Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Leitun til hægri

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jamm en það er verið að gefa í skyn að nasismi og fasismi sé hægri stefna sem það er ekki endilega.

Re: Leitun til hægri

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mæli með því að menn kíki á eftirfarandi http://www.politicalcompass.org/ Ef menn vilja sjá meiningar um hvort telja megi eitthvað hægri eða vinstri stefnu.

Re: Bíó

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki að tala um að ég sé að missa 15 mínútur. Heldur missa allir í bíósalnum 15 mínútu. Þetta væri ekki neitt vandamál ef þetta væri ekki viðtekin venja. Þarna er ég raunveruleg ekki að fá það sem að ég borgaði fyrir. Myndin hefur auglýstan byrjunartíma og ef ekki er um vélarbilun að ræða á að standa við hann.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ok þetta skal ég alveg taka undir. Ég sé ekki neitt athugavert við það að reyna að gera þetta að betra þjóðfélagi með meiri umhyggju fyrir þegnunum. En ég get samt ekki samþykkt að kommúnismi gangi upp. mikið til af þeim ástæðum sem ég er búinn að nefna.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég fletti þessu af gamni upp í Britannicu online. http://search.eb.com/ebi/article?eu=295581&query=comm unism&ct= en fyrir þá sem að vissu það ekki þá geta allir á íslandi notað britannicu online að vild.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
En samkeppni er nú einmitt af hinu góða hvetur okkur til að gera betur. Auk þess þarf alveg massífan heilaþvott til þess að fólk fari eftir því að taka aðeins það sem það þarf. Ég vona að það sé ekki það sem að þú ert að leggja til. En ef ekki er nægur matur(það getur gerst þrátt fyrir að allir leggist á eitt). Hvernig á að koma í veg fyrir að maturinn klárist þegar hluti er búinn að taka það sem hann þarf.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ok ég hélt að það hefði verið undir Lenín.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nei að sjálfsögðu vinna ekki allir hjá ríkinu. En þetta eiga semsagt að vera svona löggukommúnur og spítalakommúnur o.s.frv. Eg bara verð að játa fáfræði mína en ég bara sé það ekki virka. Ég er heldur ekki enn búinn að átta mig á því hvernig þú ætlar að sjá til þess að flæði hráefna sé nægt. Það eru engir peningar. Þannig að sá sem að þiggur hráefnið greiðir ekki neitt fyrir það. Ef það eru síðan fleiri en einn sem að vill fá hráefnið hvernig á að ákveða hver á að fá það. þessi téðu...

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það breytir því ekki að þú þarft samt að stýra gæðum frá framleiðanda til neytanda. Það hjálpar mér ekki að fá mjólk að hún sé til á Akureyri. Það þarf ennfremur að sjá til þess að hráefni berist framleiðanda þannig að unnt sé að búa til vöruna sem búa á til. Þessu verður að stýra. Enda var Lenín að gera tilraunir með þetta þangaði til hann féll frá og fór raunverulega mjög illa með Rússland með þessum tilraunum. Það breytir því ekki að líklega höfðu Rússar það betra undir kommúnisma en...

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Einræði og kapítalismi er ekki það sama. Kapítalismi byggist á því að sá sem á peningin ráði. En einræði á ekki neitt skilt við það. Einræði er mun algengara en Kapítalismi.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú getur alveg eins sagt að það sé ástæðan fyrir því að capítalismi er ekki að ganga upp sem skildi. Getur GWB ekki bara alveg eins sagt að hann muni hætta að eyða pening í hermál þegar allir séu orðnir hliðhollir BNA.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Bara senda þeim orkureikninginn. ;)

Re: Barnaþrælkun – kemur mér ekki við !

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Alveg sammála þetta er viðbjóður en ég reyndar kaupi mjög lítið af þessu sem að þú taldir upp. Það er ennfremur sjálfsagt að hvetja alla til að forðast að kaupa þetta. En það er nú samt ekki nóg ti lað koma í veg fyrir þetta væri frekar að ráðast að rót vandans. Það mætti með því að skapa valkost fyrir það fólk sem að er verið að þræla út. Það er nefnilega gallinn við þjoðfélag eins og BNA þar sem að víðtækar reglur eru um réttindi fólks. Þær eru leystar með því að fremja glæpinn í öðru landi.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Af hverju þarf að taka hann upp í öllum heiminum. Sovíet blokkin náði yfir það stórt svæði að þar var að finna allt sem að þarf fyrir þjóðfélagið ef þú telur Kína með(víðtækt samstarf) þá hefði ekki verið neinn vandi að sjá til þess að þar væri allt að finna sem að þyrfti. Ef að landið sem að um ræðir er nógu stórt og með nægar auðlindir ætti það alveg að ganga í kenningunni en því er ekki að skipta í raunveruleikanum. BTW. Kommúnismi og sósíalismi er ekki það sama.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ja jú veistu ég veit sitthvað um kommúnisma. Þetta með peningana er einmitt nokkuð sem að ég ætlaði að nefni. En nóg um það. Ja þú segir að það sé engin ríkisstjórn. En það er nú einmitt ekki alveg rétt. Því í kommúnisma er miðstjórn. En til hvers, jú ef svæði A framleiðir fisk en svæði B mjólk þá þarf að stýra hversu mikið af fiski fer á svæði B og öfugt og þar sem að svæði H, Q og R framleiða líka fisk þarf að sjá til þess að þau fari ekki að framleiða of mikið. Síðan eins og hérna á...

Re: Bíó

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ja hvernig virkar það á maður að sjá sömu mynd annars staðar, varla. Fyrir utan það að þau gera þetta öll.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Alveg rólegur. Kommúnismi virkar í hugsjóninni en að virka í alvörunni getur verið erfiðara. Ég ætla nú bara að vitna í Willy Brandt sem sagði einu sinn “Sá sem er ekki kommúnisti þegar hann er tvítugur er hjartalaus en sá sem er það ennþá þegar hann er fertugur er heilalaus”. Ég held að þegar þú gefur einhverjum manni jafn mikið vald og vill verða í kommúnistaríkjum eiga nánast allir erfitt með að fara með það. Síðan eitt með þetta koncept að ríkið eigi allt. Það er engin spurning að menn...

Re: Umferðarmannvirki.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er einmitt fráleitt að þessi líklega umferðarþyngstu gatnamót landsins skuli fara ár eftir ár nánast afskipt. Er ekki kominn tími til að laga þau sama hvað það kostar. Er ekki líka kominn tími til þess að umferðarráð geri sér grein fyrir því að hraðakstur verður til vegna þess að fólk er að flýta sér. Ef að umferðin gengur betur væri líklega minni ástæða til þess að vera að flýta sér.

Re: Umferðarmannvirki.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mikið rétt.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
En varstu ekki samt að segja að fólk stundaði námið betur ef það væri ekki ókeypis. Það er það sem að ég á við með alhæfingunni.

Re:

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Er ekki lykilatriðið hér orðið meintir. Saklaus uns sekt er sönnuð. Við hér á Íslandi og í flestum lýðræðisríkjum höfum ákveðnar skilgreiningar á því hvenær menn eru sekir. En það er þegar búið er að dæma þá seka, ekki þegar fjölmiðlar eru búnir að birta frétt um málið eða þeir eru handteknir. Það er líka alveg fráleitt að nafngreina og birta myndir af þeim sem eru handteknir fyrir fjárdrátt. Þetta er stimpill sem að erfitt verður fyrir þá að ná af sér. En þetta fyrirkomulag er einmitt til...

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég bara verð að skjóta inn að ég drekk mikið frekar vatn en kók(eða gos yfir höfðuð). Mér finnst kók einfaldlega ekki gott. en hvað með það fólk er bara svo mismunandi að það er ENGIN leið að alhæfa svona, engin vafi að sumir bregðast þannig við, aðrir bara gaufast samt og ætla sér að þetta gangi hjá þeim af því að þeir séu svo klárir og leggja sig ekkert fram.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jú það er til alveg nóg af peningum og ég er sammála þér með það að viðskiptaaðferðir Nike eru hreinn viðbjóður. En þú þarft nú ekki að fara lengra en til BNA til að finna dæmi um þrælkun, þar er að finna fólk sem að fer til vinnu snemma á morgnanna, kemur heim seint á kvöldin en hefur samt ekki efni á að borga leigunna(heimild: Bowling for Columbine). Það fólk fær að vísu margföld árslaun asíu starfsmannanna í mánaðarlaun en það býr bara í mun dýrara hagkerfi. En eins og ég sagði áður þá...

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
jú jú mikið rétt. En það gefur líka alveg auga leið að það getur ekki allur heimurinn búið eins og vesturlönd. Það er einfaldlega ekki til nóg af tam pappír til að gera hluti eins og klósettpappír. Fyrir utan hluti ein og landrými.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú gerir þér grein fyrir að útópía er það ríki sem að þú sérð í draumum þínum. En ég er á þeirri skoðun að kommúnismi sé eitthvað sem að er gert af göfugum hvötum en snýst alltaf upp í andstæðu sína. Því að hann dregur mjög úr frjálsu framtaki. En aftur á móti þá er það engin spurning að mikið af neysluvöru okkar vesturlandabúa er framleitt af fólki sem að starfar fyrir það sem að þú færð á tímann á mánuði. Þrátt fyrir að það sé verið að tala um þróunarlönd er það samt að einhvrju leiti á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok