Ég var að skoða gamlar kannanir og fann þar eina þar sem spurt var hvaða álfelgur væru flottastar. Ég hef eins og ég hef áður sagt ekki mikið vit á bílum, en ég kannaðist þó við merkið MOMO þar sem það er MOMO stýri í draumabílnum mínum sem er Impreza GT. Ég fór því á stúfana (altavista) og leitaði mér að myndum af MOMO álfelgum og stýrum og fann þá heimasíðu MOMO sem er <a href="http://www.momo.it/“ target=”_blank">MOMO.it</a>. Nú ég var að spá hvar á Íslandi hægt er að kaupa MOMO álfelgur og stýri á bílinn sinn (eða verðandi ;)