Hvar liggur hundur grafinn? Hver er það sem er að bregðast? - Dómskerfið? - þessi tiltekni saksóknari? - samfélagið í heild? - við? - Ríkisstjórnin? Þetta er ótrúlegt, en gerðist samt. Það telst sannað að ,, með athöfnum sínum (hafi mennirnir) brotið sameiginlega gegn frelsi og persónu stúlkunnar." Þessi sönnun varð til þess að þeir borguðu stúlkunni bætur, en saksóknari fann ekki þörf hjá sér að höfða mál gegn þessum mönnum. - AFHVERJU ekki??? vitnað í greinina...
Eruð þið ekki að grínast? Þessi kall er betur komin í Bandaríkjunum eða Japan. Asnarlegt að við Íslendingar skulum vera að blanda okkur í mal sem koma okkur ekkert við! Vil fá hann burt sem fyrst…
Já, góðir tónleikar, mánudagskvöldi gæti ekki verið betur varið.. Gamla bókasafnið stendur sig ætið vel, yndislegur staður, heima er best. Húsið er hús unga fólksins, ekkert mál að fá að halda tónleika þarna…
ég er svo sammála… allt sem við skiljum, skiljum við það í raun og veru? allt sem við lærum í skólanum? er það rétt? afhverju er mín skoðun merkari en þín? eða þín merkilegri en hans?
Stór gott… Guðmundur Halldórsson var að verða of seinn í vinnuna og var að drífa sig út með ruslið þegar hann skynjaði mann… skynjaði, finnst það ekki alveg passa.. en þú ert höfundurinn…
Reglulega flott ljóð… þú ert greinilega góð í ensku… með mikin orðarforða… ég varð að fletta uppí orðabók til að skilja ljóðið til hlýtar! kveðja Valkyrjan.
Kvöldið. Var að velta því fyrir mér hvort þú hafir verið að skoða þessa síðu þegar þú skrifaðir greinina/ritgerðina? http://www.vestfirdir.is/galdrasyning/viskubrunnur/m_gudbrandur-thorlaksson.htm Merkilegur og ekki merkilegur maður, sjálf finnst mér nú Mary Wolstonecraft merkilegri… eigið góða nótt Valkyrkjan.
Góður maður.. mætti vera hærra í honum. við ættum að fylkja liði og mótmæla með honum… sína samstöðu, þar sem margt er til í því sem hann gerir. sTjórnarandstaðan að sína í gerðum hvað þeir eru á móti og vilja!
Ég styð anarkisman… hvernig væri að við færum bara þónokkur hópur á vestfirði og byggðum okkar eigin bæ eftir okkar hugmyndum. Það væri að sjálfsögðu góð byrjun ca 100 manns til að byrja með og svo ef þetta gengi vel myndi allt landið vera til í slaginn.. og á endanum allur heimurinn!!! kveðja hobbitinn
Ein vinkona mín benti mér á Ísfólkið og ég tók fyrstu bókina af bókasafninu full efasemda en leið og ég byrjði var sem ég steig úr líkamanum og væri andi að fylgjast með… eg las bókaflokkin á met tíma, ætli það hafi ekki verið ca bók á dag. Þegar ég var svo búin með Ísfólkið sneri ég mer strax að galdrameistaranum… sem er góður bokaflokkur en Ísfólkið er skemmtilegra… heldur betur spennuni í öllum bókunu. Mæli líka með Mary higgins Clark og James Petterson. kveðja Hobbitinn
þetta voru brjalaðir tónleikar!!!! Þetta var í fyrsta sinn sem ég hlusta á lokbrá… þeir voru æðislegir… elska þegar hljómsveit kemur manni svona skemmtilega á óvart!!! hinar hljómsveitirnar voru að sjálfsögðu frábærar líka!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..