Það sem er samt, finnst mér, það skrítnasta við þetta allt saman er hversu þögulir þessir öfgafrjálshyggjumenn, SUS liðar, Sigurður Kári og Guðlaugur Þór eru þessa dagana. Sigurður Kári þótti einn allra öfgafyllsti hægrimaður áður en hann tók sæti á þingi og þá virðist eins og þessum mönnum sé bara umturnað, þeir segja ekkert. Þeir tveir félagar ásamt Pétri Blöndal voru allir á móti SPRON frumvarpinu, en þó það gangi alveg á skjön við hugmyndafræði þeirra þá láta þeir lítið í sér heyra og...