Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Kisa mín til dýralæknis...

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
En frábært að þetta gekk svona vel, nú bara vonum við það besta að þetta æxli sé góðkynja og hafi ekkert breiðst út. Væri gaman að sjá mynd af kisa ? IceCat

Re: Kötturinn er að stjórna heimilinu....

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hehehe…frábær skilgreining hjá þér eaue, eins og talað út úr mínum munni :) IceCat

Re: Hvað er köttur??

í Kettir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Frábær grein og gott efni í ritgerð. Stórt hrós fyrir þetta ! IceCat

Re: Kosning skátahöfðingja

í Skátar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Margrétu, ekki spurning ! Frábær manneskja að öllu leyti og hefur staðið sig vel sem aðstoðarskátahöfðingi og því sé ég ekki ástæðu til að velja aðra. Hef heyrt af mótframboði sem ég myndi kalla hræðsluframboð þar sem Margrét er tilbúin til að stokka upp skátastarf sem sannarlega þarf :) Kveðja, IceCat

Re: Ofbeldi gegn dýrum.

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það voru gerðar merkilegar rannsóknir í henni Ameríku sem ég las um á vefnum fyrir nokkru. Get því miður ekki munað hvar en það var um rannsókn á fjöldamorðingjum og morðingum sem höfðu framið virkilega ógeðsleg morð. Í flestum tilfellum byrjuðu þessir menn (já menn eru í meirihluta morðingja í USA) að pína, meiða og drepa dýr þegar þeir voru aðeins krakkar og fundu rannsóknaraðilar það út að ef þú ert barn sem meiðir dýr þá hækka allverulega líkurnar á því að þú verðir fjöldamorðingi þegar...

Re: eitt orð :þ

í Hundar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
<b>Hávaðasöm</

Re: Andfúlar Kisur

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sæll…gaman væri að vita hvað þær eru gamlar. Mér dettur helst í hug tannsteinn eða einhvers konar sýkingar í munninum, ég myndi endilega líta upp í þær og athuga hvort þú sérð svona gult utan á tönnunum. Þú getur náð því burt með nöglunum ef þú treystir þér til. Svo gæti þetta líka verið fæðið sem þær eru á, Whiskas dósamatur er langverstur í þessu tilfelli. Er með mínar læður á Royal Canine mat fyrir eldri kisur, kisur sem hafa tilhneigingu til að fitna og fyrir hár og húð og verð aldrei...

Re: HVAÐ ÞÝÐIR MJÁ?

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég hugsa að raddböndin hjá köttum bjóði bara ekki upp á annað en mjá. En að mínu mati þá tjá kettir sig með mismunandi mjáum og í mismunandi tónum. IceCat BBCode prufa <b>texti</b>

Re: Ha?

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hann hefur fengið sér far með Herjólfi og tekið svo rútuna til höfuðborgarsvæðisins…sniðugur köttur :) IceCat

Re: Meðganga Katta ??????

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
meðgöngutími katta er um 63 dagar ef ég man rétt eða rétt um tveir mánuðir. Kveðja, IceCat

Re: Hvort er betra gæludýr kettir eða hundar?

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sæl Hildur, ég ákvað að hleypa þessarri “grein” í gegn þar sem hún skapar vonandi umræður. Í framtíðinni vandaðu þig betur þegar þú sendir inn greinar. kveðja, IceCat

Re: Got!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki græna glóru…hef aldrei upplifað kettlingafæðingu. En er hún ekki búin að gjóta núna ? IceCat

Re: Epli // Apel

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Er ekki lag með SSSól sem er með tekstanum…ég sé epli… IceCat

Re: Simbi heimilisköttur.

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta er með yndislegri greinum sem ég hef lesið :) Manni verður hugsað til sinna eigin katta og hvað maður er í raun þakklátur. Kæri Simbi, hamingjuóskir með afmælið ! Fröken Matthildur 10 ára Veiga 1 árs

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Nákvæmlega, þetta var ekkert smá svakalegt :( Það hlýtur mörgum að hafa brugðið í brún sem voru í sakleysi sínu að horfa á fréttir ! IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það er svakalegt að heyra þetta og dapurt að Bogi fréttastjóri sé orðin svona svakalega tilfinningalaus við að sjá svona fréttir :( IceCat

Re: Haustsýning kynjakatta

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég ætla sko þokkalega að mæta, reyndar ekki með neinar kisur með mér en það er svo gaman að skoða gróskuna í kattategundum hér á landi, það er sko af sem áður var :) IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Skil þig, ég reyndar horfi aldrei á fréttir á Stöð 2 þar sem ég er ekki áskrifandi. Já ég vona að þetta hafi verið mistök hjá RÚV. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Heyrðu góði, þessar myndir sem ég sá fyrir nokkrum mánuðum voru ekki frá Palestínu eða Ísrael. Þetta var í einhverju Afríkuríki þar sem ríkti borgarastyrjöld. Kannski skiptir ekki máli en af hverju má ekki vara við þegar svona myndir eru birtar? Mér finnst það ekki til of mikils mælst. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þér finnst semsagt í lagi að börnin hér á Íslandi sjái skotin lík í sjónvarpinu af því að börn í t.d. Palestínu sjá þau? Við höfum þær aðstæður hér á landi til að leyfa börnunum að vera börn aðeins lengur. Óþarfi er að kynna fyrir börnunum okkar raunveruleikann og eins og einhver nefndi hér í svari að hafa séð stríð í nærmynd og hann hefði aldrei gleymt því og liðið illa yfir því sem barn. Ég fæ líka kökk í hálsinn við að sjá vannærð börn í fréttum en ekki myndi ég segja að það væri...

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jájá whatever ! IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég þarf ekki að sjá svona myndefni til að vita hvað raunveruleiki er en sumir eru óvenju blóðþyrstir því miður. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Endilega lestu svar hallurha hér fyrir ofan, það segir allt sem segja þarf að mínu mati. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég veit alveg að það er löglegt en þurfa börnin okkar að horfa upp á það fyrir það ? Ég vona svo sannarlega að þetta hafi verið mistök að vara ekki við myndunum en sást þú þessa ákveðnu frétt í gær ? IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hehe…ÚPS ! IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok