Ég kannast við eina tilraun í þessa veru: Forsagan er á þá leið að samtökin Innhverf íhugun halda því fram að ef 2% samfélags taki upp á því að stunda hugleiðslu þeirra þá muni stórlega draga úr samfélagslegum vandamálum, eins og glæpum, hjónaskilnuðum, ofdrykkju, ofbeldi og hvers konar deilum. Þeir nefndu að í einni borg í Bandaríkjunum á þetta að hafa náðst og í samræmi við það hafi marktækt dregið úr ofannefndum vandamálum. Ég efast um að þessi ályktun standist vegna svo margra...