Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta dundi svo fljótt yfir…við litum undan og þá kom seinna skotið. Því miður var ekki á þessum nokkru sekúndum hægt að skipta um stöð. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Nákvæmlega, þú ert að segja það sem ég er að hugsa en gat einhvern veginn ekki komið almennilega frá mér…takk takk ! IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ástæðan fyrir því að ég sendi þetta tvisvar inn er einfaldlega sú að mér fannst þetta koma báðum flokkum við, þ.e. börnum og deiglunni. Ef þú heldur að ég sé að safna stigum þá er það algerlega vitlaust ályktað hjá þér. Ef svo væri þá myndi ég vera með fleiri stig en 2207 stig eftir 2-3 ára veru á Huga. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Já þú ert sannarlega reiður og bitur maður. Í mínu húsi er enginn eldhúskrókur og sitjum við yfirleitt við borðstofuborðið og horfum á fréttir á meðan og ræðum saman. OMG lastu ekki greinina mína ??? Ég sagði sérstaklega “ég geri mér grein fyrir að ástandið í stríðshrjáðum löndum er ömurlegt” Annars ertu komin alveg út fyrir efnið. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hvernig átti ég að geta skipt um stöð ??? Mér datt ekki í hug fyrir mitt litla líf að fréttamenn myndu sýna þessar myndir. Ekki fékk ég neina viðvörun frekar en venjulega. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Kæri ibbets, takk fyrir að kommenta á góða grein :) Einhverra hluta vegna eru t.d. tófur í húsdýragarðinum og vekja þær mjög mikla lukku hjá yngri kynslóðinni og ég get ekki neitað því að mér finnst þetta mjög falleg og fullkomin dýr. Mér finnst ekkert að því að verið sé að gera eitthvað við offjölgun tófa á Íslandi en að sýna skotnar tófur finnst mér of mikið. Ég er með 18 mánaða barn sem horfir á fréttir með mér þar sem bæði ég og pabbi hans viljum horfa á fréttir. Finnst þér að börn upp í...

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jæja gott að vita að þér finnst fólk eins og ég vera ástæða þess að heimur versnandi fer. Þú ert greinilega ekki kona, ekki dýravinur en ert sennilega barn sjálfur. Hér á Huga eru ekki aðeins 16 ára unglingar með sinn reynsluheim heldur líka eldra fólk sem hefur aðra sýn á hlutina. Þú verður bara að sætta þig við það og halda þig inn á www.hugi.is/hl. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ástæðan fyrir að ég setti aldur þinn þarna inn er einfaldlega sú að þú sagðir að fólk ætti bara að þroskast og því stóðst ég ekki mátið. Ég fullyrði það að þegar þær myndir birtust af þessum líkum þá var ekki varað við þeim. Við bæði hjónin litum undan í forundran yfir því hvað þetta væri hræðilegt. Kannski þegar fólk stofnar fjölskyldu og eignast börn að þá verði það eitthvað viðkvæmara, ég get ekki fullyrt um það. Ég geri mér fulla grein fyrir því að offjölgun á refum er á Íslandi en ég...

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það vill nú svo til að svona ógeðfelldar myndir eru ekki sýndar oft en nógu oft til að eftir því sé tekið. Ég á ekki að þurfa að vera með puttann á fjarstýringunni heldur vil ég allavega fá viðvörun um að næst komi frétt með ógeðfelldum myndum. Ég minni á að þetta er sjónvarp allra landsmanna, ég borga fyrir það og fréttir eru sýndar klukkan 7 þegar flest börn eru ekki farin í rúmið. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það vill svo til RÚV er með skylduáskrift sem ég borga hvort sem ég vill það eður ei og því finnst mér ég hafa rétt á því að horfa á fréttir án flökurleika. Ég les einnig Moggann, DV og allar fréttir á netinu því ég vil fylgjast með því sem er að gerast í heiminum í kringum mig. Málið er að þessar myndir eru alger óþarfi og hægt er að koma þessum fréttum til skila án þess að sýna þær. Einnig hef ég ekki áhuga á að verið sé að sýna svona ógeðslegt myndefni þegar krakkar eru að horfa og...

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Veistu Kjanakall að það eru til aðrar leiðir til að sýna okkur hér hvað er að gerast í heiminum. Ekkert vinnst með því að sýna svona myndir í nærmynd, alveg væri hægt að sýna vægari myndir…alveg er mér sama hvað sýnt er í 10 fréttum því þá eru börn yfirleitt farin að sofa. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Í greininni minni talaði ég einmitt um þetta að ég VEIT að ástandið er hræðilegt og geri mér fulla grein fyrir því að það er ekki allt eins og á litla Íslandi. Þegar ég segi illa farin lík þá er ég að tala um nakin og limlest líka af börnum og fullorðnum “up close”. Því miður er ég ekki með neina dagsetningu á þessarri einstöku frétt en hún var fyrir ca. 2-3 mánuðum. Það þarf ekki að pakka mér inní bómullarhnoðra, ég þarf bara ekki að sjá veruleikann ásamt ungu barni mínu klukkan 7 að kvöldi...

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Yfirleitt borðum við ekki fyrir framan sjónvarpið en þannig vildi til að maturinn var tilbúin á fréttatíma. Hvað meinarðu…viltu meina að fólk sem fyllist ógeði yfir þessum ákveðnu myndum eigi bara að þroskast ? Þú ert ekki nema 16 og er ég næstum helmingi eldri en þú og hef séð ýmislegt á minni samt stuttu ævi. Það þýðir ekki að ég verði bara tilfinningalaus þegar lítil saklaus dýr eru skotin með köldu blóði í sjónvarpi. Hvernig tengir þú þetta ritskoðun ? Þetta er svolítið mikil ofnotkun á...

