ég er alveg sammála því að það er kominn tími á að old-metal band komi fram í sviðsljósið…einnig væri eg til að vera með í þannig bandi….ps. er bassaleikari
Ég er alveg sammála þér um Jason!! Hann er uppáhalds bassaleikarinn minn..en núna kemur röðin. 1. Jason Newsted (ozzy, voivod og ex. metallica) 2. Flea (red hot chili peppers) 3. Cliff Burton (ex. metallica) 4. John Deacon (queen) 5. Mark Hoppus (Blink 182)
Þessi maður er snillingur og mér finnst ömurlegt að hann hafi hætt í Metallica en ég held að hafi gert það sama ef ég hefði verið í sporum…þeir voru það ömurlegir við Jason…en Metallica sögðu í heimildarmyndinni sem var á popptíví um daginn að það væri fúlt að Jason væri hættur því núna væri Metallica orðin eins og hann alltaf vildi..!!
Frábær diskur!! þótt að sólóin séu ekki til staðar…mér finnst Rob passa alveg ágætlega inn í bandið þótt hann minni mig dáldið á apa stundum sérstaklega þegar hann gerir þennan stút á varirnar:)
Mín hljóðfæri eru Fender jazz bass sem er snilldar hlutur, Peavey bassi, Eko kassagítar svona sirka 25 ára:Þ samt ennþá i góðu standi og einn klassískur sem ég man ekki hvaða tegund er svo er ég með Ampeg magnara og einn Trace Eliot…
Tónlist er líf mitt, hún er aðaláhugamálið og ég get sagt að ég sé háður tónlist. Sumir vinir mínir eiga enga diska og bara hlusta ekki á tónlist en það gæti ég aldrei meikað…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..