Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: ASPI

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ertu búin/n að ná í nýjustu uppfærslur frá microsoft fyrir stýrikerfið þitt? Kveðja habe.

Re: Bensíneyðsla

í Jeppar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Þetta er frábær listi hjá þér JHG, en ég hefði viljað bæta einu inn, það er að athuga loftþrýstinginn í dekkjunum. Ef bíll fer að eyða meira en venjulega, en ekkert er augljóslega bilað, þá er skýringin oft sú, að loftþrýstingurinn er oflítill í dekkjunum. Kveðja Habe.

Re: Kraftþéttarar....

í Bílar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þéttar virka svipað og rafhlöður, það er geyma rafhleðslu í ákveðinn tíma. Tilgangur þeirra í bílagræjum, er að taka af orkuhöggin sem bassinn skapar. Ef þú notar ekki þétta með öflugum bassaboxum, þá færðu suð og leiðindi í græjurnar, gætir líka fengið þögn í stærstu bassaslögunum. Kveðja habe.

Re: IBM Thinkpad

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Já það er hægt að boota think padnum á usb portinu. Ef vélin gerir það ekki sjálfkrafa þegar drifið er tengt, þá ýtirðu á f12 í ræsingu og velur svo usb geisladrifið í valglugganum sem byrtist. En afhverju viltu boota tölvunni af geisladiski?

Re: Laptop í sjónvarp

í Græjur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það fer eftir því hvaða tengi eru í tölvunni þinni. En þú þarft náttúrulega skjákort með útgangi, til að fá mynd út. Kveðja habe.

Re: Get bara komið fyrir 3 diskum :/

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ertu með réttar master/slave stillingar á hörðu diskunum og geisladrifunum? Ef það er ekki vandamálið, þá myndi ég skoða aflgjafann. Kveðja habe.

Re: Help

í Græjur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ef þú kaupir skjái frá USA, þá verður að athuga, að þeir nota bæði annað kerfi í útsendingum ntsc í stað pal, og annað rafkerfi 115 v/60 hz í stað 230 v/ 50 hz, og það getur skapað aukavandamál í skjám. Svo ég myndi ekki kaupa skjá í USA, nema að vera viss fyrst um að hann myndi virka á Íslandi. Kveðja habe.

Re: USB ekki að gera sig

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Er allt í lagi í device manager? Kveðja habe

Re: Vantar svar ASAP

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Maccinn hefur nú verið talinn bestur í hljóð og myndvinnslu. Svo ég myndi mæla með honum, ef þú ætlar mest að vera í tónlistar og myndvinnslu. En svona til að svara spurningunni þinni, þá myndi ég mæla með Intel í hljóð og myndvinnslu, þar sem þeir örgjörvar hafa verið að koma betur út í langtíma þungri vinnslu. Habe

Re: HDD vandamál

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Meðan diskurinn sést í bios, þá er venjulega hægt að bjarga gögnum af honum. En það kostar pening að senda diskinn í gagnabjörgun hjá verkstæði. Mátt búast við minnst 2 tímum við að ná gögnum af disknum. Kveðja habe.

Re: Smá hjálp

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það er nú algengast að skjákort í fartölvum séu innbyggð í móðurborðið, svo þú getur ekki skipt um það. Kveðja habe.

Re: Amerísk sía.

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þú getur prófað að tala við Símabæ í Ármúlanum. Eða bara skipta um tengi og kló á símanum. Kveðja habe.

Re: Trojan horse

í Hugi fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Trojan hestar eru mjög skæðar gerðir af vírusum, sem leyfa utanaðkomandi að taka yfir tölvu þess sem er með trojan hest, og raunverulega gera hvað sem hann listir við tölvuna. Svo já það á að eyða öllum trojan hestum sem koma inn á tölvuna manns. Kveðja habe.

Re: Á hverju klikkaðiru?

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Eina villan mín á bóklega prófinu var nú frekar klaufaleg. Ég sagði að það væri alltaf stöðvunarlína við stöðvunarskyldu, en eins og prófdómarinn benti á, þá eru ekki stöðvunarlínur á malarvegum. Kveðja habe.

Re: AM Radio

í Græjur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í flestum útvörpum, þá er takki sem skiptir á milli fm og am. Hann er oft merktur fm/am, frequency, eða eitthvað í þessa áttina. Vonandi hjálpar þetta eitthvað. Kveðja habe

Re: Straumbreytir fyrir Alcatel 1000

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Athugaðu hvort Íhlutir eða Miðbæjarradio eigi ekki svona straumbreyti. Kveðja habe.

Re: Norræn goðafræði

í Hugi fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Á vef bókasafns Garðabæjar er tengill á síðu sem evrópusambandið heldur úti, meðal annars á íslensku um íslenskar goðsögur. Kveðja habe.

Re: HJÁLP!!!!!!!!!!!!!!!!

í Græjur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ok þú hefur minnsta kosti 2 leiðir til að gera þetta. A: Tengja scartsnúru á milli videotækjanna. Það ætti að gefa betri myndgæði. B: Tengja coaxcapal (venjulegur loftnetskapall) á milli videotækjanna og þá tekurðu bara upp eins þú værir að taka upp þátt í sjónvarpinu. Kveðja habe

Re: Þokuljós

í Bílar fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Samkvæmt lögum, þá má eingöngu nota þokuljós í slæmu skyggni utan þéttbýlis. Slæmt skyggni er til dæmis þoka, þétt rigning og sambærilegt. Samkvæmt þessu þá er algjörlega óheimilt að nota þokuljós innanbæjar, og ef það er bara myrkur eins og því miður margir gera. Einnig er mikilvægt að passa að þokuljós séu rétt stillt til að forðast að blinda aðra ökumenn. Kveðja habe

Re: Bensín eða dísel ?

í Jeppar fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Málið er að það er stór munur á díselvélum og bensínvélum, hvað díselvélar hafa almennt miklu meira tog, sérstaklega á lágum snúningi. Þessi kostur díeselvélanna er einmitt það sem hentar vel í jeppa sem eru hannaðir til að draga þunga, og fara hægt yfir torfærur. Annar stór kostur við díselvélar, er að þær eru síður viðkvæmar fyrir bleitu (nema að þeir þola ekki að fá vatn í loftinntakið), þetta skipptir máli þegar keyrt er yfir ár. Ef vel er gengið frá loftinntaki á díselvél, þá er óhætt...

Re: Ökuritar og stóri bróðir

í Deiglan fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Þessi hugmynd um að setja sögu ökurita í alla bíla er áhugaverð. En það sem skipptir öllu máli er hvernig þetta verður útfært. Ef ég skildi hugmynd Böðvars rétt, þá vill hann geta refsað fyrir brot aftur í tímann, sem er algjörlega óásættanlegt, meðal annars þar sem erfitt getur verið að sanna hver framdi brotið. Hinns vegar er ég hlynntur annarri útgáfu, þá væri ökuritinn notaður eins og flugritar (svarti kassinn) í flugvélum. Það er upplýsingar úr kassanum er ekki hægt að nota til að sækja...

Re: Tíðnir

í Græjur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Póst og fjarskiptastofnun er með skrá yfir þetta allt saman, og úthlutar tíðnum. Kveðja habe.

Re: Sprungnir loftpúðar - fær hann skoðun?

í Bílar fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sé bíll búinn öryggisbúnaði, svo sem loftpúðum, þá verður hann að virka til að bíllinn fái skoðun, þó svo að búnaðurinn sé ekki skylda. Kveðja habe.

Re: Fyrsti bíll

í Bílar fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sæll Hlynzi. Varðandi tryggingar, þá fer verðið á þeim eftir afli vélar miðað við þyngd bílsins. Þeimun fleiri hestöfl per kíló, þeimun dýrari trygging. En til að fá nákvæmt verð, þá ættirðu barasta að hringja í tryggingafélögin. Kveðja habe.

Re: Smá vandræði

í Græjur fyrir 22 árum
Sæl/l karnage. Þessi bilanalýsing bendir til bilunar í spennugjafanum í sjónvarpinu. Endilega farðu með tækið sem fyrst í viðgerð hjá fagmanni, því bilanir í spennugjafa geta valdið yfirhitun á íhlutum í tækinu, og jafnvel bruna. Kveðja habe.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok