Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Reynsla Barnapíunnar

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er alveg sammála þér þarna…ég á einn sem er 18 mánaða og hann er það besta og fallegasta sem ég á og ég treysti ekki hverjum sem er með honum. Ég hef aldrei verið með barnapíu en væri gaman hvað þú sem 18 ára stelpa með mikla reynslu værir að taka á tímann á kvöldin þegar okkur foreldrana langar í bíó (sem við gerum aldrei því við fáum ekki pössun). Ertu þá á eigin bíl og þess háttar ? Ein forvitin :)

Re: Magaveikar Síamskisur...

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hehehe…í þessu þurrfóðri er náttla kjöt, korn og fleira sem kisarnir okkar þarfnast. Allavega líta kisurnar mínar ekki við svona dósamat frá Whiskas og hafa aldrei gert svo ég hef náttla ekkert verið að kaupa hann :) IceCat

Re: Umtöluðust hugararnir

í Tilveran fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Furðulegustu Hugararnir eru peace4all og GunniS, p4a er náttla löngu horfinn en því miður er GunniS Karlremba nr. 1 ennþá á Huga :-S IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Hjálp

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég hef lent í nákvæmlega því sama, ég hef aldrei séð slef renna svona hratt. Ég var að fara að kalla út dýralækni þegar þetta allt í einu hætti og allt varð í lagi á smátíma. Mér datt helst í hug að kisi hefði nartað í blóm sem hefði farið svona illa í hann. En eins og Marid segir, hringdu í dýralækni strax ! IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Magaveikar Síamskisur...

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Nei ég mæli reyndar ekki með neinum dósamat, bæði finnst mínum köttum hann ekki góður og svo finnst mér ógeðsleg lykt af honum. En það er allt í lagi að gefa dósamat td. frá Whiskas 1x2 í viku sem nammi. Mínar fá alltaf þurrfóður og til hátíðabrigða túnfiskdós eða fisk. Svo stundum stelst ég til að gefa þeim mjólk þrátt fyrir að þá hrynji hárin af þessarri eldri. IceCat

Re: Magaveikar Síamskisur...

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sæll Cruxton, gaman að geta hjálpað þér :) Þessi Senior kattamatur er þannig gerður að hann er orkuminni til að kisi fitni ekki og gerður sérstaklega fyrir viðkvæma maga eins og þeir verða stundum þegar þeir eldast…þeas magarnir :) Ég kannast vel við þennan “kíghósta” en hef tengt það við æluna. Ég á eina læðu sem er 10 ára og fyrir nokkrum árum fór hún að taka upp á því að hósta eða kúgast rosalega mikið…mér datt nú helst í hug að hún væri í asmakasti. Svo var hún að æla ca. 1 x á dag án...

Re: Magaveikar Síamskisur...

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sæll, já þetta er leiðinlegur kvilli bæði fyrir þig og kisu að vera síælandi. Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar þú segir að hún æli af öllum mat þá myndi ég prófa að kaupa maltextrakt sem hægt er að fá í túbu í apóteki og gefa henni 1 cm. rönd á dag…þú verður að öllum líkindum að pína það ofan í hana hvernig sem þú ferð að því. Ef það eru hárkúlur í maganum á kisu þá leysir maltið þær upp. Er hún að kúgast mikið líka ? Eða ælir hún bara og kúgast ekkert á milli ? Annars mæli ég hiklaust...

Re: Snobb Köttur :)

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hehehe…þetta er allt mjög eðlilegt, mín gamla kisa (10 ára) er nákvæmlega svona. Ef hún fær ekki eitthvað gott í skálina sína kemur hún og gengur yfir lyklaborðið á tölvunni eða leggst á Moggann til að vekja á sér athygli…æji það er svo gaman að þessu :) IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Blóm eru stórhættuleg!

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég samhryggist innilega með kisu en þetta er frábær grein :) Að skrifa svona teksta um eitruð blóm og kettir er búið að vera á “to-do list” voða lengi hjá mér en nú get ég sparað mér ómakið :) Það má kannski nefna í sambandi við hættur á heimilum fyrir kisur (og börn) það eru t.d. bönd og spottar. Mamma saumar mikið og stundum voru spottar undir saumaborðinu hjá henni. Kisinn þeirra (m+p) hét Litla dýrið og át einn svoleiðis spotta, hann þurfti að fara í svaka uppskurð því spottinn var...

Re: Aftermarket púst

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er með kraftpúst á Galantinum mínum og þetta er ekkert nema hávaði og svo reyna allir að fara í spyrnu við mig á ljósum :) Er að fara að losa mig við draslið og báða kútana og fá mér eðlilegt púst. Svo bara feik stút öðrum meginn því það er náttla 2 göt.

IceCat admin á www.hugi.is/kettir </

Re: Persnesku drattur

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hehehe…hélt að hér væri einhver meiriháttar dónaskapur á ferð :)

IceCat admin á www.hugi.is/kettir </

Re: Kisan mín týndist :'(

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Gott að heyra að þetta endaði vel :) Knús á kisu frá Matthildi og Veigu (kisur) IceCat sem knúsar sínar kisur reglulega :)

Re: got! ...spurning.

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta var alveg einstaklega ófyndið, hefurðu ekkert annað að gera ? IceCat admin á www.hugi.is/ketti

Re: Óróleg

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þú veist greinilega ekki mikið um ketti en þeir eru þekktir fyrir að finna fyrir brjáluðu veðri og jarðskjálftum löngu áður en þeir koma. Vertu ekki að fullyrða eitthvað sem þú veist ekki um, þú ert búin að fá aðvörun. IceCat admin á www.hugi.is/ketti

Re: Jólakötturinn, draumakisan mín

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hehehe…mér sýnist að þessi draumaköttur þinn líkist talsvert hundi…spurning um að spyrja á hundaáhugamálinu ??? IceCat

Re: Greyið kisan mín

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta er alveg á mörkunum á að vera grein en gæti skapað umræður. Kettir eru mismunandi eins og menn og varla hægt að kenna Kattholti um að kisa höndlaði ekki að vera í pössun á kattahóteli. Þetta er að sjálfsögðu ömurlegt að lenda í þessu en þetta gerist samt sem áður. Þegar kettir fara á kattahótel þá geta þeir í flestum tilfellum ekki vaðið um allt heldur eru settir í búr með mat og kassa. Samhryggist þér engu að síður ! IceCat

Re: Aumingja kötturinn minn:(

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Kæri Hjaltinn, síðast þegar ég vissi þá var það ég eða aðrir adminar sem ákveðum hvað fer sem grein og hvað fer sem korkur. Ef teksti getur vakið upp skemmtilegar umræður eða hjálplegar þá er það mitt að meta hvort ég sendi þetta inn sem grein. Takk fyrir, IceCat

Re: Myndin

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Svolítið til í þessu hehe. Bíllinn minn fékk endurskoðun vegna grænna pera í framljósinu…how low can you get ! IceCat

Re: Ljóskan og bíllinn hennar :)

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hvað er 710 ? IceCat

Re: Ljóskan og bíllinn hennar :)

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sælir hugarar og takk fyrir öll svörin, þó ég sitji hérna kófsveitt vegna þessarra gríðarlegu talna *andvarp* Ég kíkti í EH Sjálfskiptingar í dag og fór á rúntin með eigandanum honum Erlingi. Hann ályktaði að sjálfskiptingin væri allavega ekki að fara eins og ég hélt heldur að þetta væri þéttingarvandamál og kannski eitthvað af rafmagninu innan á skiptinguna. Hann bauð mér að gera við þetta fyrir 120-150 þús. og þá yrði skiptingin eins og ný. Ég þarf náttla að hugsa málið en er ekki í neinni...

Re: Norskur skógarköttur

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Byrjaðu á þessum tenglum hér: http://www.simnet.is/aslaugs/ http://www.ok.is/~halldor/ http://www.i-love-cats.com/meow/nfo/ IceCat

Re: Ljóskan og bíllinn hennar :)

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
OMGOMGOMGOMGOMGOMGOMGOMG !!! Ég er í hjartastoppi hérna við tölvuna *garg* Eru Japanskar vélar einnig með verkstæði ? Hann er að fara inn á verkstæði á morgunn til að skipta um tímareim og vatnsdælu og ætla að biðja bifvélavirkjana um að prófa að keyra bílinn og sjá hvað þeir segja. Ji ég er ennþá í áfalli :( IceCat

Re: Ljóskan og bíllinn hennar :)

í Bílar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Takk fyrir að benda mér á þetta en ég fór með bílinn á smurstöð á föstudaginn og þar var skipt um sjálfskiptivökva sem var víst orðin ansi ljótur og einnig skipt um síu í sjálfskiptingunni fyrir stórpening en hann lagaðist ekkert við þessa lagfæringu :( Þetta er ekkert smá pirrandi, ég þori varla að keyra bílinn út af þessu :( IceCat

Re: Næsti skátahöfðingi-hver?

í Skátar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta er semsagt orðið opinbert, Ólafur Proppé býður sig fram sem skátahöfðingja á móti Margrétu Tómasdóttur. Ég leyfi mér hér að birta yfirlýsingu frá Birgi Ómarsyni, Garðbúum sem birtist á skátaspjallinu. Sæl öll. Birgir Ómarsson heiti ég og er aðst. félagsforingi Garðbúa og er einn þeirra sem stend að framboði Ólafs Proppé til skátahöfðingja á næsta skátaþingi. Ýmislegt misjafnt hef ég heyrt síðustu daga og hvet þá sem það vilja að hafa beint samband við mig til að fá “réttar” upplýsingar...

Re: Hve gamlar verða læður kettlingafullar.

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Jaaaa…þær verða kynþroska í kringum hálfsárs aldurinn svo að það er alveg möguleiki þá. Mæli ALLS EKKI með því þar sem kroppurinn er ennþá svo lítill og er ekki tilbúin til að eignast kettlinga þrátt fyrir kynþroskann. Heldur þú að kisan þín sé ólétt svona ung ? IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok