Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hress
hress Notandi frá fornöld Karlmaður
5.602 stig

Stelpurnar úr leik (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu lék á sunnudag seinni leik sinn við Enska kvennalandsliðið en fyrri leikurinn á Laugardalsvellinum endaði með 2-2 jafntefli. Erla Hendriksdóttir og Olga Færseth skoruðu mörk Íslands fyrir framan rúmlega 3.000 áhorfendur. Ensku stelpurnar náðu að jafna nokkrum mínútum fyrir leikslok og reyndist það mark þeim mjög dýrmætt. Stelpurnar okkar komu ekki nógu ákveðnar til leiks á St.Andrews í Birmingham og virkuðu stirðar. Þó fengu þær ágætis færi í leiknum...

KR Íslandsmeistari, Keflavík fylgir Þór niður (25 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í dag var seinasta umferðin í Símadeildinni leikin og var mikil spenna á toppi og botni. FH, Fram og Keflavík börðust við falldrauginn á meðan Fylkir og KR voru að berjast um bikarinn. Fyrir umferðina voru Keflvíkingar í fallsæti með verri markatölu en Fram og Fylkismenn sátu í efsta sætinu með stigi meira en KR. Það þýðir það að Fylkir hefði tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með sigri. Á Akranesi mættu Skagamenn til leiks gegn Fylki. Margir KR-ingar óttuðust það að ÍA myndi ekki...

Úrslit ráðast á laugardaginn! (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Vil ég byrja á að biðjast afsökunar á því að hafa ekki haft tök á því að uppfæra stöðuna í deildinni og annað slíkt, tölvan búin að vera í einhverju hakki. En á laugardaginn þá ráðast úrslitin í Símadeildinni og þá kemur í ljós hvort það verði KR eða Fylkir sem stendur uppi sem Íslandsmeistari. KR mætir Þór á KR-velli í beinni á Stöð 2 og á Sýn verður leikur ÍA og Fylkis í beinni. Ef Fylkir vinnur þann leik standa þeir uppi sem Íslandsmeistarar sama hvernig fer í Vesturbænum. Mikið hefur...

Fram í bikarúrslitin (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Fram mætti ÍBV í undanúrslitaleik Coca Cola bikarsins í Laugardalnum í gær. Grenjandi rigning var allan tímann meðan leikurinn var í gangi og ekki fengu áhorfendur að sjá fallegan fótbolta en leikurinn engu að síður mjög skemmtilegur. Leikurinn fór rólega af stað en á 13.mínútu voru Framarar heppnir þegar Gunnar markvörður bjargaði meistaralega eftir að Sævar Guðjónsson Framari skallaði boltann til baka framhjá honum. Það stóð svo tæpt að boltinn stoppaði á marklínunni en Gunnar fór langt...

Við heimtum annað sætið! (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari Íslands, hætti við landsliðsæfingu sem fyrirhuguð var klukkan tíu í morgun. Atli ákvað að gefa landsliðsmönnum hvíld, en þeir æfðu tvisvar í gær. Íslenska landsliðið æfir seinni partinn í dag, en liðið mætir sem kunnugt er Ungverjum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á morgun klukkan 16:00. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði á Stöð 2 í gær að markmið Íslands í riðlakeppni Evrópumótsins að þessu sinni væri að ná öðru sæti riðilsins. Þjóðverjar verða að...

Lítið af mörkum en Fylkir fór á toppinn (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í gær lauk 16.umferð í Símadeild karla þegar fjórir leikir fóru fram. Um helgina gerðu ÍA og Fram 1-1 jafntefli og leikjunum sem fram áttu að fara á sunnudagskvöld var frestað vegna veðurs. Þeir fóru því fram í gær og er ekki hægt að segja að knattspyrnumenn hafi verið á skotskónum. Heimamenn voru betri aðilinn lengst af á Akureyri þar sem Þór mætti Fylki. Þarna leiddu saman hesta sína lið á toppnum og lið á botninum og ekki var hægt sjá mun. Óðinn Árnason átti skot í slá Fylkismanna snemma...

KR bikarmeistari kvenna í knattspyrnu 2002 (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
KR tryggði sér Coca Cola bikarinn í kvennaflokki með sigri á Val í gær með 4 mörkum gegn 3. Leikurinn sem fór fram á Laugardalsvelli var bráðskemmtilegur. KR komst í 3-0 í fyrri hálfleik og ljóst að á brattan yrði að sækja í síðari hálfleik fyrir Valsstelpurnar. KR skoraði fyrsta mark síðari hálfleiks og staðan orðin 4-0. Olga Færseth skoraði tvisvar og Hrefna Jóhannesdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eitt mark hvor. Valsstúlkur gáfust ekki upp, sýndu mikið baráttuþrek og náðu að minnka...

Vonda veðrið hefur sitt að segja (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Fram sótti eitt stig í heimsókn sinni á Skipaskaga í gær, þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við ÍA. Aftakaveður var á Akranesi og aðstæður til knattspyrnuiðkunar afleitar. Fram var betri aðilinn í leiknum, leikmenn voru síógnandi og baráttuglaðir og það var þvert gegn gangi leiksins sem ÍA skoraði þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum. Var þar að verki Hálfdán Gíslason. Í síðari hálfleik héldu Framarar uppteknum hætti í óveðrinu og sóttu og börðust og uppskáru vítaspyrnu þegar brotið var...

KR vann Fram en Fylkir tapaði (16 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það var líf og fjör á Hásteinsvelli um helgina þegar fyrsti leikur 15.umferðar fór fram. ÍBV tók á móti Þór í fallbaráttuslag og komust heimamenn yfir á 31.mínútu. Bæjarstjórinn Ingi Sigurðsson átti góða sendingu á Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem skoraði. Eftir þetta sóttu Þórsarar mikið og náðu að jafna fyrir hálfleik, var þar að verki hinn sjóðheiti Jóhann Þórhallson sem reynir fyrir sér hjá Bröndby í Danmörku eftir tímabilið. ÍBV var mun betri aðilinn í seinni hálfleik og skoruðu tvö mörk,...

Fylkir sigraði ÍBV 1-0 (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í Árbænum í gær tóku Fylkismenn á móti ÍBV sem eru í stökustu vandræðum í deildinni og í bullandi fallbaráttu á meðan heimamenn berjast við KR um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV byrjaði leikinn af miklum krafti og voru Fylkismenn í stökustu vandræðum framan af leiknum en það breyttist. Þrátt fyrir meiðsli og brotthvarf Hrafnkels Helgasonar var vörn og miðja Fylkis sannfærandi og framlínumennirnir sívinnandi og gáfu ekkert eftir. Björn Viðar kom snemma inná þegar Steingrímur þurfti að yfirgefa...

KR marði jafntefli (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
KR og Keflavík mættust í gær á KR-velli. Það fór um KR-inga í stúkunni eftir sem á leið leikinn því Keflvík varðist vel og beitti mjög hröðum skyndisóknum sem byggðust á Guðmundi Steinarssyni og Hauki Inga og voru þeir mjög kræfir. Það var svo á 21 mínútu sem að dró til tíðinda þegar Haukur Ingi fékk vítaspyrnu sem Guðmundur tók. Valþór Halldórsson stóð í marki KR en hann tók stöðu Kristjáns Finnbogasonar sem meiddist á æfingu í vikunni. Valþór stóð sig mjög vel og varði vítaspyrnuna....

KA - ÍA fór 1-1 (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Einn leikur fór fram í Símadeild karla í dag þegar ÍA og KA gerðu jafntefli, 1-1, í fyrsta leik 14. umferðar. Leikið var á Akranesi og komust heimamenn yfir eftir 20 mínútna leik þegar þeir fengu vítaspyrnu sem Hjörtur Hjartarson skoraði úr. Hún var dæmd á Stein Viðar Gunnarsson er hann handlék knöttinn innan eigin vítateigs. KA jafnaði hins vegar rétt fyrir leikhlé og var þar á ferðinni Elmar Dan Sigþórsson, en hann nýtti sér misskilning í vörn ÍA og skoraði fram hjá Ólafi Gunnarssyni,...

FH og ÍA skildu jöfn (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Á mánudag léku FH-ingar gegn Íslandsmeisturum ÍA í Símadeildinni. Það var Garðar Gunnlaugsson sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir ÍA á 21. mínútu en hann var í liðinu í fjarveru bróður síns, Bjarka Gunnlaugssonar. Markið var ekki af verri endanum, Garðar fékk síðar í leiknum fleiri færi en náði ekki að nýta þau. Skagamenn voru betri aðilinn í leiknum en náðu ekki að bæta við marki fyrir hálfleik. Á 66.mínútu náði Atli Viðar Björnsson að jafna metinn í 1-1 fyrir FH. Markið kom gegn gangi...

