Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það myndi kannski valda því að þeir sem að hafa áhuga á vændi þyrftu ekki að fara til þess sem að hlekkjar einhvern við vegg. Ennfremur myndu þeir frekar tilkynna það ef þeir álpuðust þar inn þar sem að þeir væru ekki sekir um glæp sjálfir. Auk þess myndi það að lögleyfa vændi valda samkeppni milli þeirra sem að gera það á löglegann hátt og þeirra sem að stunda mansalið. Sem myndi minnka gróða þeirra sem að stunda mansal. Þar með væri hægt að gera það síður arðbært og þar með myndi hvati...

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Við erum kannski með mismunandi skilning á jafnrétti en ég skil það sem jafnan rétt til hluta. Svosem menntunar, vinnu, heilbrigðisþjónustu o.s.frv. Jöfnuður milli hópa er þegar báðir/allir hópar hafa jafn mikið af öllu. Ég ætla að gefa mér að þá hafir ætlað þér að skrifa nútíð. En þá verðum við bara að vera ósammála um þetta atriði þar sem að ég tel þetta ekki hjálpa neinum af þeim ástæðum sem ég er þegar búinn að leggja fram.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ok þú mátt skilja hana eins og þú vilt en það þýðir ekki að verða eitthvað svekktur þó aðrir skilji hana öðruvísi. Samlíking gengur samt eiginlega varla ef hún er huglæg.

Re: Einelti feminista

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
1. Fyrir það fyrsta þá er ÁTVR ríkisstofnun en Goldfinger einkafyrirtæki en þetta er eignlega frekar eins og að selja merki sem stendur á ég styð barnaþrælkun fyrir framan Nike búðina. 2. Ef staðurinn sem að þú ferð á stundar ekki mansal ertu að draga viðskipti frá þeim sem að stunda það. Þar af leiðandi ert þú ekki að styðja mansal heldur raunverulega að styrkja samkeppnisaðila. 3. Ég veit ekki en ef að konur vildu sjá olíuborna karlmenn væri ábyggilega hægt að stofna stað sem að sýndi það....

Re: Ólöglegur aðalfundur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ef hún er sannanlega meðlimur í félaginu er ekki neitt sem að egir að hún megi ekki taka þátt í henni.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jákvæð mismunun sem að nýtirst körlum er alveg nákvæmlega jafn vitlaus og sú sem að nýtist konum. Ég skil alveg það sem að þú skrifar en það bara gengur ekki alveg upp. Ef það er misrétti í dag þá ætla ég bara að biðja þig að finna þann lagabókstaf eða reglugerð sem að gerir ráð fyrir misrétti á annan hvorn aðilann. Fyrir utan það að ef þú ert að leiðrétta stöðuna sem er í stétinni þá ertu að leiðrétta það sem að var gert áður(sem er fortíð). BTW. ég skil alveg hvað ú ert að skrifa ég er...

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú ert bara ajálfur augljóslega ekki að fata samlíkinguna ef að þú ert með fullt af hópum með sjálfstæða stefnu, ekki reyna einu sinni að segja mér að allir hópar sem að stefna að jafnrétti séu sammála. þá er afar ólíklegt að þeir vinni saman. Þú bara hlýtur að sjá það að ef að allir sóknarmennirnir eru að reyna að ná í boltann í einu þá endar það illa.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
“Merkilegur hæfileiki sem þú býrð yfir, að geta séð skoðanir manna sem þeir hafa ekki einu sinni. Eða ertu kannske bara einn þeirra sem eru haldnir þeim leiða ósið að gera öðru fólki upp fáránlegar skoðanir?” Bíddu þú bara varst að segja að það væri í lagi að konur gengju fyrir ef að karlar væru í meirihluta. Ég bara skil það ekki öðruvísi. Það gefur alveg auga leið að ef að þú ert með jávæða mismunun þarf karlinn að vera áberandi betir til að teljast ekki jafn hæfur og þar af leiðandi...

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ja mér finnst samlíkingin við fóboltaliðið einmitt eiga við vegna þess að ef þú ert með marga hópa eru þeir með mismunandi mark(mið) og fara því að berjast um boltann frekar en markið.

Re: Ólöglegur aðalfundur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það eru náttúrulega annamarkar á þessu fundarboði en spurning hvað er hægt að gera ef að það er orðið of seint að boða til aðalfundar 1 maí er þá bara ekki hægt að halda aðalfund.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
P.S. Síðan fjallar greinin um FÍ enda hef ég ekki skoðun á öðrum femínistafélögum þar sem að ég haf ekki þekkingu á baráttumálum þeirra.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú semsagt telur það ekki að segja súlustöðum stríð á hendur að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að gera starfsemi þeirra ólöglega. ennfremur að skilgreina þá með nauðgurum og þeim sem að stunda mansal(hvort sem að þeir eru sekir um það eða ekki). Ég er ekki endilega að tala um merkin sérstaklega. Heldur er þetta búið að standa yfir nokkuð lengi. P.S. Hefurðu heyrt hugtakið “Divide et impera” eða “deila og drottna” Það væri einmitt það besta sem að þeir sem vilja ekki jafnrétti gætu...

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég verð að segja að þá verðum við að vera ósammála. Þú tekur Martin Luther King sem dæmi en hann var einmitt að berjast fyrir sínum hóp ekki jafnrétti. Hans barátta var reyndar mun réttari en femínista þar sem að lagalegt jafnrétti er fyrir hendi hvað varðar karla og konur, eitthvað sem að Martin Luther King naut ekki þess vegna var hans barátta á allt öðrum forsendum en barátta femínista. Þú ert semsagt á því að það að mismuna körlum í dag leiðrétti misrétti fortíðarinnar. Sem er...

Re: Hraði í fólkkverfum

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Reyndar væri jeppinn nær því að vera 2 tonn. Auk þess líta flestir á sem svo að 30 km hámarkshraði þýði 40 km hraði.<br><br>Öll dýrin eru jöfn, en sum dýr eru jafnari en önnur.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Og er þá rétt af femínistum að segja þeim sem að stunda þetta stríð á hendur(þú kannski fyrirgefur ef ég er ekki alveg sáttur við þessi samtök). Ekki það að mér sé neitt annað en sama þá að þeir hverfi, en mér finnst ekki rétt að vera með svona áróður.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Á póstlistum femínista var nú ekki mikið um andsvör og þeir sem að gerðu það voru ekki vel séðir. Ég tek fram að ég hef þetta einungis afspurnar vegna þess að til að skoða hann verðurðu að skrá þig inn. Til að skrá þig inn verðurðu að samþykkja ýmislegt sem ég kæri mig ekki um. Endilega ef þu veist um marga femínista sem að töluðu á móti þessu láttu mig vita. Ennfremur vil ég benda þér á að þetta er hluti af ávarpi sem var flutt á stofnfundi femínistafélagsins sem hlýtur að gefa því smá...

Re: Ljósmyndakeppni

í Ljósmyndun fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Er það ekki upplagt. Spurning hvort eigi að ákveða eitthvað thema eða bara hafa þetta alveg opið. P.S. Hvað vantar til að klára útlitið.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Thortho: Þú ert semsagt að segja að það að leyfa vændi hefði engin áhrif á mansal. En bíddu þá skil ég ekki af hverju það að banna það hefði nokkur áhrif á það hvað þþá það að banna einkadans. Af hverju er verið að banna appelsínur til að hindra það að menn geti fengið sér epli. Miklu frekar að berjast á móti innflutningi á eplum.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Thortho: Það breytir aftur á móti eki því að ég taldi mig setja fram einhver rök í þessari grein. Ef þú telur þau röng eða að þau eigi ekki við þá væri kannski betra að bara segja það.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er semsagt allt í lagi að hvetja til ofbeldis á hendur öðrum. Ennfremur er út í hött að berjast fyrir jafnrétti, en bara fyrir einn aðila.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Miles. ok takk samt. Fann ekki neitt þar. Hugzanlega hafa þetta verið fylgiskjöl í þingsal.

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég á einmitt erfitt með að sjá það gerast þar sem að ef þú tekur stétt þar sem að þú ert með mikin meirihluta af öðru kyninu og ferð gagngert að beita því þá endar það á því að þegar þeir sem þegar eru inni í stéttinni fara á eftirlaun þá skekkist þetta hlutfall aftur. Auk þess ertu alltaf að gera þá kröfu á þann sem að má mismuna á að hann sé mun betri en hinn umsækjandinn þar sem að það verður að geta verið það fyrir rétti að hafa ráðið hann. En annars var farið nokkuð ýtarlega í jákvæða...

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jú jú þeir bútuðu hann alveg í mola. Ég trúi alveg að þessi lög geti unnið á sýnilegu vændi. En það er nú einmitt kannski erfiðara að fylgjast með því sem að sést ekki. En veistu nokkuð hvar maður kemst í þessar skýrslur sem verið er að tala um?

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst væl vera kvörtun eða staðhæfing sett fram á hóp eða einstakling án þess að færa nokkur rök fyrir því að hún eigi við.

Re: Hvað er að gerast á huga!!!!

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er samt kannski óþarfi að það komi svar eftir svar þar sem að verið er að gagnrýna málfar og stafsetningu og jafnvel skort á greinarmerkjum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok