Ágæti JohnnyB, ég myndi tvímælalaust fá mér lögfræðing, ef ég ætti að mæta fyrir dóm. Lögfræðingar eru sérfræðingar í lögum, og hvernig best er að ræða við dómara, svo að þú fáir réttláta meðferð. Það er ástæða fyrir því að það er ákvæði í lögum, sem segja að hver sá sem er ákærður fyrir lögbrot, á rétt á aðstoð lögfræðings, og ef ákærði getur ekki borgað kostnaðinn við lögfræðinginn sjálfur, þá borgar ríkið kostnaðinn. Kveðja habe.