Sælt veri fólkið…ég sendi inn grein fyrir nokkuð löngu síðan um þá staðreynd að Kurt hafi verið myrtur og mig langaði að fá hana hér aftur í gegn vegna þess hversu mikil umræða er búin að vera undanfarið um Nirvana og Kurt Cobain…!!!

————————————— ————–
Kurt Cobain var myrtur!

Ég var að horfa á heimildarmynd sem maður hjá BBC gerði fyrir ekki svo margt löngu um Kurt Cobain og eftir að hafa horft á þetta og lesið á netinu meira um málið er ég sannfærður um að fullyrðingin hér að ofan er rétt.

Ég ætla ekki að vera með neina bull langloku heldur þrykkja fram staðreyndum um málið og legg ég til að þú pælir aðeins í þessu.

Staðreynd 1: ENGIN fingraför fundust á haglabyssunni sem að Kurt á að hafa skotið sig með né á pennanum er lá hjá “sjálfsmorðsbréfinu” og ekki heldur á kassanum undan skotunum.

Staðreynd 2: Í blóði Kurts fannst 1.5 ml af heróíni og sá sem að hefur svo mikið magn í sér er ekki fær um að lifta svo mikið sem litla fingri.

Staðreynd 3: Það er auðveldlega hægt að túlka “sjálfsmorðsbréfið” svokallaða á annan hátt og reyndar verður það mun skiljanlegra ef maður les það í því samhengi að hann hafi skrifað þetta til þess að lýsa því yfir að hann væri að hætta í hljómsveitinni…fyrir utan síðustu fjórar línurnar en þar segir:
Please keep going Courtney, for Francis, for her life will be so much happier without me. I LOVE YOU. I LOVE YOU.
Okei þetta virðist vera nokkuð augljós skilaboð en þegar bréfið var grandskoðað af tveim sjálfstæðum sérfræðingum staðfestu þeir að síðustu fjórar línurnar væru EKKI sama handskrift og á fyrri hluta bréfsins.

Staðreynd 4: Eldon Hoke eða El Duce aðalsöngvari Mentors sór að Courtney hafði boðið sér 50.000 dollara fyrir að drepa Kurt. Hann fór í lygapróf og stóðst það með einkunnina 99.7%. Hann sagði Nick manninum sem var að gera heimildarmyndina og sést það í myndinni alla söguna. Viku eftir það viðtal hefur verið staðfest að hann hafi komið til vina sinna og sagst hafa fundið út hver drap Kurt. Daginn eftir sást til hans með ókunnugum manni og um nóttina fannst hann látinn. Dánarorsök: Varð fyrir lest.

Staðreynd 5: Engin af vinum eða fjölskyldu Kurts hefur sagt að hann hafi verið í sjálfsmorðshugleiðingum né að hegðun hans hafi bent til þess. Það eina sem á að hafa angrað hann er Courtney og hvað þau höfðu ólíkar skoðanir á öllu, hún vildi lifa hátt eiga flotta bíla og stór hús en hann vildi bara vera venjulegur maður sem félli inn í hópinn. Eina manneskjan sem hefur nokkurn tíman sagt að hann hafi verið í sjálfsmorðshugleiðingum er einmitt Courtney.

Staðreynd 6: Um viku fyrir dauða Kurts hafði hann sjálfur farið og sótt um skilnað við Courtney og hefði hún þá aðeins fengið lítin hluta allra milljónanna sem voru í hans eigu en þar sem hann lést fékk hún allt. Faðir Courtney hefur einnig sagt að hún hafi alltaf dreymt um að verða brjálæðislega rík og fræg og mundi ekki láta neitt standa í vegi fyrir sér.

Eftir að hafa farið yfir þetta allt og séð þessar beinhörðu sannanir get ég ekki annað en verið sannfærður um að Courtney er í raun ábyrg fyrir dauða Kurts…á einn hátt eða annan hátt.
Nei engin undirskrift hjá mér