Stefnir í einvígi Fylkis og KR (15 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Allt stefnir í einvígi milli Fylkis og KR um íslandsmeistaratitilinn en þessi tvö lið eru að stinga af í Símadeildinni. Þrír leikir fóru fram í gærkvöldi og unnu bæði liðin sigra. KR fór til Akureyrar og lék á móti KA. Eftir aðeins 15 mínútna leik voru KR-ingar komnir tveimur mörkum yfir eftir að Sigurvin Ólafsson og Þormóður Egilsson hefðu skorað. Þormóður skorar ekki á hverjum degi og var mark hans sérlega glæsilegt. Eftir þetta liðu margar mínútur án þess að áhorfendur fengu mörk. Það kom...

Fylkir á toppinn eftir öruggan sigur (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Fjórir leikir fóru fram í Símadeildinni í gær: Fylkismenn komust á topp deildarinnar með sigri á Keflavík. Í fyrri hálfleiknum voru Fylkismenn eina liðið á vellinum og hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk en þeir gerðu. Sævar Þór Gíslason skoraði á 20.mínútu eftir sendingu frá Theodór Óskarssyni en þeir tveir voru bestu menn vallarins. Theodór hafði fyrr í leiknum átt skot í markstöng og Finnur Kolbeinsson var einnig nálægt því að skora en Ómar varði vel. 15 markskot voru á mark gestanna í...

Þjóðhátíð hjá Fram (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Framarar gerðu í gær góða ferð til Eyja eins og í fyrra. ÍBV spilaði mun betur í fyrri hálfleiknum en náðu ekki að skora og því markalaust. Ágúst Gylfason gerði eina mark leiksins úr umdeildri vítaspyrnu á 50. mínútu, en hana fékk Þorbjörn Atli Sveinsson þegar honum var brugðið innan vítateigs. Eyjamenn léku einum leikmanni færri mestallan síðari hálfleik því Tómasi Inga Tómassyni var vikið af leikvelli á 56. mínútu þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Úrslit leiksins þýða að liðin hafa...

FH sigraði botnslaginn (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Framarar duttu niður í fallsæti á sunnudagskvöld. Þá léku FH og Þór Akureyri í botsnlag deildarinnar og höfðu FH-ingar betur og náðu þar með að lyfta sér úr fallsæti. Þar með er FH komið upp í 8. sæti í deildinni, hefur 12 stig að loknum 10 leikjum, er með jafnmörg stig og ÍBV sem hefur leikið einum leik fleira. FH bauð upp á sóknarbolta af bestu gerð á sínum glæsilega heimavelli frá upphafi til enda. FH hafði 2-0 yfir í hálfleik með mörkum frá Jóni Þ. Stefánssyni og Calum Bett. Bett stóð...

KR aftur á toppinn (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það var sannkölluð rjómablíða á Akureyrarvelli í gær þar sem Fylkismenn úr Árbæ voru í heimsókn hjá KA. Fylkir fékk óskabyrjun í leiknum er Sævar Gíslason skoraði á fyrstu mínútu leiksins. Hann átti þrumuskot í þverslána og inn. KA menn voru meira með boltann í seinni hálfleik en náðu ekki að ógna Fylkismarkinu verulega. Steingrímur Jóhannesson bætti öðru marki við fyrir gestina eftir sendingu Sævars Þórs. Rúmlega 500 áhorfendur voru á leiknum sem endaði 0-2, Fylkis-sigur. Samkvæmt heimasíðu...

Grindavík fór illa með Fram (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Fram sá aldrei til sólar í Laugardalnum í gær þar sem Grindvíkingar voru í heimsókn. Ray Jónsson var aðeins 5 mínútur að koma Grindavík yfir þegar hann skoraði úr aukaspyrnu. Eftir 20 mínútna leik átti Grétar Hjartarsson skot í stöng og náði stuttu seinna að koma boltanum í mark Framara en var rangstæður. Á 37.mínúru átti Óli Stefán Flóventsson fína rispu, lék vörn Fram grátt og Paul McShane átti skot sem fór í hendi eins varnarmanns Fram og vítaspyrna dæmd. Ólafur Örn Bjarnason skoraði úr...

ÍA úr leik í Meistaradeild Evrópu (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Íslandsmeistarar ÍA féllu í gær úr Meistarakeppni Evrópu í knattspyrnu þegar liðið beið lægri hlut gegn bosnísku meisturunum Zeljeznicar á Akranesi 1-0. Þessi leikur var seinni leikur liðanna í forkeppninni en ef Skagamenn hefðu komist áfram þá hefðu þeir mætt fyrrum þjálfara sínum, Loga Ólafssyni, og félögum hans í Lilleström frá Noregi. Zeljeznicar sigraði í fyrri leiknum 3-0 í Bosníu og komst því örugglega áfram í keppninni. Aðstæður á Akranesi voru frekar erfiðar í gær og leikurinn mjög...

Liðin sem léku til úrslita í fyrra eru komin áfram (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í gær fóru fram tveir leikir í 8 liða úrslitum Coca Cola bikarsins. Í kvöld fara síðan hinir tveir leikirnir fram en báðir hefjast kl.20:00. Í Vestmannaeyjum leika ÍBV og Leiftur/Dalvík á meðan Fram mætir Keflavík í Laugardalnum. Í Árbænum í gær mættust Fylkir og ÍA. Þessi lið mættust fyrir stuttu í deildinni þar sem Skagamenn unnu öruggan sigur. Það voru þeir sem byrjuðu betur og Kári Steinn Reynisson kom þeim yfir strax á 6. mínútu. Heimamenn tóku fljótlega völdin á vellinum og markaveisla...

Fylkir marði sigur gegn FH á heimavelli (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Fylkir tók á móti FH í gær á Fylkisvellinum í lokaleik 10.umferðar. Hafnfirðingar virkuðu mun ákveðnari í byrjun leiks og voru óheppnir að skora ekki nokkur mörk í fyrri hálfleiknum. Eftir hlé batnaði leikur heimamanna en FH-ingar voru þó sterkari. Hrafnkell Helgason skaut rétt framhjá marki FH og Daði Lárusson varði skot Sverris Sverrissonar. FH-ingar áttu síðan skot í slá á 73.mínútu og komust svo yfir tveimur mínútum síðar þegar Jónas Grani Garðarsson skaut, Kjartan markvörður hélt ekki...

Grindvíkingar lágu gegn KR (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
KR heimsótti Grindavík í stórleik í Símadeildinni í gær. Fátt markvert gerðist í leiknum fyrr en á 13.mínútu þegar Sinisa Kekic náði að setja boltann í mark KR-inga en dæmd var rangstaða. Á 28.mínútu gerðist það sama, aftur var Kekic rangstæður, nú eftir skot Scott Ramsey. Sigurður Ragnar Eyjólfsson var oft á tíðum frekar einmana í framlínu KR en rétt fyrir leikhlé komst hann í gegnum vörn heimamanna eftir góða sókn en Albert Sævarsson í marki Grindavíkur var snöggur út úr markinu og náði að...

Tvö jafntefli í gær (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í gærkvöld mættust Fram og Keflavík á Laugardalsvellinum. Fyrsta alvöru færið kom eftir hálftíma þegar Andri Fannar skapaði sér dauðafæri með góðri rispu en skaut þrumuskoti af vítapunkti yfir markmannslaust Keflavíkurmarkið. Andri fékk annað gott færi fimm mínútum síðar eftir fyrirgjöf Ómars Hákonar en skot hans á nærstöng var varið. Varamaðurinn Magnús Sverrir Þorsteinsson kom síðan Keflavík yfir á 71.mínútu eftir snarpa sókn. Á 78. mínútu fengu Framarar umdeilda vítaspyrnu eftir að Freyr...

FH úr leik eftir 2-2 jafntefli við Villareal (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
FH-ingar kláruðu að setja sæti í alla stúkuna við Kaplakrikavöll fyrir leikinn gegn Villareal í Intertoto keppninni í dag. Auk þess er grasið á vellinum eins og best verður á kosið. Veðurguðirnir voru þó ekki hressir í dag og það var hreint slagviðri. Fyrri leikur liðanna fór fram á Spáni fyrir viku og þar vann Villareal 2-0. Ég ætlaði að kíkja á leikinn í dag en ákvað að liggja frekar upp í rúmi heima og horfa á leikinn á Sýn. Það voru þó rúmlega 500 manns sem létu slag standa og mættu á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok