Þetta er hárrétt hjá þér, maður hefur orðið mikið var við að það að fólk (ekki allir) sem er að tala í símann er gjörsamlega úr takt við umferðina sem er í kring. Ég er þessvegna alveg sammála um að það á að banna það að vera að tala í símann á meðan á akstri stendur. Handfrjáls búnaður er þó skárri en hitt…
Rólegur, ég var nú bara að spyrja. Mig hafði engan grun um að skemmdarfýsn hjá fólki væri á svona háu stigi. Og ég verð að segja að ekki var það ég sem var að skemma þetta. Mig grunar hinsvega að blóðþrýstingurinn hjá þér hafi stigið hátt þegar þú varst að skrifa þetta svar!
Veistu hvaða rök þeir hafa til að réttlæta þessar aðgerðir? Ég get ekki trúað því að þegar einhverjir gaurar koma þarna saman að það skemmi mikið brautina…
Það er samt bara spurning um að kíkja út á flugvöll… þeir eru víst með bensín sem þeir nota á flugvélarnar sem hefur hærri eða jafnháa octantölu þetta V-power bensín. Held að það sé 100 oct.
En þó svo að eitthvað annað merki er jafn gott ef ekki betra og það væri ódýrara? Reyndar er það þannig að flestar merkjavörur eru góðar en stundum er maður að borga of mikið fyrir þær.
Ég var ekki að draga úr því að fólk þurfi að hafa tilfinningu fyrir bílnum. Það er mikilvægt atriði en þegar það er komið þá þarf að hafa góða kennslu um það hvernig umferðin virkar…
Ágætis punktur… fólk verður kannski ekki betri ökumenn en það fer þó betur eftir reglunum. Þó maður getur keyrt vel þarf að fara eftir umferðarreglum. Og þannig verða slysin, fólk virðir ekki umferðarreglur.
Ég mæli eindregið með Bílvirkjanum í skútuvogi. Gaurinn sem er þar svindlar ekki á þér. Hann þurfti nokkrum sinnum að tjónka við Sunnyinn minn. Mjög góður í eldri bílum.
Með nýju pústi á vélin auðveldara með að anda, en það þarf auðvitað að vera meira loft sem kemur inná vélina til að einhver hö fást, og auðvitað meira bensín. Þannig að þetta er eins og Kull segir, þetta allt saman skilar hö.
P.S. það er einn galli á þeim, það er ekki hægt að vera að gefa honum inn þegar hann er kaldur. Þá fær maður engan kraft, þá gæti hann alveg eins verið 90hp.
Ég á einn svona bíl, fínt að eiga hann þó manni langi nú alltaf í meira kraft en hann er ágætlega sprækur og eyðir um 10 lítrum, þá er ég auðvitað að gefa í við og við. En það er eins og hefur komið fram hér áður þá vantar bílnum tog… en eins og var einnig sagt þá þarf bara að vera hræra í gírkassanum til að koma honum á rétta snúninginn. Við skulum frekar orða það þannig að hann er eins og venjulegur 1.6 fólksbíll þegar hann á lágum snúning en getur orðið sprækur þegar honum er gefið inn…
Mig minnir að það hafi verið til sölu einn svartur í DV fyrir einhverjum vikum, leit vel út á myndinni en það segir auðvitað ekki neitt. En samt eru þeir bara til í 5 dyra útfærslunni… held ég alveg örugglega.
Þetta gæti haft sálfræðileg áhrif á þig… þú trúir því að bíllinn þinn fái meiri kraft og telur þig fynna það. En ég ætla samt ekki að draga orð þín í efa, þetta bensín hefur hærri oktan tölu og því brennur það jafnar og betur heldur en bensín með lægri oktantölu.
Lambinn fór reyndar í eina ferð í viðbót en náði ekki nema 9,6 held ég örugglega. GT5 bíllinn fór bara í eina ferð en bilaði síðan í seinni, ég skildi það að gaurinn heldi að hann kæmi honum hraðar….
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..