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Fjúfff…það hlaut einhver að vera sammála mér, ég gat ekki bara verið ein um að finnast þetta :) IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
En væri þér alveg sama ef ung börn þín væru að horfa á fréttirnar með þér ? Fólk hefur að sjálflsögðu mismunandi smekk á sjónvarpsefni og við þessir fullorðnu jöfnum okkur strax en svona myndir geta setið í börnum, þau gleyma ekki svo glatt. IceCat

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hver er að tala um ritskoðun ? Þessar fréttir eru ekki að “særa” mig eða mína fjölskyldu heldur býður okkur við þessum myndum, þú skalt ekki halda að ég sé ein um það því það eru miklu fleiri. Eitt er að fullorðið fólk sjá þetta en hvað með börnin okkar ? Ég tel mig ekki vera ofverndandi foreldri en þetta vill ég ekki að börnin mín sjái frekar en ofbeldismyndir. Má ég minna þig á að fréttatímar RÚV eru klukkan 7 og þá eru börnin yfirleitt ekki farin að sofa. Ég tel mig eiga rétt á að fá...

Re: Mamma, akkurru þurfti að skjóta hann ?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Gróf fréttamennska ??? Góð og gróf fréttamennska er t.d. þegar fréttamennirnar grafa upp t.d. skandal. Ég er aðdáandi Ríkissjónvarpsins líka og því vil ég allavega láta vara mig við þegar óhugnaður birtist í fréttum svo ég geti skipt um stöð á meðan eða litið undan. Ég vil ekki horfa á loðið saklaust dýr vera skotið eða látin, nakin og limlest börn á götum úti. Ég hlýt að gera þá kröfu að annaðhvort sé sleppt því að sýna þetta eða ég vöruð við ? IceCat

Re: Hvaða dýralæknir mynduð þið mæla með:)

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég mæli hiklaust með Dýralæknastofunni í Garðabænum, ég hef verið hjá Helgu (fyrir löngu síðan og ekki með góðri reynslu) og einnig hjá Dagfinni en þar er svo erfitt að finna stæði. Dýralæknarnir í Garðabænum er alveg pottþétt fólk og frábær þjónusta bæði fyrir þig og kisu. Svo ertu enga stund að keyra þangað, það er alveg þess virði. Kveðja, IceCat

Re: S.O.S Í vandræðum með kisuna mína :-(

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Já þetta er alls ekki gott :( Hún virðist ekki vilja eiga heima hjá ykkur lengur þar sem hún fer út svona rosalega lengi í einu. Mér finnst nú svolítið svakalegt að lóga henni út af þessu þar sem hún var þarna fyrst…æji ég veit það ekki sko. En ertu búin að athuga hvort einhverjir fjölskyldumeðlimir eða vinir séu tilbúnir til að taka hana til sín ? Þetta er ekki gott fyrir 10 ára læðu að vera á svona þvælingi og fá ekki að borða reglulega. Gangi þér sem best, IceCat

Re: Á einhver stóran kött?

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ertu viss um að hann sé heil 10 kíló, hefurðu prófað að vigta hann ? Ég á MJÖG stóra og feita læðu sem aðeins er 7 kíló og hún sígur ekkert smá í. ICeCat

Re: Þarf kisi á grófmeti að halda ??

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég sé ekki að honum vanti eitt eða neitt en ef þú vilt vera góð við hann væri ekki vitlaust að fara í dýrabúð og kaupa kattagrasfræ og rækta í blómapotti. Þau koma upp á nokkrum dögum og flestum kisum finnst rosa gott að borða þetta gras. Mín gamla læða leggst ofan í blómapottinn þegar ég nenni að rækta þetta en samt fer hún líka út. Kveðja, IceCat

Re: ofnæmi

í Kettir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ekki þori ég að fullyrða hvort hausverkur sé ofnæmi en einkenni ofnæmis eru oftast nefrennsli og þrútin augu. Þú ættir að fara til heimilislæknis og láta hann setja þig í ofnæmispróf. Kveðja, IceCat

Re: Hvað er að?

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Jæja Peyler…ég held að þú ættir frekar að vera í blaðaviðtölum, í sjónvarpinu oþh heldur en að segja okkur þetta hér :) Allavega til hamingju með “afa”hlutverkið ! IceCat

Re: Kannanastífla!

í Teiknimyndir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hæ Hrannar, ég er admin á köttum og á öllu þessu ári hefur verið samþykktar kannanir 99 daga fram í tímann (það mesta sem hægt er) og svo hafa verið um 20-30 kannanir í bið sem verða samþykktar þegar biðin fer niður í 97 daga :) Ég tími ekki að eyða könnunum sem er virkilega góðar en er svo mjög ströng varðandi aðrar kannanir, þ.e. líkar kannanir, vantar ákveðna liði, stafsetningarvillur oþh. og leyfi bara stíflunni að vera. Ég er búin að gera nákvæmlega eins og þú og ekkert gengur þannig að...

Re: Breim

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hehehe…kannast við þetta, í fyrsta skiptið sem mín 10 ára fór að breima þá hélt ég að hún væri lasin…kræst :) Ég hef tekið mínar læður úr sambandi um 6 mánaða og reyndar fressin líka. Það hefur þau áhrif á læðurnar að vöxturinn hægist aðeins og þær verða í flestum tilfellum litlar og nettar. Þú getur gert þetta um 6 mán. og ég get lofað þér að kisu líður betur en þú getur líka sett hana á pilluna og gert þetta eftir ca. hálft ár. Man þegar sú eldri var á pillunni, fékk hana alltaf 1x í viku...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok