Sæll.
Þú tekur ekki fram hver markmið þín eru með þjálfuninni. Þetta er eitt mikilvægasta atriðið í gerð æfingaáætlunar. Auðvitað geta áætlanir og markmið breyst, en maður þarf að hafa þau.
Hvort viltu léttast eða þyngjast? Þetta æfingaprógramm sem þú talar um, eróbikk og spinning, virðist helst miða að því að auka þol og grennast. Er það markmiðið eða viltu styrkjast og massast?
Það sem ég get sagt þér strax er að þú þarft amk 8 tíma svefn. Reyndu að fara aldrei að sofa eftir miðnætti og helst aldrei eftir 11 á virkum dögum.
Þú þarft að borða vel og reglulega, 4-6 máltíðir yfir daginn og ekki sleppa morgunverði.
Vendu þig af sælgæti, gosi og sætu morgunkorni og borðaðu svoleiðis bara einstöku sinnum, á nammidegi eða eitthvað svoleiðis. Þetta á við hvort sem þú vilt auka styrk eða þol.