Samkvæmt mogganum mun stórsveitin Fantomas hita upp fyrir Korn á síðari tónleikunum sem haldnir verða í Laugardalshöll, 31. maí nk.

Bandið skipa:
MIKE PATTON (Faith No More, Mr. Bungle, Tomahawk, Lovage, Peeping Tom, Maldoror, Weird Little Boy, o.fl.)
DAVE LOMBARDO (Slayer, Grip Inc., o.fl.)
TREVOR DUNN (Mr. Bungle, Secret Chiefs 3, Trevor Dunn Trio-Convulsant, o.fl.)
BUZZ OSBOURNE (The Melvins)

Flestir sem fylgjast með músík sjá að hér er sannkölluð súpergrúppa á ferð og hvet ég alla sem ekki þekkja til hennar, að skoða nánar. Til að njóta tónlistar Fantomas til fullnustu er hins vegar ráðlegt að ýta öllum fordómum til hliðar og opna sig fyrir nýjungum, því tónlist þeirra er mjög tilraunakennd!

Þá er það spurningin; er einhver jafn spenntur fyrir þessu og ég?