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jákvæð mismunun, er það að ef að um er að ræða jafn hæfa einstaklinga af mismundi hópi þá eigi að ráða þann sem að er í minnihluta í stéttinni. En nú er það svo að þú munt ALDREI fá tvo einstaklinga sem að eru nákvæmlega jafn hæfir. Sá sem að ræður þarf aftur á móti að meta það hvort að hann geti ráðið þann sem að hann vill í stöðuna án þess að eiga það á hættu að hinn sem að er í minnihlutahópnum fari í mál. Þess vegna endarðu á því að ef þú ætlar að ráða þann sem að er í meirihlutahópnum...

Re: Einelti feminista

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ja ok. Ef þú lítur á það sem að femínistar hafa verið að gera undanfarið þá er sífellt verið að gagnrýna karlmenn beint og óbeint. Það að vera alltaf að tala um karlmenn á neikvæðum nótum getur vel flokkast sem einelti amk hlýtur það að hafa áhrif á sjálfsmynd karla.

Re: Einelti feminista

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég verð nú bara að segja að það er einfaldlega brot á jafnréttis lögum að meina konum aðgangi að strippstöðum á þeim grundvelli að þær séu konur. Væri hugsanlega hægt að gera prófmál úr þessu. Kannski ekki ósvipað og einhver maður sem að fór í mál við kvennfélag vegna þess að hann fékk ekki inngöngu. Hann vann málið að ég held.

Re: Einelti feminista

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér reyndar datt þetta bar í hug á staðnum, en þetta er reyndar glettilega góð hugmynd þegar maður pælir í því.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er akkúrat málið. Það er nú svo að ég efa að þessi lög standist stjórnarskrá en hún er nú einu sinni fyrir ofan öll lög og reglugerðir. En í henni stendur að konur og karlar eigi að njóta sama réttar í hvívetna. En mér sýnist vanta eitthvað upp á það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok