Jafnvel náttúrulögmálin geta verið afstæð, því samkvæmt skammtakenningu og afstæðiskenningu nútímaeðlisfræði þá gilda vélhyggjulögmál Newtons og félaga ekki nema að takmörkuðu leyti, þ.e. innan þröngs ramma, þannig að ég hef tamið mér að segja aldrei, aldrei. Gott og vel. Þú trúir ekki í blindni á óskeikulleika vísindanna. Málið er að við erum að nokkru leyti að deila um keisarans skegg. Ég er í raun og veru sammála þér að við þurfum jafn mikið á aðferðafræði vísindanna að halda eins og...