Þú getur notað þunna smurolíu, svo sem saumavélaolíu, til að smyrja leguna í viftunni. En sem sagt ef þú tekur tölvuna úr sambandi, og losar spennugjafann úr kassanum, þá sérðu strax hvort hægt er að opna hann, eða ekki. Ef hægt er að opna hann, sem mér fynnst líklegt, þá sérðu viftuna og getur smurt hana, eða fjarlægt. Reyndar myndi ég athuga vel hvort það borgi sig fyrir þig að skipta um viftuna, frekar en að kaupa nýjan spennugjafa. Kveðja habe.