Stefnir í einvígi Fylkis og KR Allt stefnir í einvígi milli Fylkis og KR um íslandsmeistaratitilinn en þessi tvö lið eru að stinga af í Símadeildinni. Þrír leikir fóru fram í gærkvöldi og unnu bæði liðin sigra. KR fór til Akureyrar og lék á móti KA. Eftir aðeins 15 mínútna leik voru KR-ingar komnir tveimur mörkum yfir eftir að Sigurvin Ólafsson og Þormóður Egilsson hefðu skorað. Þormóður skorar ekki á hverjum degi og var mark hans sérlega glæsilegt. Eftir þetta liðu margar mínútur án þess að áhorfendur fengu mörk. Það kom þó eitt á 77.mínútu þegar Jóhann Helgason náði að minnka muninn fyrir KA í 1-2.

Það er alltaf mikið fjör þegar Fram leikur gegn Fylki. Þorbjörn Atli Sveinsson skoraði fyrsta markið á Laugardalsvellinum í gær eftir aðeins átta mínútna leik. Á 31.mínútu jafnaði Fylkir og var þar að verki Hrafnkell Helgason, Fylkir komst síðan yfir fyrir hálfleik með marki Sævars Þórs Gíslasonar. Sævar bætti síðan við öðru marki þegar fimm mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Daði Guðmundsson náði að minnka muninn fyrir Fram undir lokin en það duggði þó ekki fyrir Framara sem eru í djúpum skít. Glæsilegur 3-2 sigur hjá Fylki og eru góðar líkur á að félagið vinni sinn fyrsta íslandsmeistaratitil í ár.

Þórsarar voru í heimsókn hjá Keflvíkingum og urðu fyrir miklu áfalli á 20.mínútu þegar Alexandre Santos fékk að líta rauða spjaldið. Þetta varð bara til þess að Þórsarar þjöppuðust saman og komust yfir sjö mínútum seinna þegar Jóhann Þórhallsson skoraði úr vítaspyrnu. Staðan í hálfleik var 1-1 því að Hörður Sveinsson náði að jafna fyrir Keflavík á 34.mínútu. Markahrókurinn Jóhann Þórhallsson bætti svo öðru marki við fyrir Þór á 60.mínútu og allt leit út fyrir að Þór væri að vinna sér inn þrjú mikilvæg stig. En á lokasekúndunum náðu Keflvíkingar að jafna metinn í 2-2 og krækja sér í eitt stig. Hetja þeirra var Haraldur Guðmundsson.

Fram - Fylkir 2-3
1-0 Þorbjörn Atli Sveinsson 8.mín
1-1 Hrafnkell Helgason 31.mín
1-2 Sævar Þór Gíslason 41.mín
1-3 Sævar Þór Gíslason 51.mín
2-3 Daði Guðmundsson 90.mín

KA - KR 1-2
0-1 Sigurvin Ólafsson 10.mín
0-2 Þormóður Egilsson 15.mín
1-2 Jóhann Helgason 77.mín

Keflavík - Þór A 2-2
RAUTT Santos (Þór) 20.mín
0-1 Jóhann Þórhallsson (v) 27.mín
1-1 Hörður Sveinsson 34.mín
1-2 Jóhann Þórhallsson 60.mín
2-2 Haraldur Guðmundsson 90.mín