Kannski, en félagi minn sagði að þetta væri ágætis ökumaður sem var að keyra Saxoinn. Það gæti kannski spilað inní að hann var á stærri felgum en bíllinn kemur á orginal…
Sunny GTi tekur Hondu Vti. En ég hef spyrnt við Saxo sem er gefinn upp 7,7 sek í hundrad á Hondu og ég tók Saxoinn… þanning að þetta er eitthvað skrítið. Kannski Saxo sem bara ofmetinn. Veit ekki. :(
Það er auðvitað rétt að þyngri bílar mengi meira en bílaframleiðendur eru þó alltaf að endubæta vélarnar svo að þær eyði minni og það kemur náttúrulega á móti…
Og bílinn byrjar að elska þig aftur… en hvernig er þetta, fannst þér ekkert gaman að láta dæla á hann á bensínstöðvum. Horfa á bensíndælumanninn fá allt yfir sig. Kannski þetta með magnið af bensíni sem fór til spillis hafi ekki verið skemmtilegt.
Byrjaði á Sirion 4x4… keypti síðan Fiat Turbo, og er núna ánægður maður á STi Imprezu. Helvíti góður bíll, en ég er þó sammála því að maður er <b>lengi</b> að byrja. :)
Þið verðið líka að athuga það að það eru ekki bara ökuníðingar og vitleysingar sem er verið að taka myndir af. Þið þarna sem haldið að þið séuð svo heiðarlegir getið alveg lent í þessu… ég er ekki að segja að þið keyrið svona viljandi en þið gætuð gleymt ykkur og óvart gefið aðeins og mikið bensín in… og þá væruð þið líka komin í albúmið.
Ég held að þetta sé jafn gott og “Superslicer” sem margur landinn keypti á sýnum tíma. Auðvitað var gott að skera grænmeti með þessu… en það var að vera frosið til að hægt væri að skera það svona. Þýskt gæðastál MY ASS!!!
Eini gallinn við síuna er að þú þarf að þrífa hana upp reglulega. Síðan las ég grein í Max Power um síur. Þeir voru að prufa svona síur og það kom ekkert alltof vel út. K&N sía sem þú skiptir um gaf ekkert hestafl en “Cone” sía gaf eitt hestafl… ekki slæmt það. Ég held að þetta sé alltsaman ofmetið þegar fólk heldur að það sé að fá einhver rosahestöfl úr þessu.
Eftir að hafa lesið öll þessi álit þá man ég bara eftir gaurnum sem lenti í þessu. Hann varð svo reiður að hann fór út úr bílnum á næstu ljósum og barði gaurinn sem hafði verið að keyra hægt á vinstri. Þetta kallast að taka lögin í sínar hendur…
Ekki alveg, annar félagi minn skemmdi hjá sér felgu. Stykkið átti að kosta 50.000 kr!!! Og þá hefði hún komið með skipi… Hún kostaði töluvert meira með flugi!
Ég las það einhversstaðar að konur væru með verra þrívíddarskyn og ættu erfiðara með að bakka… nei bara svona að minnast á þetta fyrst bílinn skemmdist að aftan. Samt ekkert að gera lítið úr kvennmannsbílstjórum…
Ég er sammála að það er flott að vera með þokuljósin kveikt, en hefurðu samt prufað að keyra á undan jeppa sem er með þau kveikt? Lenti einusinni á eftir Musso sem var með svona kastara… það var ekki gaman!
Mér fannst svör þín vera tvíræð og beint að mér að stórum hluta þar sem þú skrifar login nafnið mitt í svarið þitt. Sammála með seinustu setninguna og skrifum skýr svör.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..