Hefurðu reynt að fara með bænir á kvöldin þér til verndar? Hér eru tvær gamlar og góðar: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. Leið þú mína litlu hendi, ljúfi Jesú þér ég sendi, bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíðu Jesú að mér gáðu.