Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Upptökugræjur til sölu... (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Digidesign Protools Digi001 Keypt fyrir tveimur árum, er sem nýtt, hugbúnaðurinn er Protools LE 5.11 Allar nánari speccur á <a href="http://www.digidesign.com/products/digi001“>Síðu Digidesign</a> Einnig til sölu P3 1.6Ghz tölva m/60gb hdd, 512mb minni, dvd drif, geislaskrifari ofl. Hyundai 17” skjár. Þessi tölva hefur eingöngu verið notuð með Digi001 fyrir upptökur. Selst saman eða í sitthvoru lagi. Allar nánari hjá Sigurgeiri í s:865-2377

LOTR: TTT Extended edition! Vá! (3 álit)

í Tolkien fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Eitt orð: Vá! Ég var að ljúka við að horfa á extended útgáfuna af TTT og ég er nær orðlaus. Þessi útgáfa útskýrir svo margt sem maður var undrandi yfir í bíósýningunni. * Fleiri atriði með entunum * Hobbitarnir drekka úr lindinni * Fangorn skógurinn lifnar við og aðstoðar í orustunni við Hjálmsdýpi. * Faramír gefin meiri dýpt og sett fram þokkaleg útskýring á honum, ég tek hann núna í sátt eftir að hafa verið ósáttur við hann í upprunalegu útgáfunni. * Svo eru helling af smáatriðum sem maður...

Ohh, þetta var fúlt... (Muse) (14 álit)

í Rokk fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Fór í Skífuna í Smáralind og var kominn að afgreiðslukassa tiltölulega fljótt… eða kl.09:25 og þá var strax uppselt í stúku :( Gæjinn á kassanum sagði að þeir fengu bara rétt yfir 100 stúkumiða. AAAAARGH!

Óska eftir 8 rása ADAT tæki... (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mig vantar 8 rása ADAT tæki, tape-in mega vera biluð. Hafið samband við mig hér á Huga ef ykkur vantar að losna við eitt slíkt tæki. Kveðja, Icez

Hvar er hægt að finna gott úrval af þrífótum? (3 álit)

í Ljósmyndun fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég fór í Hans Petersen í Austurveri og þeir voru bara með 2 þrífóta þar. Veit einhver um búð með ágætis úrval af þrífótum? Kveðja, Icez

Á einhver Nikon coolpix 4300? (myndir) (1 álit)

í Ljósmyndun fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Sælinú! Ég er alger byrjandi í ljósmyndun og hef verið myndavélalaus í 1 ár núna. Ég ákvað því loks að kaupa mér vél og ákvað að fara beint í digital. Eftir talsverða umhugsun, lestur á netinu og eftir umsagnir annara þá ákvað ég að Nikon Coolpix 4300 væri fín fyrir mig sem byrjenda. Er einhver annar hér sem á svona vél eða hefur reynslu af? Ef svo, hvernig líkar ykkur? Ég fór í ferðalag um helgina og notaði tækifærið til að prufa nýju vélina aðeins. Ég henti upp nokkrum myndum á...

Róum okkur núna aðeins... (4 álit)

í Dulspeki fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Núna er kominn tími á að við öll róum okkur. Það er staðreynd lífsins að fólk hefur mismunandi skoðanir á hlutum, mismunandi trú og reynslu. Hér undanfarið hafa verið ansi ,,heitar\" umræður við ýmsar greinar og hafa mörg orð verin láta falla sem ekki eru beinlínis kurteis samskipti. Það er nauðsynlegt að fólk beri virðingu fyrir skoðunum annara þótt að það sé ekki endilega samþykkt þeim. Það er einnig tilgangslaust að vera rífast hér yfir skoðunum annara. Ef þið viljið svara greinum með...

Veit einhver um góðar hljóðfærabúðir í Köben? (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 10 mánuðum
See topic… Einhver? :)

Ert þú meðlimur í einhverju sálarrannsóknarfélagi? (0 álit)

í Dulspeki fyrir 20 árum, 12 mánuðum

Trúir þú á að fyrirbænir virki? (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum

Miðillinn Hafsteinn Björnsson (12 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum
Hafsteinn Björnsson fæddist þann 30. október 1914. Hafsteinn var mjög skyggn frá fæðingu og sá huldufólk jafnt sem framliðna. Á unglingsárum veiktist Hafsteinn og lá lengi á sjúkrahúsi, eftir það þoldi hann illa erfiðisvinnu. Hafsteini hlotnaðist þó loks búðarstarf sem honum líkaði vel. Ein saga er af Hafsteini sem gerðist oftar en einu sinni: Oft var ös fyrir framan búðarborðið hjá honum. Eins og góðum afgreiðslumanni sæmir, beygir hann sig fram yfir borðið og spyr: ,,Hvað get ég gert fyrir...

Hvaðan færð þú helst upplýsingar um Dulspeki? (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 1 mánuði

Bassamagnari til sölu: (7 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Yorkville 400B. Þetta er c.a. 9 ára gamall, 400W magnari með 15“ hátalara í fínu ásigkomulagi, það eina sem er að er smá ”scratchy" volume og gain hnappar en það er víst lítið mál að laga það (smá hreinsun fyrir þá sem kunna það). Hægt er að fletta upp nýrri tegundinni af þessum magnara á Http://www.yorkville.com Nýrri týpan heitir BM400. Nánari upplýsingar hér á síðu Bass Gear review: http://www.bgra.net/reviews/yorkville-400b-2-rvw.html Hér er mynd af græjunni:...

Margrét frá Öxnafelli (4 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Margrét Jónsdóttir Thorlacius, eða Margrét frá Öxnafelli eins og hún var betur þekkt fæddist þann 12. apríl 1908 að Öxnafelli í Eyjafirði en hún var eitt af 13 börnum þeirra hjóna Jóns Thorlaciusar og Þuríðar Jónsdóttur. Margrét ólst upp við fátækt en fjölskyldan leið sem aldrei neinn skort. Margrét var skyggn allt frá fæðingu og var hún m.a. ekki nema fjögurra ára þegar hún sá oft ljós á kvöldin í fjalli við bæinn, síðar fór hún einnig að sjá huldufólk þar. Margrét sá jafnt blik fólks(áru),...

Einar Jónsson á Einarsstöðum (23 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Lækningamiðillinn Einar Jónsson, eða Einar á Einarsstöðum eins og oftast kallaður, er einn sá manna sem ég hef hvað mestar mætur á af þeim sem stundað hafa þetta starf. Einar er fæddur 5. ágúst 1915 að Einarsstöðum í Reykjadal og hann var þriðja barn foreldra sinna. Einar var mjög skyggn allt frá unga aldri og veittu menn því athygli að hann virtist sjá og heyra hluti sem enginn annar gat séð, heyrt eða skilið. Snemma fór hann einnig að ferðast utan líkamans og varð m.a. í þeim ferðum vitni...

Tíhí, villa í mogganum... (8 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég var að lesa val gagnrýnenda á 10 bestu myndunum á þessu ári. Í fyrsta sæti hjá Sæbirni Valdimarssyni er myndin LOTR: The TWIN TOWERS. Oh man…………

Um Leiðbeinendur. (19 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hér mun ég reyna að útskýra hvað Verndari / Leiðbeinandi er, en öll höfum við Leiðbeinanda, ,,spirit guide”, sem lítur eftir og aðstoðar okkur. Leiðbeinandi er sál alveg eins og við. Það er hægt að kalla þá mörgum nöfnum, t.d. Kennarar, Leiðbeinendur, Verndarar osfrv. Það er takmark sálarinnar að ná fullkomnun, að verða eitt með Guði. Hver sál gerir þetta á sínum hraða. Þar kemur hugtakið gömul sál og ung sál inn. Sálir læra á sínum hraða og sumar eru komnar lengra en aðrar. Glæpamenn,...

Árumynd. (18 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sæl öll! Mig langaði að deila með ykkur árumynd sem ég lét taka af mér fyrir nokkrum dögum í Heilsubúðinni í Hafnarfirði. Hér læt ég einnig fylgja skýringar sem ég fékk á blaði á helstu litunum: Rauður: Rauður litur stendur fyrir lífskraft og líkamlega heilsu. Eins getur rauður litur táknað reiði og notkun mikilli skapmuna til að koma á breytingum. Appelsínugulur: Appelsínugulur er litur lækningamáttarins. Ef mikið er um þennan lit í áru eða orkusviði þínu, hefur þú lækningamátt af...

Þegar sálir vitja manns. (4 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það hafa verið hér áður greinar um hvort sálir og/eða látnir geti vitjað manns. Ég er þeirra skoðunar að svo sé. Ein eldri kona sem ég þekkti, hún var góð vinkona ömmu minnar og fjölskylda þessarar konu hefur alla tíð verið gott vinafólk ættar minnar. Snemma á síðasta ári frétti ég að þessi kona væri með krabbamein og hún væri í geisla og efnameðferð gegn því. Mér þótti þetta leitt en spáði ekkert frekar í þessu, aðallega þar sem að ég hafði lítil samskipti við hana. Svo í ágúst á síðasta...

Innbrot og tryggingar! (16 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Sæl öll! Ég var áðan að lesa greinina um innbrotið hér að neðan og mig langaði að deila svolitlu með ykkur. Það er ömurleg tilfinning þegar einhverju er stolið frá manni, hvað þá þegar hljóðfærum manns er stolið, en það er eitt sem ég skil ekki. Fólk kaupir íbúð og tryggir allt innbúið, fólk kaupir sér bíl og tryggir hann. Fólk kaupir sér rándýr hljóðfæri, mixera og allskyns tónlistargræjur og geymir þetta upp í æfingarhúsnæði ótryggt! Það er ekki heil brú í þessu! Hljómsveitin mín tók þá...

Varðandi svör við greinum og korkum á Dulspeki (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Við stjórnendur á Dulspeki viljum að gefnu tilefni taka það fram svör við greinum og korkum sem innihalda niðrandi athugasemdir, persónuárásir eða athugasemdir sem koma málinu ekkert við, verður eytt. Dulspeki áhugamálið er staður þar sem fólk á að geta deilt sínum reynslum og skoðunum án þess að eiga hættu á að fá í hausinn á sér dónalegar/niðrandi athugasemdir. Sjá eftirfarandi grein:http://www.hugi.is/dulspeki/greinar.php?grein_id=52385 Kveðja, Icez og StarCat.

Varðandi svör við greinum og korkum á Dulspeki. (14 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sæl öll! Ég vil að gefnu tilefni taka það fram að mér er ekki vel við að fólk svari ýmsum greinum og korkum á niðrandi hátt á þessu áhugamáli. Dulspeki áhugamálið er fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á þessum málefnum og mér þykir það alger óþarfi og óvirðing ef fólk efast um geðheilsu greinaskrifenda og þar fram eftir götunum. Ég mun fylgjast svolítið með þessu og mun eyða svörum sem eru niðrandi og/eða koma málinu ekkert við. Kveðja, Íva
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok