Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hvenær drepur maður mann? Umfjöllun um kynferðisbrotadóma (56 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 1 mánuði
Eftirfarandi er grein sem ég ritaði um málefni sem brennur oft á vörum okkar: Of væga dóma í kynferðisbrotamálum, með Svefnnauðgarann að leiðarljósi. Tuttugu og átta ára gamall geimverkfræðingur var dæmdur í nóvember á síðasta ári í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hrottafengna nauðgun á átján ára stúlku. Hann er talinn hafa byrlað stúlkunni sem hann nauðgaði svefnlyfið Rohypnol. Stúlkan mundi ekki neitt en var með áverka eftir nauðgunina. Dómurinn sem hann hlaut var tveggja og hálfs árs...

Máttur martraðanna - Vöxtur stjórnmála í skugga óttans (7 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 1 mánuði
Eftirfarandi grein fjallar um sögulegt samhengi atburða í þáttunum The Power of Nightmares eftir Adam Kurtis. Ekki sagnfræði segja sumir, en þar sem sagnfræðin í þáttunum er rakin ætti greinin vonandi að verða viðurkennd. Með fyrirvara um að greinaskil virka ekki og villur. Höfundur ákvað að velja efni um eitthvað sem að hans mati skiptir máli í alþjóðasamfélagi. Efnið sem varð fyrir valinu eru heimildarþættir sem sýndir voru á BBC 2 í október árið 2004 og fjalla í heild sinni um...

Of dýrt í fjöllin? (47 álit)

í Bretti fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Kæra brettafólk. Ákvað að létta á kúgunarmiklu hjarta mínu og senda hér inn grein. Nú er svo komið að við fullorðnu(yfir 16 ára) getum keypt okkur inn á skíðasvæðin í nágrenni RVK fyrir 1200 krónur, á tilboði. Annars kostar það 1300 virka daga og 1500 um helgar. Einungis eru seld dagskort, mánaðarkort og árskort. Mánaðarkortin eru á 8000 krónur. Árskortin eru á 16000 krónur. Dagskortin eru eins og áður sagði á 1300 og 1500 kr. Nú hef ég þrisvar lent í því að koma upp í fjall milli 6 og 7 á...

Af vettvangi umræðunnar-Nokkur orð um frjálsa fjölmiðlum á Íslandi (10 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ákvað að birta hér smá grein sem ég gerði um fjölmiðla á Íslandi, með “fjölmiðlafrumvarpsins” sem vendipunkt. Með fyrirvara um engin greinaskil, því að samkvæmt minni reynslu detta þau út og gerðu það einnig núna(að ég held) svo ég hafði línubil í stað greinaskila. Af vettvangi umræðunnar. Það eru stjórnarskrárvarin réttindi þegnanna að mega tjá skoðun sína í ræðu og riti án takmarkana annarra en þeirra sem siðgæði og velsæmi leiða af sér(Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands). Á Íslandi ríkir...

Heilagt stríð BNA og al-Qaeda (36 álit)

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ákvað að birta hér lokaritgerð sem ég gerði í Sögu3136 í FB. Frekar löng, en þó ýmislegt áhugavert. Bið ykkur um að koma ekki með skítkast yfir lengd hennar þar sem að það er ykkar val að lesa hana. Hún fjallar um hryðjuverk með tilliti til hugtaksins jihad, eða heilags stríðs í því formi sem það birtist nú á tímum. Sem tímaviðmiðun ritgerðarinnar verður í upphafi vitnað til ávarps hryðjuverkamannsins Usama Bin Laden sem hann hélt og birtist í sjónvarpi í lok október sl. Ritgerðin byggir að...

Nafn og myndbirtingar sakamanna. (21 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nafn og myndbirtingar sakamanna Mikið hefur verið um rætt í fjölmiðlum þessa lands hvort það eigi að birta nöfn manna sem sekir eru um afbrot. Hverskyns afbrot? Auðgunar og kynferðisbrot aðallega. Það síðarnefnda hefur alltaf haft mikið í för með sér. Mikla rannsóknavinnu og ég tala nú ekki um ef brotið snýr að ólögráða, börnum. Hversu alvarlegt sem brotið er, hversu þekktur sem einstaklingurinn er þá virðist það ekki skipta neinu máli fyrir fjölmiðla þessa lands. Flestir hafa nú samt sín...

Þvottastöðvar Shell (17 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Eitt fagurt ágústkvöld ákvað ég undirritaður að dekra svolítið við mig og fara með bílinn minn í þvott, ekki venjulegan þvott heldur eins skonar lúxusþvott á þvottastöð SELECT við Vesturlandsveg. Á skiltinu fyrir utan þvottastöðina stendur að ekki megi hafa loftnet og annað sem geti skemmst á meðan á þvottinum stendur og einnig að enginn ábyrgð sé tekinn á þessum munum. Ég vildi ekki nein vandræði og ákveð því að taka loftnetið af. En það reynist ekki leikur einn svo að ég keyri að Select...

Nýtt svæði? ! ? ! (8 álit)

í Bretti fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sæl! Eftir raunir síðustu ára, til dæmis snjóleysið hér í Reykjavík, aðstöðuleysið sem allir kvarta undan, það að venjast svæðunum og fá leið á þeim og margt, margt fleira þá finnst mér kominn tími á það að fólk verði jákvætt og opið fyrir nýju svæði(Fólk í t.d Bláfjallanefnd) Ekki það að það sé það ekki-veit ekkert um það en mér finnst kominn tími á smá umræðu um það allavega. . . Er ekki eitthvað sem hægt er að gera? Mér finnst vera kominn tími á að skoða nýtt svæði.. Veit einhver hér um...

Rútuferðir Teits Jónasonar...Rugl! (20 álit)

í Bretti fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sælt veri brettafólkið….. Eitt sem ég hef verið að velta fyrir mér svona þegar seasonið er að byrja eru rútuferðirnar, sem eru að mínu mati mjög góður kostur fyrir okkur sem minna megum okkar og erum ekki kominn með bílpróf. En það er einn hængur þar á. Hann er sá að rútan fer alltaf svo seint. Brottför í fjöllin á Reykjavíkursvæðinu er kl 17.15 á virkum dögum!!! Það er rugl því að maður er kominn í fjallið kl c.a 18 og ekki byrjaður að renna sér fyrr en um 18.30 þegar maður er búinn að...

Þjónustustaðall Brettavöruverslunarinnar GÁP-0,0? (21 álit)

í Bretti fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Sælir Hugarar…. Ég vil byrja þessa grein mína á því að segja ykkur að ég keypti mér bretti í Týnda Hlekknum rétt áður en hann leið undir lok fyrr á þessu ári, og keypti ég brettið á útsölu(40% af.) Þetta er mjög gott bretti: Gnu´02 plata, Burton skór og Burton SYNCRO bindingar, sem mér skilst að eigi að vera í hærri gæðastaðli en venjulega þekkist hjá burton. Ég byrja náttúrulega strax á því þegar ég kem heim að prófa það Ég á nýja brettinu mínu með nýju BURTON SYNCRO bindingarnar sem voru...

Silfur Egils (13 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Góðan daginn gott fólk. Ég hef verið að horfa á þáttin Silfur Egils á skjá einum og ég er ekki mjög sáttur við vinnubrögð dagskrárgerðamanna þessarar stöðvar. Þessi þáttur hefur verið starfandi í fjóra vetur og ólíkt öllum íslensku þáttunum á skjá einum þá hefur alltaf lifað í glæðum Egils á imbanum. Hver einn og einasti þáttur er og hefur verið of stuttur. 1 og hálfur tími!. Í hverjum þætti er einhver að segja eitthvað og þá segir þáttastjórnandinn góðkunni.. “EN tíminn er að fljúga frá...

Meðalfellsvatn í Kjós (2 álit)

í Veiði fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Sælir Veiðimenn. Ég fór í dag, sunnudag upp í kjós til að veiða í Meðalfellsvatni. Mesta veiðin er núna í ágúst-sept, ég var þarna í 3 tíma í dag og við fengum 3 fiska sem allir voru urriðar, frá 1 pundi og uppí 3-4. Maðkurinn er aðalega að taka þarna, allavega varð maður ekkert smá var með hann. Ég prófaði spinner en ekkert gekk. Við vorum bara í góðum fíling með stóla í vatninu að bíða eftir að hann myndi bíta. Frændi minn var þarna í gær og hann tók 7 fiska á maðkinn. 5 urriða og tvær...

Áhugamálið sem slíkt! (4 álit)

í Veiði fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Sælir félagar. Hér hefst enn ein vælugreinin…. Þetta áhugamál er alveg farið í hundana, við sjáum það nú bara á könnuninni sem ég sendi inn fyrir 4 dögum eða svo. ÞAÐ ERU 12 BÚNIR AÐ SVARA!!!!!. og ég er að segja ykkur það að það er sennilega eina fólkið sem stundar þetta áhugamál… Hvað ætli margir séu skráðir?? Ég er ekki að segja að ég sé einhver undantekning en ég tékka allavega á þessu áhugamáli. Hver ætlar að verða frumkvöðull og deila með okkur sögu eða einhverju góðu???. Ég myndi gera...

Forseti Kína og Falun Gong. (9 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Heimsókn forseta Kína er að ljúka. Ég horfði á fréttirnar á Stöð 2 áðan og þessi einkarekna sjónvarpsstöð fjallaði um þennan viðburð í svona 20 mínútur. Þeir fjölluðu um heimsóknina, hvernig hún fór fram(Sem er náttúrulega alveg skiljanlegt) Og svo var Fjallað um Falun Gong og aftur Falun Gong, sem var að mínu mati ekki eitthvað til þess að fjalla um í allan þennan tíma því að þetta skiptir svo litlu máli að það hálfa væri nóg. Ég las fréttir áðan á vísi.is og reyndust þær vera 42 sem...

Stöng úr Veiðimanninum! (11 álit)

í Veiði fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sælir félagar. Ég keypti mér stöng úr Veiðimanninum í fyrra. Fyrir einhvern 7000 kall eða svo, Ron Thompson-Spin technica. 2,4 á lengd, 8 fet eða eitthvað. Ég var með opið hjól á henni og hún blívaði vel fyrir byrjanda eins og mig, konan í veiðimanninum sagði að þær gerðust ekki betri fyrir þennan pening, ég tók því upp í ermina á mér og Ég gekk sáttur út og fór að veiða:) EN. Um síðustu helgi lenti ég í því miður óskemmtilegri reynslu.. Ég og félagar mínir ákváðum að fara að sigla og ég...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok