Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

icy
icy Notandi síðan fyrir 22 árum, 6 mánuðum 12 stig
“Who the hell wants to hear actors talk?”

Re: Hvolpaþjálfun

í Hundar fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mér finnst þetta bara flott grein hjá Randver. Það eru allir búnir að hrósa henni en síðan kemur þú með skítkast.. Er ekki hægt að blokkera svona fólk af huga?? Þú segist ekki vera með leiðindi en kallar hann svo Hundaþjálfarabrandar og ert bara með vitleysu… Beindu reiði þinni eitthvað annað, þetta er svo leiðinlegt. Það er eitt að hafa skoðun á málinu annað að vera með skítakast, þú biður Randver aldrei um að rökstyðja neitt af því sem hann skrifar heldur bara ákveður að vera með leiðindi....

Re: Mistök þáttanna

í Gamanþættir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
benda líka á slipups.com, þar eru fullt af slipup

Re: frá www.sjalfsvorn.is - Sjálfsvörn vs Lögin

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já, sjálfsvarnarlög í USA eru mjög lausar - en ekki hérna á Íslandi. Ef stelpa á Íslandi er að reyna að sleppa frá árásarmanni (sem ætlar að nauðga henni), hún nær að slá hann í andlitið til að sleppa og nefbrýtur hann í leiðinni (óvart) þá getur árásarmaðurinn kært hana fyrir að hafa nefbrotið sig. Stelpan getur ekkert gert ef það sést ekkert á henni. Mér finnst að sjálfsvarnarlög á Íslandi mættu vera aðeins lausari. Maður verður að vera marinn og blár til að sleppa við ákæru þó að maður...

Re: frá www.sjalfsvorn.is - Sjálfsvörn vs Lögin

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Takk fyrir að birta þetta - sem bardagamanneskja kemur það sér vel að lesa þetta.

Re: Hann Skundi kvennagull...

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hundar verða oft taugaóstyrkir þegar þeir gista annars staðar en heima hjá sér. Oft neita þeir að borða, sofa óreglulega og þurfa oftar að fara út að pissa/no.2. Það hjálpar oft að láta t.d. peysu af eigandanum fylgja með þegar hundur fer í pössun svo að hann geti sofið með lyktina af eigandanum við hliðiná.

Re: Ástæða þess að þið æfið?

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég æfi af því að mér líkar við lífstílinn sem fylgir þessu, þetta eykur einnig sjálfstraust og mér finnst gaman að kenna. Ég var anti-sportisti áður en ég byrjaði að æfa Taekwondo. Taekwondo er svo skemmtilegt, ég þarf aldrei að pína sjálfa mig til að fara á æfingu ;)

Re: Mixed

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Sammála Bernie ;) Þetta þyrfti ekki endilega að vera einhver blóðsýning, þetta yrði auðvitað auglýst sem martial arts ultimate fighting mót eða eitthvað álíka. Þar sem fólk kemur til að sjá hinar ýmsu íþróttir. Þetta myndi aldrei verða auglýst sem brútal bardaga mót, því að það myndi aldrei komast lengra en það - yfirvöld myndu stoppa það eins og skot.

Re: Freefight

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Haha, ég nota líka þessa beitu til að fá fólk til landsins, svo þegar það kemur hingað þá kemur í ljós að stelpurnar eru ekki það lauslátar ;)

Re: Mixed

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er raunin með flest fólk að það er hrifið af því að horfa á “brútal” íþróttir - sama hvort það sé siðferðislega rétt. Hvað eru margir sem horfa á box á Sýn? Horfa á þessa menn með glóðurauga út um hálft andlit og blóðnasir - fólk hefur gaman af þessu hvort sem við viljum viðurkenna það eða ekki. Ekki eru það einungis karate-geeks sem horfa á svoleiðis ;) Það er almenningur sem horfir á þetta, fólk sem hefur ekki komið nálægt bardaga/sjálfsvarnar íþróttum.

Re: Mixed

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mjög góð hugmynd :) En það gæti myndast smá rýgur á milli greina um hverjir væru bestir - ekki það að það sé ekki núþegar mikill rýgur. Samt góð hugmynd ;)

Re: Freefight

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Eftir allt vesenið með að fá Ólympísku hnefaleikana samþykkta þá efast ég um að FreeFight yrði leyft á Íslandi….

Re: Capoeira er á Íslandi...

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kári Gunnars? Hvenær ætlarðu að koma að æfa Tae Kwon Do aftur!!??

Re: Fjölmiðlar

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég sit í stjórn í einu af Tae Kwon Do félögunum á Íslandi og við sendum oft tilkynningar um árangur á mótum, beltapróf og fleira. Við erum eiginlega hætt að reyna við Morgunblaðið. DV hefur tekið ágætlega undir og Visir.is - en ekki nóg.

Re: Uppáhalds bardagamyndir

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég er sammála með flestar myndirnar, Fist of Legend og Twin Warriors eru á meðal minna uppáhalds mynda. Það er líka ein mynd sem er líka frábær, og með góðan söguþráð ;) Hún heitir “Enforcer”, en einnig þekkt sem “My Father is a Hero”. Þar leikur Jet Li fjölskylduföður sem er lögga, en er í gervi sem glæpamaður. Fjölskylda hans veit ekki að hann er lögga. Flestar “Hong Kong myndir” eru frábærlega vel teknar, þ.á.m. flestar gömlu Jet Li myndirnar, þar sem leikstjórum tekst snilldarlega að...

Re: Björn sigrar á Scandinavian Open

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Áfram Bjössi!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Re: Eru Íslenskar mæður verri en aðrar ?

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er sammála LadyKisu. Ekki gleyma öllum krökkunum sem blóta, klæmast og bölva ókunnugum vegfarendum úti á götu. Ég hef séð það svo oft, og lent í því, að ég er farin að taka stóran sveig framhjá börnum og unglingum úti á götu. Sjálf á ég ekki barn, en það hlýtur að koma að því. Ég vona bara að mér takist að ala barnið mitt upp til að sýna öðrum virðingu.

Re: Björn Þorleifsson æfir með norska landsliðinu

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hann er að þjálfa Ármenninga og sér um fullorðinshópana. Hann er líka að þjálfa þá sem eru í Hafnarfirði. Hann er sjálfur að æfa undir mót, en vanrækir aldrei skyldur sínar gagnvart nemendum sínum.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok